Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.03.2013, Síða 30

Skinfaxi - 01.03.2013, Síða 30
30 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 96. ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga var haldið á Blönduósi 2. mars sl. Um 30–40 full- trúar voru mættir frá aðildarfélögum sambandsins. Þingið var starfsamt og komu fjölmargar tillögur fram, m.a. tillögur um breytingu á núverandi lögum sambandsins og breytingu á kjöri íþróttamanns USAH sem nú verður valinn ár hvert á milli jóla og nýárs. Þá var reglum um lottóúthlut- un sambandsins breytt og þingið samþykkti að fela stjórn að skipa þriggja manna nefnd sem taki að sér að skoða hvert stefna skuli með USAH og hver framtíðarsýn sambandsins eigi að vera. Íþróttamaður ársins hjá USAH var valinn Ólafur Magnússon, hestamaður í Hestamannafélaginu Neista, en Ólafur stóð sig afskaplega vel á síðast- liðnu ári. Hvatningarverðlaun USAH, sem eru ný viðurkenning frá sam- bandinu, hlaut ritnefnd Húnavöku fyrir óeigingjarnt starf fyrir sambandið en ritnefndarmenn ritstýra Húnavök- unni í sjálfboðavinnu og hafa verið lið- lega 200 ár samtals í ritnefnd. Gefend- 96. ársþing Ungmennasambands Austur-Húnvetninga: Ætla að skoða hvert stefna skuli með USAH ur hvatningarverðlaunagripsins voru fyrrum formenn sambandsins en bik- arinn var gefinn á 100 ára afmæli USAH sem var á síðasta ári. Mikil og góð vinna fer fram innan aðildarfélaga okkar Að sögn Aðalbjargar Valdimarsdóttur, formanns USAH, voru góðar umræður á þinginu um mörg málefni. „Það er mikil og góð vinna sem fer fram innan aðildarfélaga okkar. Við réðum framkvæmdastjóra í hlutastarf sem hefur reynst okkur afar vel. Við getum ekki annað en verið ánægð og bjartsýn,” sagði Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður USAH. Þess má geta að USAH fagnaði eitt hundrað ára afmæli á síðasta ári. Stjórn USAH skipa nú þau Aðalbjörg Valdimarsdóttir, for- maður, Hafdís Vilhjálmsdóttir, varaformaður, Jóhanna Guðrún S. Magnúsdóttir, gjaldkeri, Sigrún Líndal, ritari, og Guðrún Sigurjónsdóttir, meðstjórnandi. Mynd að ofan: Til vinstri: Ingiberg Guðmunds- son,tók við hvatningarverðlaunum USAH fyrir hönd ritnefndar Húnavöku. Til hægri: Aðalbjörg Valdimarsdóttir, formaður USAH. Mynd til hægri: Ólafur Magnússon, íþrótta- maður USAH 2012.

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.