Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 42

Morgunblaðið - 19.10.2012, Page 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012 Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is Gæði og glæsileiki á góðu verði Góðar lausnir - frá Profilitec Maður hefur smápartí, fámennt og góðmennt heima. Þettaverður bara lítið og þægilegt. Ég vil frekar hafa fátt oggott fólk í kringum mig. Það er voða hentugt að eiga af- mæli á föstudegi, það hittist vel á,“ segir Katla Hildardóttir, sem fagnar þrítugsafmæli sínu í dag, um það sem kvöldið ber í vændum. Katla, sem er fædd og uppalin á Akureyri, starfar sem hjúkrunar- fræðingur á geðdeild sjúkrahússins í bænum. Hún segir það hafa verið geðhjúkrunina sem heillaði hana við hjúkrunarfræðina. Katla útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur árið 2011 en áður hafði hún lokið sjúkraliðanámi árið 2004. Alls hefur hún starfað í heilbrigðis- kerfinu í tólf ár en hún byrjaði að vinna innan þess árið 2000. „Ég kann mjög vel við mig í þessu. Kosturinn er að ég er að vinna á mínu áhugasviði sem er að hjálpa fólki,“ segir Katla. Fyrir utan vinnu tekur Katla stöku sinnum að sér að kenna tíma í fit pilates í heilsuræktarstöðinni Átaki á Akureyri. „Ég tek tíma og tíma. Ég lærði þetta og önnur líkamsræktarkerfi á stuttu námskeiði sem ég tók. Maður reynir að vera í heilbrigðinu,“ segir hún sposk. Nú er veturinn að taka völdin og vinsælt er hjá Akureyringum sem öðrum að skíða í Hlíðarfjalli. Sjálf segist Katla ekkert vera á skíðum. „Maður skammast sín hálfpartinn þegar maður er með fjall- ið beint fyrir framan sig. Þetta er alltaf á stefnuskránni,“ segir hún. Katla Hildardóttir er þrítug í dag Áfangi Katla segir engan einn afmælisdag eftirminnilegri en annan. „Er það ekki alltaf stórmerkilegt að hafa orðið árinu eldri?“ Vill hafa fáa en góða í kringum sig B irgir fæddist á Þrasa- stöðum í Fljótum og ólst þar upp til sjö ára aldurs, var á Minna- holti í Fljótum næstu átta árin og lauk búfræðiprófi frá Hólum 1956. Birgir vann við tilraunahúið á Hesti í Borgarfirði 1958-60, var eitt ár hjá Jóni á Reykjum í Mosfells- sveit, starfaði við kúabú Rafmagns- veitu Reykjavíkur á Úlfljótsvatni 1963-65 er búið var lagt af og var þar ráðsmaður til 1977 auk þess sem hann var sjálfur með fjárbúskap. Birgir var bóndi í Litla-Ármóti 1977-84, starfaði hjá Sláturfélagi Suðurlands í tvö ár og var fanga- vörður á Litla-Hrauni 1988-2006. Þenur ennþá nikkuna Birgir lék fyrir dansi á harmon- ikku í Fljótunum á unglingsárunum og í Borgarfirðinum ásamt tveimur Birgir Hartmannsson, hagyrðingur og harmónikkuleikari – 75 ára Barnabörnin Birgir og Lára, kona hans, ásamt fjölmennum og fríðum hópi barnabarna sinna. Gömlu dansarnir að deyja út og lögin líka Hjónin Birgir, ásamt eiginkonu sinni, Láru Bjarnadóttur sjúkraliða. Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Akureyri Valgerður Árný fæddist 2. des- ember kl. 10.45. Hún vó 3.774 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Þorgerð- ur Helga Árnadóttir og Ingi Rafn Inga- son. Nýir borgarar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.