Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 10

Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Fossaleyni 2, 112 Reykjavík, sími 586 1000 husgogn.is Heill heimur af ævintýrum Af því að börn stækka María Ólafsdóttir maria@mbl.is Ljósmyndarinn Valdís Thorvar stödd í Lettlandi til aðtaka þátt í alþjóðlegu ljós-myndaraverkefni þegar hún komst að því að nafn hennar væri algengt karlmannsnafn þar í landi. Hún ákvað að fara á stúfana og mynda karlmenn sem hétu Valdis. Tveir þekktir menn heita Valdis í Lettlandi, annar er fyrrverandi for- seti landsins, Valdis Zatlers, hinn er núverandi forsætisráðherra Lett- lands, Valdis Dombrovskis. Var Val- dís svo heppin að fá að hitta hinn síð- arnefnda. Minolta filmuvél sú fyrsta Valdís er fædd árið 1987 og upp- alin í miðbæ Reykjavíkur. Hún lærði ljósmyndun í Iðnskólanum og var á nemasamningi hjá Morgunblaðinu þar sem hún kláraði sveinsprófið árið 2008. Síðan þá hefur hún verið að taka myndir sér til gamans og ánægju og vinnu í og með. „Við áttum eldgamla vél með ljósaperu þegar ég var lítil og við vor- um alltaf að leika okkur að henni svo það gæti hafa kveikt áhugann. Ég byrjaði samt ekki að taka myndir fyrr en ég var 14 ára en þá fann ég gamla Minolta myndavél sem mamma mín átti. Hana notaði ég alveg þar til ég varð 18 ára og byrjaði í náminu. Þá keypti ég fyrstu stafrænu vélina mína en ég tek þó enn dálítið á filmu,“ segir Valdís. Hún segir innblásturinn ætíð hafa komið frá umhverfinu, fjölskyld- unni og vinunum. Hún hafi nýtt sér myndavélina til að eiga minningar um fólkið í kringum sig og hengt þær upp í herberginu sínu. „Það hefur alltaf látið mér líða vel að horfa á fallegar ljósmyndir. Þetta er viss skrásetning en í grunn- inn þótti mér svo vænt um að geta séð hvernig tilfinningar endurspeglast í gegnum ljósmyndir. Mér finnst einna skemmtilegast að mynda fólk og mannlíf almennt,“ segir Valdís. Kraftar sameinaðir Verkefnið sem Valdís tók þátt í í Lettlandi kallast European borderl- ines visual narratives og snýst það um að sameina krafta ungra ljós- myndara frá Íslandi, Lettlandi, Portúgal og Tyrklandi. Valdís var ein þriggja sem voru valdir sem fulltrúar Íslands en löndin fjögur eiga það sameiginlegt að þar má bæta bæði ljósmyndamenntun og mikilvægi ljós- myndunar sem listforms. Þátttak- endur eru á aldrinum 20-35 ára og hittist hópurinn sumarið 2011 til skrafs og ráðagerða en hugmyndin er sú að verkefnin tengi saman löndin og hugtakið landamæri sem hver og einn túlkar á sinn hátt. Á Íslandi er verkefnið unnið í samstarfi við Félag íslenskra ljósmyndara (FÍSL) en fengnir voru tveir virtir ljósmyndarar sem leiðbeinendur, þau George Georgiou og Vanessa Winship. En Vanessa fékk Henri Cartier-Bresson verðlaunin á síðasta ári sem eru mikil viðurkenning fyrir ljósmyndara. Leitaði nafna sinna „Það var í skóla í Lettlandi sem ég rak fyrst augun í nafnið Valdis og komst að því að nafnið væri karl- Hann var kallaður Valdis Þegar ljósmyndarinn Valdís Thor komst að því að nafn hennar væri algengt sem karlmannsnafnið Valdis í Lettlandi ákvað hún að mynda nokkra nafna sína. Myndaröðin er hluti af samstarfsverkefni ungra ljósmyndara frá fjórum löndum og er Valdís ein þriggja Íslendinga sem taka þátt í því. Þekktasti Valdisinn Hér er Valdís ásamt nafna sínum Valdis Dombrovskis forsætisráðherra Lettlands, sem hún var ánægð með að hitta. Matgæðingar ættu ekki að láta þessa síðu fram hjá sér fara. Hún hefur ekki bara að geyma uppskriftir frá öllum heimsins hornum, allt frá forréttum til eftirrétta, heldur eru athugasemd- ir frá notendum og stjörnugjöf við hverja uppskrift. Margir betrumbæta upphaflegu upskriftina í athuga- semdum sínum og aðrir gefa lesand- anum góða hugmynd um það hvernig rétturinn bragðast. Sumum uppskriftum fylgja mynd- bönd sem sýna handbragðið við elda- mennskuna og auðvitað er mynd af réttinum sem um er að ræða. Ef þú vilt læra að gera franska súkkulaðiköku, spænskan saltfisk- rétt, sveppa-risotto, tiramisu- lagköku eða heimsins besta lasanja þá er matgæðingasíðan all- recipes.com tilvalin fyrir þig. Síðan er sérstaklega þægileg fyrir snjall- síma og spjaldtölvur. Vefsíðan www.allrecipes.com Uppskriftir Á síðunni er að finna uppskriftir alls staðar að úr heiminum. Eldað af fingrum fram Sinfóníuhljómsveit Íslands verður með barnastund um helgina sem ætl- uð er yngstu hlustendum. Í barna- stundinni er flutt tónlist í um það bil 30 mínútur í Hörpuhorni á 2. hæð fyr- ir framan Eldborg. Tónlistin og lengd barnastundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tón- sprotanum. Á morgun verður 1. þátt- ur Leikfangasinfóníunnar eftir Leo- pold Mozart fluttur af meðlimum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leik- fangasextett skipaður börnum og Maxa. Þá verður flutt úrval léttra og skemmtilegra laga. Endilega… …farið á barna- stund í Hörpu Morgunblaðið/Ómar Tónlist Barnastund í Hörpu. Grimmhildur, félag H-nemenda á Hugvísindasviði Háskóla Íslands, stendur fyrir Einarsvöku á morgun klukkan 14.00 í Bíó Paradís við Hverf- isgötu. Á vökunni verður æviferill þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og eiginkonu hans Hlínar Johnson reifaður og fjallað verður um árin þeirra í Herdísarvík. Halda á Einarsvöku til að vekja at- hygli á því að í Herdísarvík eru mikil- vægar sögu- og menningarminjar sem lítið hefur verið sinnt og eru í mikilli hættu á að glatast. Með til- komu Suðurstrandarvegar er staður- inn kominn í alfaraleið og því ætti að vera hægara um vik með verndunar- starf og uppbyggingu. Guðrún Ás- mundsdóttir og Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur, fræðimaður og höf- undur ævisögu Einars Benedikts- sonar, flytja erindi og Benedikt Erl- ingsson, leikari og leikstjóri, verður með ljóðaupplestur. Þá mun Þórhall- ur Barðason söngvari flytja lög með textum Einars við undirleik Stein- unnar Halldórsdóttur. Þá verða auð- vitað veitingar í anda Hlínar. Einarsvaka í Bíó Paradís Þjóðskáldið og athafnamaður- inn Einar Benediktsson Morgunblaðið/Golli Einarsvaka Grimmhildur stendur fyrir fræðslu um líf Einars og Hlínar. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.