Morgunblaðið - 19.10.2012, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 19.10.2012, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Fallegur vetrarmorgunn Góður göngutúr um Vatnsmýrina er kjörin leið til að byrja daginn. Styrmir Kári Í tillögum stjórnlagaráðs, grein 86, er gert ráð fyrir því að sérhver ráðherra ríkisstjórnarinnar beri ábyrgð á sínum málaflokki eins og verið hefur hingað til. En í næstu grein, grein 87, er lagt til að þegar um mikilvægar eða stefnumótandi ákvarðanir er að ræða, breyti rík- isstjórnin um eðli og verði að fjöl- skipuðu stjórnvaldi, það er ráð- herrarnir beri sameiginlega ábyrgð á ákvörðun ríkisstjórn- arinnar. Með þessu hafa bæði þeir sem vilja að hver ráðherra beri ábyrgð á sínu og þeir sem vilja sameiginlega ábyrgð fengið sitt fram. Eini vandinn er sá að þetta fyrirkomulag, sem svo góð sátt náðist um í stjórnlagaráðinu, er fullkomlega ómögulegt í fram- kvæmd. Sátt um skilgreiningu? Hvaða mál eru mikilvæg og hvaða mál eru stefnumótandi? Hver á að ákveða að svo sé? Í skýr- ingum með tillögunum segir að það geti ýmist verið „að hluta í lögum og, með heimild í lögum, að hluta eftir mati forsætisráðherra, eftir atvikum í samráði við aðra ráðherra“ og til að flækja nú málið enn frekar þá segir jafnframt í skýringunum: „afmörkunin getur jafnframt breyst í tímans rás eftir því sem löggjafinn ákveður, reynsla gefur tilefni til og samfélagið þróast“. Sem sagt, algerlega upp í loft, enda vonlaust að setja í orð reglu um það hvað eru mikilvæg mál og stefnumótandi. Rati þessi tillaga stjórnlagaráðsins inn í stjórnarskrá lýðveldisins er ljóst að óvissa mun ríkja um eitt af grundvallaratriðum stjórnskip- unarinnar. Hér er aðeins nefnt eitt dæmi um vanhugsaða tillögu stjórn- lagaráðs, því miður eru fjölmargar aðrar tillögur ráðsins sama marki brenndar og rík ástæða til að segja nei við því að leggja eigi tillögur þess til grundvallar nýrri stjórnarskrá. Eftir Illuga Gunnarsson »Eini vandinn er sá að þetta fyrir- komulag, sem svo góð sátt náðist um í stjórnlaga- ráðinu, er full- komlega ómögu- legt í fram- kvæmd. Illugi Gunnarsson Höfundur er alþingismaður. Stundum fjölskipað og stundum ekkiÞað er í ætt við annað aðríkisstjórnin, sem ítrekað neitaði að láta fara fram þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-samningana sem hún gerði við Breta og Hol- lendinga og sem neitaði að láta fara fram þjóð- aratkvæðagreiðslu um hvort sótt yrði um aðild að Evrópusambandinu, ætli nú að stefna landsmönnum til atkvæðagreiðslu um eigið gælumál, atlöguna að stjórnarskrá lýð- veldisins. Þjóðin, sem ríkisstjórnin vildi ekki að fengi að kjósa um grafalvarleg mál, fær nú náðarsamlegast að taka þátt í „ráðgefandi kosningu“ um tillögur, sem ekki hafa einu sinni verið lagðar fram á þingi og hafa hvergi fengið raunverulega umfjöllun. Skiljanlegt að margir sitji heima Það er mjög skiljanlegt að margir sitji heima og sendi þar með skýr skilaboð um að þeir hafi ekki áhuga á þessu gælu- verkefni stjórnvalda, gæluverkefni sem nú þegar hefur tekið milljarð króna úr tómlegum ríkiskassanum. Öll venjuleg stjórnvöld myndu bæði skilja og virða slík skilaboð. Núverandi stjórnarskrá var samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu með vel yfir 90% stuðningi þjóðarinnar. Deilur urðu þegar stjórnarskrá var breytt til að minnka misvægi atkvæða í landinu en að öðru leyti hafa menn í sjö- tíu ár jafnan gætt þess að breyta stjórn- arskránni aðeins þannig að um breyt- inguna sé almenn sátt. Auðvitað hefðu ráðandi stjórnmálaflokkar getað beitt afli sínu til að þrýsta einhverjum stund- argælumálum sínum í stjórnarskrá. En engum datt slíkt til hugar fyrr en núver- andi ríkisstjórn náði völdum í kjölfar bankahruns og barsmíðabyltingar. Er óhætt að sitja heima? En þó skiljanlegt sé að menn sýni þessu brölti stjórnvalda áhugaleysi sitt í verki með því að sitja heima, og að undir öllum venjulegum kringumstæðum væri slíkt nægilegt til að horfið yrði frá vanhugsuðum bylt- ingartilraunum á stjórn- skipaninni, þá er ekki þar með sagt að óhætt sé að sitja heima að þessu sinni. Það eru ekkert venjulegir valdhafar sem nú halda um stjórnartaumana. Ráða- menn, sem sitja sem fastast þrátt fyrir að hafa þegar beðið auðmýkjandi ósigur í tveimur þjóðaratkvæða- greiðslum – en til beggja var stofnað í mikilli óþökk valdhafanna – munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að túlka úrslitin á laugardaginn sér og gæluverk- efni sínu í hag, en þjóðinni og stjórn- arskránni í óhag. Eftir á verður alveg örugglega látið eins og það fólk, sem ekki kemur á kjörstað á laugardaginn, sé ekki til. Álitsgjafarnir eru þegar farnir að plægja þann jarðveg. Núverandi stjórn- völdum er nefnilega alveg sama hvort nokkur sátt sé um stjórnarskrárbreyt- ingarnar sem þau vilja knýja í gegn. Nú hafa þau einfaldlega völdin! Grafalvarleg tillaga sem verður að hafna Önnur ástæða er fyrir því að fólk ætti að mæta á kjörstað og senda þau skila- boð sem jafnvel núverandi stjórnvöld geta ekki þóst misskilja. Tillaga „stjórn- lagaráðs“ er svo illa samin og klúðursleg að hún væri óboðleg sem stefnuskrá Besta flokksins, og hvað þá sem stjórn- arskrá lýðveldisins. Þó þar megi af afar mörgu taka, þá vil ég nefna hér eitt graf- alvarlegt atriði, sem hugsanlega lætur lítið yfir sér við fyrstu sýn. Í 113. grein í tillögu „stjórnlagaráðs“ er fjallað um hvernig stjórnarskránni verður breytt í framtíðinni, ef tillaga ráðsins nær fram að ganga. Þar segir: „Þegar Alþingi hef- ur samþykkt frumvarp til breytingar á stjórnarskrá skal það borið undir at- kvæði allra kosningabærra manna í land- inu til samþykktar eða synjunar.“ En næst segir: „Hafi 5/6 hlutar þingmanna samþykkt frumvarpið getur Alþingi þó ákveðið að fella þjóðaratkvæðagreiðsl- una niður og öðlast þá frumvarpið gildi engu að síður.“ Með öðrum orðum, ef til- laga „stjórnlagaráðs“ nær fram að ganga, verður opnuð heimild fyrir 5/6 þingmanna til að breyta stjórnarskránni framvegis að eigin geðþótta, hvenær sem er, og án þess að þjóðin geti haft neitt um það að segja. Þessi meirihluti þing- manna gæti til dæmis með einni at- kvæðagreiðslu lengt sitt eigið kjör- tímabil í tíu ár, lagt forsetaembættið niður og gert hvaðeina annað sem þing- mönnum dytti í hug. Þessi tillaga „stjórnlagaráðs“ er svo fráleit og svo al- varleg að strax vegna hennar er nauð- synlegt að mæta á kjörstað og sýna hug sinn í verki. Og hvað með aukaspurningarnar? Auk fyrstu spurningarinnar um til- lögur „stjórnlagaráðs“ í heild sinni, þá eiga kjósendur einnig að svara einhvers konar skoðanakönnun um ýmis málefni sem stjórnarþingmenn og álitsgjafar hafa lengi haft á heilanum. En það sýnir vel hver áhugi stjórnvalda á vilja lands- manna er í raun, að þess var gætt að spyrja ekki hvort fólk vilji að í stjórn- arskrá verði leyft að framselja fullveldi Íslands til annarra ríkja eða ríkja- sambanda. Þar vilja stjórnvöld alls ekki að vilji Íslendinga komi fram. Þegar horft er á þetta allt saman, aðdragand- ann, vinnubrögðin og svo það um hvað er spurt og um hvað ekki, þá er ekki furða að mörgum þyki réttast að láta sig hafa það að mæta á kjörstað og senda stjórn- völdum verðskuldaða viðurkenningu með því að segja nei við öllu saman, nema já við þjóðkirkjunni. Tillaga sem verður að fella Eftir Bergþór Ólason »Ef tillaga „stjórnlaga- ráðs“ nær fram að ganga, geta 5/6 þingmanna framvegis breytt stjórnar- skránni að eigin geðþótta, hvenær sem er, án þess að þjóðin geti haft neitt um það að segja. Bergþór Ólason Höfundur er fjármálastjóri. Ýmsir áróðursmenn fyrir tillögum stjórnlagaráðs hafa að undanförnu látið eins og eina leiðin til að koma í gegn einhverjum breytingum á stjórnarskránni sé að sam- þykkja tillögur stjórnlagaráðs eins og þær liggja nú fyrir. Er með því gefið í skyn að þeir sem mikinn áhuga hafa á að breyta einhverju í stjórn- arskránni, kannski bara einu, tveimur eða þremur atriðum, eigi ekki annarra kosta völ en samþykkja allan pakkann. Annars muni ekkert gerast. Auðvitað er ekkert fjær sanni. Stjórn- arskránni hefur oft verið breytt á und- anförnum áratugum. Á lýðveldistímanum hefur meiri hluta þeirra ákvæða sem nú standa í stjórnarskránni verið breytt, stundum í veigamiklum atriðum. Ekkert kemur í veg fyrir að slíkt vinnulag verði við- haft áfram. Með því að áfangaskipta verkinu gefst miklu betri kostur á að fara vel yfir og greina sérhvert álitaefni, sem upp kemur, ræða það í þaula og komast að niðurstöðu, sem flestir geta sætt sig við. Aðstæður til svona yfirferðar, bæði fræðilegrar og póli- tískrar, eru auðvitað ekki fyrir hendi þegar í einu lagi eru lagðar til breytingar á öllum 80 ákvæðum núgildandi stjórnarskrár og 35 nýjum er bætt. við. Umræður undanfarinna vikna sýna það og sanna, að fjöldamörg álitamál í tillögum stjórnlagaráðs – sum þeirra veigamikil og jafnvel afdrifarík – hafa litla sem enga umræðu fengið. Sennilega á það við um flest ákvæðin. Og þótt önnur hafi vissulega komist á dagskrá er langt í land að sú umræða sé komin á þann stað að nokkurt samkomulag sé í augsýn. Það er ekki einu sinni kominn sameiginlegur skiln- ingur á mörgum tillögunum, sem frá stjórnlagaráði komu. Menn leggja t.d. enn afar mis- munandi skilning í ákvæði um kosningar og kjördæmi, ákvæðin um forsetaembættið, kirkjuskipanina, fullveld- isframsalið og svo má lengi telja. Mikilvægur kafli eins og mannréttindakaflinn, sem lagt er til að breytist verulega – og ekki alltaf til góðs, hefur nær enga umræðu fengið. Það er því býsna bratt hjá ákveðnum hópi þeirra sem sátu í stjórnlagaráði, og þing- mönnum Samfylkingar og VG að hvetja fólk til að segja já við fyrstu spurningunni á laugardaginn. Þegar kjósendur eru þannig beðnir um að samþykkja að tillögur stjórn- lagaráðs verði lagðar til grundvallar frum- varpi að nýrri stjórnarskrá er hreinlega verið að biðja þá að skrifa upp á óútfylltan víxil. Viltu skrifa upp á óútfylltan víxil? Eftir Birgi Ármannsson Birgir Ármannsson »Umræður undanfarinna vikna sýna, að mörg at- riði í tillögum stjórnlagaráðs – sum veigamikil og jafnvel afdrifarík – hafa litla sem enga umræðu fengið. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.