Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 2

Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Þjóðaratkvæðagreiðslan 20. október 2012 Vantar þig upplýsingar um kjörstaði eða hvar þú ert á kjörskrá? Upplýsingar um framkvæmd þjóðaratkvæða- greiðslunnar er að finna á kosning.is Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Nokkur skip hafa náð góðum síldarköstum á Grundarfirði síðustu daga og fyllt sig á skömmum tíma. Þannig hafa Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds landað tvívegis á Hornafirði, eftir veiðina á Grundarfirði, og Börkur fékk stórt kast í fyrradag. Skip- unum hefur þó gengið misjafnlega. Dröfn er við rannsóknir á svæðinu, en sýking sem verið hefur í íslensku sumargotssíldinni síðustu ár virðist vera á undanhaldi. Í gærmorgun kom Hoffellið með um 500 tonn til Fáskrúðsfjarðar og var byrjað að salta þar í gær, bæði flök og hausskorna síld. Grétar Arnþórsson, verkstjóri hjá Loðnuvinnslunni, sagði að um fínustu síld væri að ræða. Austur af landinu hafa Aðalsteinn Jónsson, Huginn, Hákon og Guðmundur verið við veiðar á norsk-íslenskri síld. Kvóti skipanna á þessari vertíð er langt kominn. aij@mbl.is Veiðist einnig vel af síldinni fyrir austan land Ljósmynd/Jökull Helgason Síldarskip hafa náð góðum köstum á Grundarfirði Morgunblaðið/Albert Kemp Söltun Byrjað var að salta síld á Fáskrúðsfirði í gær þegar Hof- fellið kom með 500 tonna afla. Um fínustu síld var að ræða. Síldveiðar Börkur NK á síldveiðum inni á Grundarfirði í blíðviðri í vikunni. Heimir Snær Guðmundsson heimirs@mbl.is Fimm dómarar Hæstaréttar hafa komist að samhljóma niðurstöðu um að ekki megi breyta vöxtum á lánum afturvirkt og samningsvextir gildi á móti fullnaðarkvittunum. Þar með hefur Hæstiréttur snúið við dómi Héraðsdóms Vesturlands sem hafði áður dæmt að Arion banka hefði ver- ið heimilt að endurreikna gengis- tryggt lán sveitarfélagsins Borgar- byggðar aftur í tímann samkvæmt vöxtum Seðlabanka Íslands, sem taka mið af lægstu vöxtum á nýjum, almennum, óverðtryggðum útlánum hjá lánastofnunum. Skarphéðinn Pétursson, lögmaður Borgarbyggðar, segir að í tilfelli sveitarfélagsins hafi lán Arion banka verið endurreiknað í 213 milljónir í samræmi við lögin frá 2010 en í Hæstarétti var niðurstaðan að miða skyldi við samningsvexti og eftir- stöðvar lánsins væru 128 milljónir. Hæstiréttur féllst því á ýtrustu kröfu Borgarbyggðar, sem til vara krafðist þess að eftirstöðvar skuldarinnar væru á bilinu 162-196 milljónir. Í dómsorði segir jafnframt að Arion banki skuli greiða áfrýjanda, Borg- arbyggð, tvær milljónir króna í máls- kostnað í héraði og fyrir Hæstarétti. „Ég tel að þessi dómur staðfesti að ef staðið er í skilum með svokallað ólög- mætt gengistryggt lán og greitt hef- ur verið af því þá dragast allar greiðslur inn á höfuðstól frá stöðu lánsins áður en það er vaxtareiknað,“ segir Skarphéðinn og er fullviss um fordæmisgildi dómsins. Hann segir að samkvæmt dómn- um beri að miða við samningsvexti, við endurútreikning, sem oft voru í kringum 3,5% en ekki vexti Seðla- bankans sem hann telur að hafi verið að meðaltali í kringum 15% á um- ræddu tímabili. Tugir milljarða í húfi Skarphéðinn segir að um miklar fjárhæðir sé að ræða, hugsanlega tugi milljarða. Að mati Skarphéðins nær fordæmisgildi dómsins einnig yfir lán einstaklinga og fyrirtækja. „Mergur málsins er að vaxtamunur- inn sem endurreiknaður var miðað við lög 151/2010, svokölluð „Árna Páls lög“ stenst ekki 72. gr. stjórn- arskrár um vernd eignaréttinda og afturvirkni laga,“ segir Skarphéðinn. Snertir líka uppgreidd lán Réttarstaða lántakenda, sem hafa greitt upp sambærileg lán, mun ekki skerðast, að sögn Skarphéðins. „Það á ekki að hafa nein áhrif þó lán hafi verið gert upp, miðað við al- mennar yfirlýsingar þriggja stærstu bankanna sem birtust á heimasíðum þeirra. Þar kom fram að hvernig sem færi með lánin varðandi afborganir og endurútreikning þá myndi fólk alltaf njóta betri réttarstöðu ef það yrði niðurstaða Hæstaréttar,“ segir Skarphéðinn. Fulltrúar Samtaka fjármálafyrir- tækja vildu ekki tjá sig um dóminn þegar eftir því var leitað í gærkvöldi. Samningsvextirnir gilda  Arion banka óheimilt að breyta vöxtum afturvirkt samkvæmt dómi Hæstaréttar  „Árna Páls lögin“ ekki talin standast stjórnarskrá  Tugir milljarða króna í húfi Morgunblaðið/Ómar Dómur Arion banki mátti ekki breyta vöxtum á láni afturvirkt. „Dómurinn er vonbrigði fyrir eigendur vatnsréttinda. Hann felur í sér niðurstöðu sem horfir að töluverðu leyti til þess að vatnsréttindaverð yrði tiltekið hlutfall af stofn- kostnaði virkjunarinnar. Eigendur vatnsréttinda horfðu frekar til þess hver arðsemi nýtingar vatnsréttinda væri, bæði miðað við tekjur af virkjuninni og með tilliti til verð- myndunar vatnsréttinda í frjálsum samningum,“ segir Jón Jónsson, annar lögmanna vatnsréttarhafa við Jök- ulsá á Dal, um dóm Hæstaréttar í gær. Staðfesti rétt- urinn mat sérstakrar matsnefndar á verðmæti vatnsrétt- inda vegna Kárahnjúkavirkjunar. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að réttindin væru metin á 1,6 milljarða króna. Þar með staðfesti Hæstiréttur niðurstöðu Héraðs- dóms Austurlands. Eigendur vatnsréttinda við Jökulsá á Dal, 61 talsins, höfðuðu á sínum tíma mál gegn Lands- virkjun. Í greinargerð Landsvirkjunar kom fram að á sínum tíma hefðu landeigendur gert kröfu um að samtals yrðu greiddir um 96 milljarðar króna vegna vatnsrétt- inda Kárahnjúkavirkjunar. heimirs@mbl.is Dómurinn vonbrigði fyrir eigendur vatnsréttinda Morgunblaðið/Brynjar Gauti Verðmat Eigendur vatnsréttinda vildu m.a. miða við arðsemi virkjunarinnar þegar kom að verðmætamati.  Mat á vatnsréttindum vegna Kárahnjúka staðfest Stefán Einar Stefánsson, for- maður VR, náði sínu fram á ASÍ- þinginu í gær þegar tillaga mið- stjórnar um Evr- ópumál var stytt og áhersla lögð á að hraða aðild- arviðræðum við Evrópusam- bandið. Tillagan verður afgreidd á þinginu í dag en samkomulag tókst um málið í nefnd sem fjallaði um Evrópumálin. Stefán Einar hafði beitt sér fyrir því að í ályktun ASÍ yrði hvatt til þess að viðræðum um aðild yrði lokið sem fyrst, með það að markmiði að ná eins hagstæðum samningum og unnt væri. Það yrði síðan íslenska þjóðin sem tæki af- stöðu til samningsniðurstöðunnar og aðildar að ESB í bindandi þjóð- aratkvæðagreiðslu. Ekki voru allir sammála því að stytta tillöguna og var tekist á um hana. Samið um Evrópumál á ASÍ-þingi Stefán Einar Stefánsson  Viðræðum um aðild verði hraðað Guðlaugur Þór Þórðar- son, þing- maður Sjálfstæðis- flokksins, segir að dómur Hæstaréttar í máli Borg- arbyggðar gegn Arion banka sé áfellisdómur yfir ríkis- stjórninni og eftirlitsstofnunum á fjármálamarkaði. „Ég vakti at- hygli á málinu strax í ársbyrjun 2011. Þetta er kannski skýrasta dæmið um skjaldborg bankanna hjá ríkisstjórn Jóhönnu Sigurð- ardóttur. Endurreisn fyrirtækja og heimila hefði verið með allt öðrum hætti ef betur hefði ver- ið haldið á málum,“ segir Guð- laugur. Gagnrýnir ríkisstjórnina ÁFELLISDÓMUR Guðlaugur Þór Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.