Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.10.2012, Blaðsíða 27
21.10. 2012 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
living withstyle
ILVA Korputorgi, Blikastaðavegi 2-8, 112 Reykjavík s: 522 4500
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 www.ILVA.is
DETROIT
SÓFABORÐ
89.900
Nýtt
U
ppdekkning dagsins er fyrir súpuklúbbinn á sunnudags-
morgni.
Við erum átta sem höfum hist í mörg ár. Það er allaf
fjörugt og við skiptumst á að bjóða heim í súpu. Ég hef
aldrei verið súpugerðarkona í langsuðu og bauð því upp á nokkrar ein-
faldar, í mismunandi glösum og bollum. Ég dett næstum í tísku, eins
og stundum með rauða varalitinn, og núna með ósamstæðan borð-
búnað,“ segir Áslaug Snorradóttir, ljósmyndari og alvanur veisluhaldari
með meiru, en Sunnudagsblað Morgunblaðsins fékk að kíkja í heim-
sókn og sjá hvernig lagt var á borð fyrir sunnudagsklúbb Áslaugar.
„Á borðið valdi ég nokkrar súpur og sumar eru bornar fram í barbí-
skömmtum og þær eru mismunandi á litinn. Svo smellpassa amaretti-
kökur með bleiku kampavíni, húðaðar möndlur og annað góðgæti er
sjónræn gleði.“
Morgunblaðið/Eggert
Áslaug með gúrkusúpu í kristalsglösum úr Fríðu frænku. „Pressuð gúrka, sítróna, sellerí, engifer, hvítlaukur og basilíka. Í glösin legg ég baunaspírur, flata steinselju
og ertur og helli safanum í glösin. Góðgætið er pikkað upp með prjónum en það er alltaf ánægjulegt að prjónast við borðhald, hægir á og lengir borðhaldið.
Það kemur einkar vel út að hafa góðgætið ekki endilega í
skálum heldur leyfa því að liggja sem borðskraut.
Blóm á borðum gera mikið á fjólu-
bláum dúki og takið eftir borðbún-
aðinum, sem er úr öllum áttum.
Að morgni
sunnudags
ÁSLAUG SNORRADÓTTIR LJÓSMYNDARI LAGÐI Á
BORÐ FYRIR SÚPUKLÚBBINN SINN.
AÐ HORFA OG BORÐA HEFUR HVORT SINN SJARMA