Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
✝ Sóley Ólafs-dóttir fæddist í
Sólheimum í Lax-
árdal 6. maí 1954.
Hún lést á sjúkra-
húsinu á Hvamms-
tanga 9. október
2012.
Foreldrar henn-
ar voru Ólafur
Ingvi Eyjólfsson
bóndi í Sólheimum,
f. 18. júní 1915, d.
25. júní 1994, og Helga Áslaug
Guðbrandsdóttir bóndi og hús-
freyja í Sólheimum, f. 28. júlí
1923, d. 10. júlí 2011. Systkini
Sóleyjar eru níu; elstur er
Svanur Ingvason, f. 1943 sem
Ólafur Ingvi átti með fyrri
konu sinni, Svanur er giftur
Rán Einarsdóttur. Arndís Erla,
f. 1950, bóndi í Ásgarði í Dala-
sýslu, gift Bjarna Ásgeirssyni.
Sigríður, f. 1951, búsett á
Skagaströnd, gift Jóhanni
Birni Þórarinssyni. Gerður Sal-
óme, f. 1952, bóndi á Syðri-
Reykjum í Miðfirði, var gift
Birni Björnssyni, sambýlis-
maður hennar er Indriði Bene-
diktsson. Lilja Björk, f. 1953,
leikskólakennari í Reykjavík,
gift Guðmundi Magna Þor-
steinssyni. Ólöf, f. 1956, bóndi
Ásu Margréti, f. 28. desember
2009. 3) Sigríður Ása, f. 26.
apríl 1979, sambýlismaður
hennar er Gunnar Reynisson, f.
27. júlí 1974. Barn þeirra er
Vilborg Anna, f. 10. júní 2011.
Áður átti Sigríður Ása Jóhann
Ingva Benediktsson, f. 12. júní
2000.
Sóley ólst upp í Sólheimum í
Laxárdal og nam við Lauga-
skóla í Dalasýslu og við Hús-
mæðraskólann á Varmalandi í
Borgarfirði. Hún fluttist til
Hvammstanga 1975 og stofnaði
heimili með manni sínum og
bjó þar alla tíð síðan. Á
Hvammstanga stundaði Sóley
fjölbreytt störf. Hún starfaði
sem ráðskona í brúar-
vinnuflokki Guðmundar þang-
að til börnin komust á skóla-
aldur, við verslunarstörf í
Kaupfélaginu á Hvammstanga
um árabil, á saumastofunni
Drífu, við hestamiðstöðina á
Gauksmýri, um 10 ára skeið við
íþróttamiðstöðina á Hvamms-
tanga og síðasta árið á sauma-
stofunni Kidka. Sóley stundaði
hestamennsku á Hvammstanga
með eiginmanni sínum, fjöl-
skyldu og vinum og tók virkan
þátt í félagsstarfi Hestamanna-
félagsins Þyts þar alla tíð.
Útför Sóleyjar fer fram frá
Hvammstangakirkju í dag, 19.
október 2012, og hefst athöfnin
kl. 15.
á Breiðavaði í
Eiðaþinghá, maki
hennar er Jóhann
Gísli Jóhannsson.
Eyjólfur Jónas, f.
1958, smiður í
Reykjavík, giftur
Sigurdísi Sjöfn
Guðmundsdóttur.
Guðbrandur, f.
1961, bóndi í Sól-
heimum, giftur
Guðrúnu Jóhanns-
dóttur. Áslaug Helga, f. 1962,
bóndi á Valdasteinsstöðum í
Hrútafirði, maki hennar er
Máni Laxdal.
Sóley giftist 11. desember
1977 Guðmundi Sigurðssyni
brúarsmið á Hvammstanga og
eiga þau þrjú börn: 1) Guð-
mundur Valur, f. 21. maí 1976,
giftur Guðnýju Bergþóru
Tryggvadóttur, f. 10. janúar
1976. Þau eiga þrjú börn,
Hönnu Sóleyju, f. 16. nóvember
2001, Eyrúnu Huld, f. 13. nóv-
ember 2005, og Guðmund
Braga, f. 3. febrúar 2011. 2)
Sigurður Þór, f. 24. nóvember
1977, giftur Hildi Stef-
ánsdóttur, f. 30. október 1979.
Þau eiga þrjú börn, Stefán Pét-
ur, f. 5. september 2003, Ólaf
Ingva, f. 6. desember 2005, og
Þann 9. október síðastliðinn
kvaddi ástkær móðir mín, Sóley
Ólafsdóttir, í hinsta sinn.
Það var bara í lok maí sem
mamma fann að eitthvað var
ekki eins og það átti að vera.
Greiningin lá fyrir mánuði síðar
og eftir stutta en hetjulega bar-
áttu fram á síðasta dag var
þessu lokið.
Mamma var náttúrubarn,
sumarið var hennar tími, hvort
sem það voru kvöldgöngur í
miðnætursólinni í Kirkju-
hvammi, útreiðartúrar, hesta-
ferðir eða silungsveiði í Sól-
heimavötnum. Haustið var líka
uppskerutími í hennar huga,
berjatínslu og ræktun hvers-
konar hafði hún gaman af og var
ávallt tilbúin að deila með sér.
Börnin voru hennar líf og
yndi og alltaf í forgangi, hvort
sem það vorum við systkinin eða
ömmubörnin síðar. Besta amma
í heimi var stundum sagt og átti
vel við. Það var enginn betri en
amma í að byggja heilu Legó-
borgirnar, stofan undirlögð, hún
var amman sem kenndi að
sauma og sníða, amman sem
kenndi þeim að sitja hest, amm-
an sem fór með þau í veiðiferðir
heim í Sólheima. Hún gaf sér
ávallt tíma og alltaf var það á
þeirra forsendum.
Mamma starfaði lengi í
íþróttamiðstöðinni og það átti
líka sérstaklega vel við hana þar
sem hún gat fylgst með, aðstoð-
að og átt í samskiptum við börn
bæjarins. Þegar við systkinin
vorum yngri vann hún í Kaup-
félaginu en færði sig svo um set
á Saumastofuna Drífu þar sem
hæfileikar hennar í sauma- og
prjónaskap fengu vel að njóta
sín. Hvar sem hún starfaði lagði
hún metnað sinn í hlutina og
gerði af heilindum.
Mamma hafði sterka réttlæt-
iskennd og lét ekki misrétti yfir
sig eða aðra ganga. Hún var
fjölhæf en hógvær og alltaf til í
að leggja hönd á plóg.
Þetta er mikill missir fyrir
okkur öll, þið pabbi hafið verið
félagar í leik og starfi í meira en
35 ár og gert allt saman.
Elsku mamma, við fjölskyld-
an viljum þakka fyrir allar ynd-
islegu stundirnar saman og
munum varðveita minningu
þína.
Nú ríkir kyrrð í djúpum dal,
þótt duni foss í gljúfrasal,
í hreiðrum fuglar hvíla rótt,
þeir hafa boðið góða nótt.
Nú saman leggja blómin blöð,
er breiddu faðm mót sólu glöð,
í brekkum fjalla hvíla hljótt,
þau hafa boðið góða nótt.
Nú hverfur sól við segulskaut
og signir geisli hæð og laut,
en aftanskinið hverfur fljótt,
það hefur boðið góða nótt.
(Magnús Gíslason.)
Valur og Bergþóra.
Elsku systir, mér er orða
vant, að þú skulir frá okkur tek-
in svona snemma.
Ég man morgun þann þegar
ég leit þig fyrst augum, þá var
ég rúmlega 4 ára.
Ég sé fyrir mér litla barnið í
vöggunni og mömmu brosandi í
rúminu stolta af fimmtu stelp-
unni sinni sem fæddist 6. maí
klukkan 22.15.
Nú ertu sofnuð systir góð,
samferðamennirnir kveðja.
Ég geymi í hjarta þinn æskuóð,
yngri systkin að gleðja.
Hendi straukst svo hlýtt um kinn,
hlúðir að öllu því veika.
Andi til ljóssins lyftist þinn,
læt þangað hugann reika.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
ástvinir höfði drúpa.
Við munum geyma, þú vita skalt,
við fótskör Drottins krjúpa.
Uppskeruhátíð á himnum þér,
halda sem undan þér gengu.
Kæra systir, þetta er kveðjan frá mér
og sem kraftanna njóta fengu.
(Guðmundur G. Halldórsson.)
Elsku Gúndi, Valur, Siggi,
Sirrý, Ása, barnabörn og
tengdabörn.
Guð varðveiti ykkur á sál og
lífi og styrk, í Jesú nafni. Amen.
Erla.
Ljúfar stundir líða um hugann
leikir, hlaup, söngur, gleði, gaman.
Gott er að eiga minningar
til að hverfa að er
sorgin kveður dyra.
(Lóa)
Elsku systir, ég kveð þig með
miklum söknuði en ég reyni að
ylja mér við ljúfar minningar
æskuáranna, er við þessi stóri
hópur barna vorum að leika
okkur úti við á kvöldin, fram í
myrkur í alls konar leikjum;
fallinni spýtu, stórfiskaleik, yfir
og veiða í pottinn. Þá var oft
mikið hlaupið og hlegið dátt.
Eða allir reiðtúrarnir sem við
fórum á langt norður á heiði,
niður fyrir Selhöfða, niður í
Þúfnanes eða ennþá lengra nið-
ur í dal og alltaf var keppnin um
að fá lánaða bestu hestana og
þeir fengu sko að hlaupa.
Allar veiðiferðirnar okkar
upp í Hólmavatn eða fram í
Laxárvatn. Smalamennskur,
fjárrag, rúningur og manstu
þegar farið var að hausta og við
áttum að hýsa reiðhrossin á
kvöldin, þá reyndum við alltaf
að ná viljugustu hestunum til að
reka hópinn heim á, vorum ber-
bakt með snærisspotta sem
beisli og oftar en ekki leyfðum
við þeim að sleppa, til að fá
lengri reiðtúr. Þóttumst sem
sagt ekki koma þeim inn og
komum því oft ekki heim fyrr en
komið var svartamyrkur. Alltaf
gátum við gefið einhverjar skýr-
ingar á því hvers vegna við vor-
um svona lengi.
Kæra systir, svo skildi leiðir,
þú kynntist yndislegum manni
og þið stofnuðuð ykkar heimili á
Hvammstanga. Eignuðust börn
og buru og mikið fannst mér þið
rík að eiga orðið átta barnabörn.
Kæra systir, þér hefur verið
ætlað hlutverk annars staðar í
lífinu. Takk fyrir samfylgdina,
minning þín lifir og þín verður
sárt saknað.
Elsku Gúndi, Valur, Siggi,
Sirrý, Ása og fjölskyldur. Ég
veit að ykkar missir er mikill,
megi góður Guð styrkja ykkur í
ykkar miklu sorg.
Þegar raunir þjaka mig
þróttur andans dvínar
þegar ég á aðeins þig
einn með sorgir mínar.
Gef mér kærleik, gef mér trú,
gef mér skilning hér og nú.
Ljúfi drottinn lýstu mér,
svo lífsins veg ég finni
láttu ætíð ljós frá þér
ljóma í sálu minni.
(Gísli á Uppsölum)
Ólöf Ólafsdóttir (Lóa).
Sóley systir er sjötta í röð
okkar Sólheimasystkina og sú
fyrsta af okkur til að falla frá.
Fráfall hennar var óvænt, þó
lasleiki hefði hrjáð hana um
tíma. Læknavísindin brugðust
henni að ég tel og er ótrúlegt á
tuttugustu og fyrstu öldinni hve
veikburða þau eru ennþá gagn-
vart þeim vágesti sem krabba-
meinið er. Það eru ekki nema
fjórir mánuðir síðan ljóst varð
hvað hrjáði hana. En svona get-
ur lífið verið óútreiknanlegt.
Aðra stundina heilbrigð og
hraust manneskja og hina liðið
lík. En þetta er víst gangur lífs-
ins og líklega það eina sem við
eigum öll víst frá fæðingu.
Sóley hafði sterkar taugar
heim í Sólheima og var alltaf
boðin og búin til hjálpar, hvort
heldur til að smala, veiða eða
aðstoða við eitthvað annað. Hún
ólst upp við hestamennsku og
stundaði hana alla tíð og veit ég
að það veitti henni marga
ánægjustundina. Gúndi var
hennar traustasti félagi, maki
og vinur og var tamt að nefna
þau ætíð í sama orðinu. Missir
hans og barnanna er mikill.
Takk fyrir alla hjálpina, kæra
systir. Við eigum öll svo mikið
af minningum sem lifa með okk-
ur.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Ég vil votta Gúnda og fjöl-
skyldunni samúð mína og bið
guð að blessa minningu elsku-
legrar systur minnar í hjörtum
okkar allra.
Guðbrandur Ólafsson
Sólheimum
Sóley Ólafsdóttir
V i n n i n g a s k r á
25. útdráttur 18. október 2012
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
7 4 3 6 0
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur)
8 7 4 4 8 4 7 3 5 8 4 7 9 7 7 3 3 3
V i n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
2894 5792 22034 43115 47743 74558
3715 6883 41095 46150 66827 79158
V i n n i n g u r
Kr. 15.000 Kr. 30.000 (tvöfaldur)
1 5 8 9 9 6 4 1 1 6 3 1 2 2 9 0 7 5 3 9 1 0 4 4 9 3 9 7 5 6 7 0 7 7 3 8 2 3
2 4 3 2 9 7 8 0 1 9 2 2 9 2 9 7 3 3 4 1 7 9 3 4 9 8 4 5 5 7 2 2 4 7 5 5 1 2
2 9 3 4 1 2 1 2 3 2 3 0 3 7 3 0 9 1 4 4 3 1 1 0 5 0 3 9 8 6 1 2 2 6 7 5 5 7 9
3 2 0 5 1 2 3 5 4 2 3 5 7 8 3 3 5 8 1 4 3 1 5 6 5 0 7 2 3 6 2 3 0 5 7 5 8 8 6
3 3 3 7 1 2 4 5 2 2 4 1 9 3 3 3 8 5 6 4 5 1 4 4 5 1 3 2 4 6 2 9 4 9 7 6 9 5 3
5 8 8 5 1 3 0 5 4 2 5 0 3 4 3 5 2 3 4 4 5 2 9 9 5 4 1 2 0 6 4 6 1 0 7 7 0 4 3
6 4 9 5 1 4 1 5 2 2 5 8 2 8 3 5 7 4 4 4 7 9 4 2 5 4 7 8 6 6 7 3 9 9 7 7 3 1 7
6 7 7 2 1 4 6 6 3 2 6 0 4 0 3 6 6 6 1 4 8 9 6 1 5 5 3 5 4 7 0 7 2 7 7 8 5 5 6
6 9 4 7 1 4 8 2 3 2 7 9 6 3 3 6 6 6 9 4 9 1 7 2 5 6 3 8 0 7 1 3 9 6 7 8 8 4 9
7 6 8 1 1 5 0 3 5 2 8 8 1 4 3 8 7 8 8 4 9 1 8 1 5 6 4 7 0 7 3 7 3 2 7 9 8 5 8
V i n n i n g u r
Kr. 10.000 Kr. 20.000 (tvöfaldur)
5 2 9 6 1 2 1 7 8 0 4 2 8 2 6 0 3 8 9 9 1 4 7 3 3 6 6 0 9 3 1 7 1 9 0 5
7 1 1 0 3 1 8 1 7 9 2 0 2 9 6 9 8 3 9 1 8 2 4 8 6 4 5 6 0 9 6 9 7 2 3 3 3
2 6 1 1 0 5 7 3 1 7 9 5 8 2 9 7 8 8 3 9 2 3 8 4 8 6 7 2 6 1 9 5 2 7 2 3 6 7
2 9 0 1 0 9 4 7 1 8 0 3 6 3 0 9 6 8 3 9 3 1 2 4 8 8 1 2 6 2 3 6 0 7 2 7 1 5
4 2 1 1 1 5 0 6 1 8 0 6 8 3 1 2 4 0 3 9 4 1 9 4 8 8 1 9 6 2 8 4 6 7 3 8 2 5
5 1 1 1 1 5 5 6 1 8 8 4 6 3 1 3 9 9 3 9 6 8 2 4 9 0 7 7 6 2 9 0 1 7 3 9 5 0
5 3 7 1 1 9 6 0 1 9 5 1 8 3 1 8 6 8 3 9 7 2 2 4 9 0 8 0 6 3 2 6 1 7 4 1 1 4
7 7 4 1 1 9 9 3 1 9 6 5 3 3 2 2 7 6 3 9 7 3 2 4 9 0 8 9 6 3 3 5 7 7 4 3 4 7
1 1 3 3 1 2 3 0 5 1 9 8 0 4 3 2 5 2 6 4 0 0 3 6 4 9 6 2 5 6 3 9 5 6 7 4 6 5 8
1 2 4 1 1 2 3 9 3 1 9 9 1 0 3 2 5 8 2 4 0 2 8 8 5 0 2 1 1 6 3 9 7 2 7 4 7 2 6
1 5 8 8 1 2 7 2 2 1 9 9 5 2 3 2 6 0 8 4 0 6 5 6 5 0 6 9 0 6 3 9 9 1 7 4 7 7 3
2 5 0 8 1 3 2 5 0 2 0 0 1 3 3 2 6 3 3 4 0 6 7 3 5 0 7 6 5 6 4 7 4 5 7 4 9 6 5
2 8 0 4 1 3 2 9 7 2 0 3 5 4 3 2 9 0 5 4 0 8 1 5 5 0 8 1 2 6 4 7 6 2 7 5 9 8 5
4 5 3 0 1 3 6 6 4 2 0 3 7 3 3 3 8 2 7 4 1 4 2 8 5 1 8 4 3 6 4 7 9 2 7 6 7 0 4
5 2 0 4 1 3 9 9 3 2 1 5 0 5 3 3 9 2 1 4 2 3 6 2 5 2 0 8 5 6 5 0 2 7 7 6 8 0 6
5 2 8 5 1 4 5 3 7 2 1 8 8 0 3 4 0 2 1 4 2 4 8 0 5 2 7 0 1 6 5 7 2 4 7 7 0 0 7
5 4 5 7 1 4 6 5 4 2 2 1 6 9 3 4 1 0 9 4 2 9 6 0 5 3 4 8 6 6 6 4 4 2 7 7 1 0 7
5 5 6 8 1 4 8 9 2 2 3 2 1 4 3 4 3 2 4 4 3 7 7 9 5 3 9 3 8 6 7 5 3 3 7 7 7 9 5
5 9 9 4 1 5 0 9 6 2 3 7 7 6 3 4 4 3 3 4 3 8 9 2 5 4 5 1 9 6 7 8 5 1 7 8 2 7 9
6 6 0 5 1 5 1 3 4 2 3 9 6 9 3 5 3 5 9 4 4 5 1 7 5 4 5 9 2 6 7 9 8 5 7 8 5 1 9
6 6 4 6 1 5 3 5 1 2 4 2 9 1 3 5 4 5 5 4 4 6 1 7 5 5 0 7 8 6 8 1 1 6 7 8 6 7 0
7 3 2 4 1 6 0 5 9 2 5 2 4 0 3 5 4 8 4 4 5 1 5 5 5 6 1 6 1 6 8 7 4 8 7 8 6 9 3
7 6 3 1 1 6 5 7 2 2 5 7 0 4 3 6 0 3 8 4 5 6 9 5 5 6 6 2 0 6 8 9 9 2 7 8 6 9 8
7 8 9 1 1 6 7 6 2 2 5 9 1 1 3 6 2 7 7 4 6 0 2 3 5 6 6 4 9 6 9 0 5 8 7 8 9 5 6
8 8 7 9 1 6 9 9 6 2 6 1 9 5 3 6 7 5 1 4 6 2 9 2 5 6 7 5 5 6 9 5 6 7 7 9 5 3 1
9 0 4 1 1 7 2 6 9 2 6 2 6 5 3 6 9 6 9 4 6 4 1 0 5 7 4 5 1 6 9 9 6 7 7 9 9 6 6
9 3 6 7 1 7 3 8 6 2 6 2 9 7 3 6 9 9 9 4 6 4 1 7 5 7 6 0 4 7 0 3 5 8
9 4 5 9 1 7 4 4 0 2 6 5 5 8 3 7 5 1 0 4 6 6 0 3 5 7 9 1 8 7 0 8 2 6
9 4 6 3 1 7 5 4 6 2 6 9 6 1 3 7 5 3 2 4 6 9 8 5 5 8 0 3 0 7 0 9 7 8
9 4 8 5 1 7 5 4 7 2 6 9 8 9 3 7 8 7 8 4 7 0 8 1 5 8 9 8 1 7 1 2 4 6
9 5 0 4 1 7 5 7 3 2 7 0 7 8 3 8 5 9 7 4 7 2 0 5 5 9 5 7 6 7 1 3 6 4
9 6 0 6 1 7 7 0 0 2 7 9 8 2 3 8 9 2 2 4 7 2 7 6 6 0 5 9 1 7 1 7 4 6
Næstu útdrættir fara fram 25. okt & 1. nóv 2012
Heimasíða á Interneti: www.das.is
251658240
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Frá eldri borgurm í Hafnarfirði.
Þriðjudaginn 16 oktober var spilað
á 16 borðum. Úrslit urðu þessi í N/S
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 381
Örn Einarsson – Óskar Ólafsson 375
Ragnar Björnsson – Oddur Halldórss. 362
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 353
A/V
Ólafur Ólafsson – Anton Jónsson 391
Sveinn Snorras. – Þorvaldur Þorgrímss. 375
Skarphéðinn Lýðss. – Stefán Ólafsson 372
Knútur Björnss. – Jón Svan Sigurðss. 367
Föstudaginn 12. október var spil-
að á 17 borðum. Ásgrímur og Oddur
náðu mjög góðu skori, 67,31%.
Úrslit urðu þessi í N/S:
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 382
Bragi Björnss. – Bjarnar Ingimars 377
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 377
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddss. 373
A/V:
Ásgr. Aðalsteinss. – Oddur Halldórss. 420
Sverrir Gunnarss. – Kristrún Stefánsd. 388
Knútur Björnss. – Sæmundur Björnss. 370
Aðalh. Torfad. – Ragnar Ásmundss. 369
Staðan í stigakeppninni er þessi.
Bjarnar Ingimars 155
Bragi Björnsson 155
Erla Sigurjónsdóttir 122
Jóhann Benediktsson 122
Oddur Jónsson 120
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
mbl.is
alltaf - allstaðar