Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 4

Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 BAKSVIÐ Baldur Arnarson baldura@mbl.is Útlit er fyrir að verðbólga haldist há á næstu mánuðum og að launahækk- anir eftir áramót ýti undir þá þróun. Verðbólgan hækkar höfuðstól verðtryggðra lána og afborganir af óverðtryggðum lánum á breytilegum vöxtum en eins og sjá má hér til hlið- ar hafa lánasöfnin stækkað frá hruni. Þorbjörn Atli Sveinsson, sér- fræðingur hjá greiningardeild Arion banka, segir að fyrir því megi færa ágætis rök að þar sem gengis- styrkingin í sumar hafi verið mjög skammvinn hafi hún að takmörkuðu leyti komið fram í lægra vöruverði. Því sé „u-beygja“ í gengi krónu á undanförnum vikum ekki sú ávísun á verðhækkanir sem hún væri ella. „Við teljum hins vegar að áhrifin verði einhver, sem dæmi teljum við að verð á innfluttum bílum komi til með að hækka. Við gerum ráð fyrir að ársverðbólgan verði komin í 4,9% í lok árs og að meðalverðbólgan í ár verði þá um 5,3%. Í ljósi versnandi verðbólguhorfa þá teljum við að frek- ari stýrivaxtahækkanir verði á árinu og spáum við a.m.k. 25 punkta hækk- un áður en árið er á enda,“ segir Þor- björn Atli sem telur að verðbólgan muni aukast eftir áramót, einkum ef krónan heldur áfram að veikjast. „Launahækkanir munu hafa áhrif á verðbólguna. Gjaldskrár- hækkanir hjá hinu opinbera eftir ára- mót munu einnig hafa áhrif. Við ger- um ráð fyrir að árstaktur verðbólgu verði á bilinu 5-6% á næstu árum en þættir eins og frekari veiking krón- unnar, áframhaldandi hækkanir á fasteignamarkaði sem og launahækk- anir muni vega þar þyngst.“ Opni fyrir áramót Ásgeir Jónsson, lektor við Hag- fræðideild HÍ og efnahagsráðgjafi hjá fjármálafyrirtækinu GAMMA, segir „brothættan stöðugleika“ uppi í hagkerfinu um þessar mundir. Hann spáir því að Seðlabankinn hækki stýrivexti um 0,25-0,5% fyrir áramót og að verðbólgan verði á bilinu 4-5% næstu misserin. Meiri lík- ur en minni séu á að þrýstingur verði á að gengið lækki frekar. „Gengi krónu styrktist aðeins í skamman tíma í sumar og hafði tak- mörkuð áhrif á verðsetningu áður en það lækkaði aftur. Verðbólguáhrifin verða því ekki eins mikil og vænta mætti en samt töluverð enda er það þumalfingursregla að gengi krón- unnar hefur 40% áhrif á vísitölu neysluverðs í gegnum innflutning. Fasteignamarkaðurinn hefur síðan um 20% vægi en það sem eftir stendur felst í þjónustu og opinberum gjöldum að miklu leyti. Ég tel að hækkanir á fasteignamarkaði muni fara að hafa áhrif á vísitöluna á þess- um vetri en bæði lækkanir á fjár- magnskostnaði og fasteignaverði úti á landi hafa haldið aftur af vísitölu- hækkuninni fram til þessa. Þá má búast við talsverðum launahækkunum eftir áramót enda tekur brátt að losna um samninga. Það eru að koma kosningar og ýmsir hópar eru óánægðir með þá kjara- skerðingu sem hrunið hafði í för með sér,“ segir Ásgeir Jónsson. Sviptingar í hagkerfinu Gengi evru 170 165 160 155 150 145 17 .0 1.1 2 17 .0 2. 12 16 .0 3. 12 * 17 .0 4. 12 18 .0 5. 12 ** 18 .0 6. 12 ** * 17 .0 7.1 2 17 .0 8. 12 17 .0 9. 12 17 .10 .12 Stýrivextir (í %) Heimild: Seðlabanki Íslands *17.mars var laugardagur **17.maí var uppstigningar- dagur *** Þjóðhátíðardaginn bar upp á sunnudegi Útlán hjá bönkunum (í milljónum króna)+ 6,0 5,8 5,6 5,4 5,2 5,0 4,8 4,6 4,4 4,2 4,0 16 .0 8. 11 17 .0 8. 11 02 .1 1. 11 21 .0 3. 12 16 .0 5. 12 13 .0 7. 12 1.000.000 900.000 800.000 700.000 600.000 500.000 400.000 300.000 200.000 100.000 0 ág. 04 ág. 05 ág. 06 ág. 07 ág. 08 ág. 09 ág. 10 ág. 11 ág. 12 Óverðtryggð útlán* Verðtryggð útlán** Verðtryggð lán hjá ÍLS*** *ÍLS er hér undanskilinn **ÍLS er hér undanskilinn ***Útlán ÍLS í árslok 2011 voru 782.053 milljónir samkvæmt ársreikningi. Útlán sjóðsins fyrstu 8 mánuði ársins námu 8,3 milljörðum króna, en voru við 15,9 milljarða árið áður. Talan í september er fengin með því að leggja þessar tvær tölur saman. +Virði útlánasafns þriggja stærstu viðskiptabankanna er metið á því virði sem þessir aðilar keyptu útlánin á af fyrirrennurum sínum. Kaupverðið er það virði sem vænst er að muni innheimtast af útlánum.Virði útlánasafns þessara þriggja aðila endurspeglar því ekki skuldastöðu viðskiptavina, að sögn SÍ. Heimild: Seðlabanki Íslands/Íbúðalánasjóður Heimild: Seðlabanki Íslands (SÍ) Sp á Ar io n ba nk a 31 .12 .12 Sp á G am m a 31 .12 .12 Telja að launahækkanir muni viðhalda verðbólgu  Sérfræðingar spá vaxtahækkunum hjá Seðlabanka Íslands fyrir áramót Þorbjörn Atli Sveinsson Ásgeir Jónsson „Hann var að fá þær fréttir í morgun [í gær] að hann gæti sótt um íslenskt vegabréf í norska utanríkisráðu- neytinu í Jordaníu á sunnudaginn næsta,“ sagði Ahmed Kouwatli um bróður sinn, Jamil Kouwatli. Hann flúði átökin í Sýrlandi til Jórdaníu ásamt konu sinni og þrem- ur sonum þeirra; 6, 9 og 10 ára. Jamil Kouwatli kom einn hingað til lands fyrir nokkru að heimsækja bróður sinn sem er búsettur hér. Honum var veitt svokölluð viðbótar- vernd hér á Íslandi til fjögurra ára. Jamil Kouwatli hélt til Jórdaníu að sækja fjölskyldu sína. „Fjölskyldan kemur ekki fyrr en eftir nokkrar vikur. Mikil pappírs- vinna er framundan og auk þess þarf að finna hagstæðasta flugfarið. Hann er heldur ekki búinn að finna neina íbúð fyrir þau. Hann þarf að borga allt sjálfur,“ sagði Ahmed Kouwatli. Hann benti á að venjulega þyrfti að reiða fram þrjá mánuði fyr- irfram í leigu sem væri ekki á þeirra færi. Fyrir utan að búa íbúðina hús- gögnum. Ahmed Kouwatli var ánægður með væntanlega vegabréfsáritun. Átökin í Sýrlandi stigmagnast. Í gær sprakk öflug sprengja í höfuð- borginni Damaskus. Að minnsta kosti 44 féllu í átökum uppreisnar- manna og stjórnarhermanna í bæn- um Maaret al-Numan, að því er AFP-fréttaveitan greinir frá. thorunn@mbl.is Styttist í að sýrlensku bræðurnir sameinist  Jamil Kouwatli nær í konu sína og þrjá syni til Jórdaníu Morgunblaðið/Árni Sæberg Bræður Kouwatli-bræðurnir Jamil og Ahmed frá Sýrlandi. Kínversk rör í nýtt og öflugt loft- ræstikerfi hjá álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík eru gölluð og þarf að laga þau fyrir uppsetningu. Tekist er á um hvort þau hafi verið keypt gölluð eða hvort málningin hafi skemmst í flutn- ingum til Íslands. Síðan 2010 hafa staðið yfir miklar endurbætur á álverinu. Meðal annars er verið að endurnýja svonefndar þurrhreinsistöðvar og var búnaður- inn keyptur frá Kína. Hluti málning- arinnar á búnaðinum er ófullnægj- andi, að sögn Ólafs Teits Guðnasonar, upplýsingafulltrúa álversins, og er unnið að því að sandblása og endur- mála það sem nauðsynlegt er. Skapar vinnu Ólafur Teitur vill hvorki gefa upp um hvað mikið magn er að ræða né hver kostnaðurinn vegna skemmd- anna er, en segir að kostnaðurinn sé umtalsverður og óljóst sé hver komi til með að bera hann. Fyrir liggi að varan hafi verið skoðuð að einhverju leyti áður en hún hafi verið send frá Kína. Kínverjarnir segi að þá hafi engar athugasemdir verið gerðar og rörin hljóti því að hafa skemmst í flutningum. Ólafur Teitur segir að ljósi punkturinn sé að skemmdirnar skapi óvænta vinnu hérlendis. Gölluð rör hjá Rio Tinto Alcan Morgunblaðið/Árni Sæberg Straumsvík Rör í loftræstikerfi hjá álveri Rio Tinto Alcan.  Keypt gölluð eða skemmd í flutningum Hæstiréttur hef- ur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um sýknu blaða- manns og rit- stjóra DV af kröfu Heiðars Más Guðjóns- sonar um að til- tekin ummæli í DV yrðu ómerkt og þau látin niður falla. Ummælin fjölluðu um að Heiðar Már hefði skipulagt stöðutöku gegn krónunni. Í yfirlýsingu segist Heið- ar Már harma þessa niðurstöðu. Það væri miður að Hæstiréttur gerði ekki þá kröfu til DV að blaðið sannaði fullyrðingar í hans garð. DV sýknað af kröf- um Heiðars Más „Verðbólguhorfurnar setja þrýst- ing á peningastefnunefnd Seðla- banka Íslands. Nefndin er að reyna að endurvinna trúverðugleika og hann verður ekki áunninn að henn- ar mati nema þróun skammtíma- vaxta sem hún setur sé a.m.k. í takt við verðbólguna,“ segir Styrmir Guðmundsson, sjóðsstjóri hjá eignastýringarfyrirtækinu Júpíter, sem telur „frekari vaxta- hækkanir munu draga enn frekari þrótt úr veikum efnahagsbata“. „Ég held að það gæti haft nei- kvæð áhrif á verðlag, til dæmis í gegnum verðskrár fyrirtækja sem eru að miklu leyti á fljótandi vöxt- um. Fjármagnskostnaður þeirra hækkar og þau munu leita leiða til að fleyta því út í verðlag. Þetta mun væntanlega gera þeim erfitt um vik sem hafa leitað í óverðtryggðu lánin hjá bönk- unum. Tiltölu- lega litlar breytingar á nafnvaxtastig- inu hafa til- tölulega mikil áhrif á greiðslu- byrði slíkra lána. Þeir sem skulda verð- tryggt munu aftur á móti finna minna fyrir því frá mánuði til mánaðar en höfuð- stóll þeirra lána mun væntanlega halda áfram að vaxa um 4-6% á ári eins og frá hruni.“ Styrmir telur aðspurður að vext- ir kunni að hækka um 0,5% fyrir áramót og 0,75% ef gengið veikist enn frekar. Þá telur hann kröfur um frekari launahækkanir á næsta ári geta sett enn meiri þrýsting á Seðlabankann um að hækka vexti. Hefði áhrif á verðlagið SÉRFRÆÐINGUR METUR ÁHRIF VAXTAHÆKKANA Styrmir Guðmundsson Allur ágóði af sölunni rennur til Krabbameinsfélags Íslands www.faerid.com Sölustaðir: N1, Pósturinn, Skeljungur, Nettó, Olís og Bónus.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.