Morgunblaðið - 19.10.2012, Síða 43
vinnufélögum sínum á Hesti, enda
nefndir Bikkjubandið. Hann lærði
að lesa og spila eftir nótum við Tón-
listarskólann á Selfossi er hann var
fimmtugur og lék þá á böllum og
nokkuð reglulega fyrir matargesti á
veitingahúsinu Fjöruborðinu á
Stokkseyri. Síðan hefur hann leikið
fyrir eldri borgara við ýmis tilefni.
En er harmonikkan á undanhaldi?
„Nei. Ekki hljóðfærið sem slíkt.
En gömlu dansarnir eru að hverfa,
skottís, polki, vínarkruss og mars-
úrka, og með þeim hverfa þessi
gömlu skandinavísku lög.“
Hestamennska og hagmælska
Þú ert þekktur hagyrðingur.
„Ja, ég var opinberlega gerður að
hagyrðingi þegar Ómar fór um land-
ið með þættina Hvað heldurðu? Þá
var ég fenginn til að koma þar fram
og hef víst verið hagyrðingur síðan.
Ég hef sent frá mér tvær bækur
með lausavísum, Gatan syngur
gleðilag, útg. 1989, og Hjá mér oft er
vísnavon, útg. 2002. Svo er ég í
kvæðamannafélaginu Árgalanum.“
Og þú hefur fleiri áhugamál.
„Já ég hef alltaf haldið hesta,
stundaði tamningar um skeið og hef
alltaf reynt að komast í einnar til
tveggja vikna hestaferðir yfir há-
lendið, vestanvert, á hverju sumri.
Ég hef farið fjölda ferða yfir Kjöl,
yfir Kaldadal og Arnarvatnsheiði og
eins ýmsar fjallabaksleiðir austur í
Skaftafellssýslu.
Svo hef ég samið töluvert af lög-
um sem ég er að taka saman og ætla
mér að koma á diska á næstunni. Ég
hef alla vega aldrei haft meira að
gera en eftir að ég hætti að vinna.“
Fjölskylda
Eiginkona Birgis er Lára Bjarna-
dóttir, f. 2.5. 1940, húsfreyja og
sjúkraliði. Hún er dóttir Bjarna
Magnússonar, sem var bóndi á
Hraðastöðum í Mosfellsdal, og Þor-
valdínu Magnúsdóttur húsfreyju.
Dóttir Birgis frá því áður er Rósa,
f. 3.6. 1958, húsfreyja á Grenivík en
maður hennar er Gunnlaugur Lúth-
ersson og á hún fjóra syni.
Börn Birgis og Láru eru Hall-
grímur, f. 23.11. 1961, verslunar-
maður á Selfossi, og á hann þrjú
börn; Bjarni, f. 10.3. 1968, bryti í
Skálholti en kona hans er Lára
Bergljót Jónsdóttir og eiga þau þrjú
börn; Margrét, f. 30.6. 1970, hótel-
stýra við Ketilsstaðaskóla í Mýrdal
en maður hennar er Jóhann Vignir
Hróbjartsson og eiga þau þrjú börn;
Kolbrún, f. 12.4. 1972, líffræðingur
og lífeindafræðingur á Selfossi og á
hún tvö börn; Ingibjörg, f. 10.4.
1975, tónmenntakennari og flautu-
leikari á Stokkseyri en maður henn-
ar er Vernharður Reynir Sigurðsson
og eiga þau fjögur börn; Guðný, f.
10.4. 1975, leikskólakennari á Sel-
fossi en maður hennar er Guðfinnur
Harðarson og eiga þau fjögur börn.
Systkini Birgis eru Erna, f. 1935,
húsfreyja í Kópavogi; Guðmundur, f.
1936, lengst af lögregluþjónn í
Reykjavík og á Selfossi; Kári, f.
1940, sjómaður í Grindavík; Halldór,
f. 1942, starfsmaður við Sólheima í
Grímsnesi; Grétar, f. 1949, sjómaður
í Kópavogi; Ingibjörg, f. 1952, hús-
freyja á Þórðarstöðum í Fnjóskadal.
Foreldrar Birgis: Hartmann
Kristinn Guðmundsson, f. 12.4. 1912,
d. 29.10. 1990, bóndi á Þrasastöðum,
og k.h., Kristín Halldórsdóttir, f.
27.2. 1916, d. 28.12. 2007, húsfreyja.
Úr frændgarði Birgis Hartmannssonar
Birgir
Hartmannsson
Hólmfríður Björnsdóttir
húsfr. á Hólum
Jósef Björnsson
skólastj. og alþm. á Hólum
Ingibjörg Jósefsdóttir
húsfr. í Garðakoti
Halldór Gunnlaugsson
b. í Garðakoti í Hjaltadal
Kristín Halldórsdóttir
húsfr. á Þrasastöðum
Sigurlaug Jónsdóttir
frá Hreppsendaá í Ólafsfirði
Gunnlaugur Guðmundsson
b. á Stafnhóli í Deildardal
Sigríður Jónsdóttir
húsfr. frá Sléttu
Jóhann Magnússon
b. á Sléttu í Fljótum
Guðný Jóhannsdóttir
húsfr. á Þrasastöðum
Guðmundur Bergsson
b. á Þrastarstöðum
Hartmann Guðmundsson
b. á Þrasastöðum í Fljótum
Katrín Þorfinnsdóttir
húsfr. á Þrasastöðum
Bergur Jónsson
ættfaðir Þrasastaðaættar
Harmonikkuleikarinn Birgir, lík-
legast að spila Hreðarvatnsvalsinn.
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 2012
Heildsöludreifing: ACT ehf, Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, sími 577 2150
60 ára reynsla á Íslandi
George Foreman vinsælu
heilsugrillin komin í verslanir
Benjamín H.J. Eiríksson, hag-fræðingur og bankastjóri,fæddist í Hafnarfirði 19.10.
1910. Hann var sonur Eiríks Jóns-
sonar, bónda óg sjómanns í Hafnar-
firði, og k.h. Solveigar Guðfinnu
Benjamínsdóttur.
Benjamín lauk stúdentsprófi frá
MR 1932, nam í Berlín, Stokkhólmi
og Moskvu, lauk prófum í slavn-
eskum málum og bókmenntum í
Uppsölum, fil.kand.-prófi í hagfræði
og tölfræði frá Stokkhólmsháskóla,
MA-prófi í hagfræði og stjórnmála-
fræði við University of Minnesota í
Bandaríkjunum og Ph.D.-prófi í
hagfræði frá Harvard University
1946.
Benjamín var starfsmaður Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins 1946-51,
ráðunautur ríkisstjórnar Íslands
1951-53 og bankastjóri Fram-
kvæmdabanka Íslands 1953-65. Þá
sagði hann starfi sínu lausu og sinnti
ekki opinberum störfum eftir það.
Benjamín var sá sérfræðingur,
ásamt Ólafi Björnssyni prófessor,
sem ráðlagði róttækustu framfarir í
efnahagsmálum hér á landi, við upp-
haf Viðreisnarstjórnarinnar. Nokkr-
um árum áður höfðu þeir skilað
skýrslum og sambærilegum til-
lögum sem ekki var þá hrint í fram-
kvæmd.
Ævi Benjamíns var afar viðburða-
rík og samofin ýmsum stór-
viðburðum aldarinnar. Hann varð
vitni að fullveldistökunni við Stjórn-
arráðshúsið 1. desember 1918, stóð
nokkra metra frá Hitler við valda-
töku hans 1933, horfði á þinghúsið í
Berlín brenna sama ár, sá Stalín í
Moskvu 1936 og missti unnustu sína,
Elviru Hertzsch, og kornunga dótt-
ur þeirra, Sólveigu Erlu, í klærnar á
sovésku leyniþjónustunni, en þaðan
áttu þær ekki afturkvæmt. Halldór
Kiljan Laxness var þá staddur á
heimili þeirra og varð vitni að hand-
töku þeirra mæðgnanna, eins og
fram kom í riti Laxness, Skálda-
tíma, mörgum árum síðar. Ævisaga
Benjamíns, Benjamín Eiríksson – í
stormum sinna tíða, rituð af Hann-
esi Hólmsteini Gissurarsyni, kom út
1996. Benjamín lést 23.7. 2000.
Merkir Íslendingar
Benjamín
H.J. Eiríksson
90 ára
Halldóra Sigurjónsdóttir
85 ára
Jón Björgvin Stefánsson
Rósmundur Stefánsson
80 ára
Sigríður Jóhannsdóttir
75 ára
Auður Ketilsdóttir
Dóra M. Ingólfsdóttir
70 ára
Einar Guðmundsson
Grímur Heiðar Brandsson
Guðrún Fríða
Júlíusdóttir
Hjörtur Guðmundsson
Sigríður Jóhanna
Guðmundsdóttir
Sigrún Guðný
Guðmundsdóttir
Örnólfur Þorleifsson
60 ára
Gréta Kjartansdóttir
Guðbjörg Jóhannsdóttir
Guðmundur Halldórsson
Gunnar Jónsson
Halldór Ágúst Jóhannsson
Izudin Vajzovic
Jóhann Thoroddsen
Kristín Þorbergsdóttir
Ólafur Bergmann
Bjarnason
Rósa Guðný
Bragadóttir
Sigríður Gísladóttir
Steinar Harðarson
Valgerður K.
Guðlaugsdóttir
50 ára
Alfa Kristjánsdóttir
Ari Geir Emilsson
Birgir Blöndal Birgisson
Einar Sigmundsson
Elín Sigurbergsdóttir
Hafsteinn Bao Duong
Hrafnhildur Markúsdóttir
Ingibjörg Tómasdóttir
Jóhanna Vigdís
Hjaltadóttir
Magnús Sigurðsson
Magnús Skúlason
Ragnheiður Margrét
Júlíusdóttir
Sigurður Magnússon
Sonia Estrada Cagatin
Steina Ósk Gísladóttir
Þórarinn Garðarsson
40 ára
Anna Borowska
Baldvin Aldar
Ingibergsson
Charlane Rene Brady
Dagbjartur Jónsson
Edda Herdís
Guðmundsdóttir
Jenný Björk
Guðmundsdóttir
Konstantinos Tintos
María Rún Hafliðadóttir
Nichole Leigh Mosty
Sturla Þórðarson
30 ára
Árni Gísli Árnason
Berglind Bára
Ríkharðsdóttir
Droplaug Heiða
Sigurjónsdóttir
Felix Mbong-Enongene
Guðmundur Bjarki
Þorgrímsson
Hrafnhildur Jóhannesdóttir
Katla Hildardóttir
Pawel Taudul
Sigurður Geirsson
Sigurður Tómas
Guðmundsson
Tomasz Szablowski
Til hamingju með daginn
60 ára Jóhannes er hrl.
og hefur rekið eigin lög-
mannsstofu frá 1981.
Maki: Kolbrún K. Karls-
dóttir, f. 1952, fulltrúi.
Börn: Ásgeir, f. 1980, hdl/
LLM, og Bergrós Kristín, f.
1985, læknir. Stjúpsonur:
Karl Reynir Einarsson, f.
1972, geðlæknir.
Foreldrar: Ásgeir Jak-
obsson, f. 1919, d. 1996,
rithöfundur, og Bergrós
Jóhannesdóttir, f. 1927, d.
1996, verslunarmaður.
Jóhannes
Ásgeirsson
40 ára Róbert ólst upp á
Berunesi í Berufirði, lauk
sveinsprófi í matreiðslu
og rekur Fjöruborðið á
Stokkseyri.
Maki: Gréta Guðnadóttir,
f. 1976, endurskoðandi
hjá KPMG.
Synir: Vilberg, f. 2005;
Guðni, f. 2006.
Foreldrar: Ólafur Egg-
ertsson, f. 1943, bóndi og
fyrrv. skólastjóri á Beru-
nesi, og Anna Antoníus-
ardóttir, f. 1943, húsfr.
Róbert
Ólafsson
30 ára Sigurður er sölu-
maður á fyrirtækjasviði
hjá Vodafone og stundar
nám í sálfræði við HA
Maki: Elva Mjöll Þórs-
dóttir, f. 1983, skrif-
stofumaður hjá VB Vöru-
meðhöndlun.
Dóttir: Emilía Hrönn, f.
2010.
Foreldrar: Guðrún Elva
Arngrímsdóttir, f. 1958,
kennari, og Sigurður Þorri
Sigurðsson, f. 1959,
tryggingaráðgjafi.
Sigurður Atli
Sigurðsson