Morgunblaðið - 19.10.2012, Síða 52
FÖSTUDAGUR 19. OKTÓBER 293. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Nöfn vændiskaupenda birt
2. Fólk fær létt sjokk
3. Faðirinn óhuggandi eftir ...
4. Ashton ástfanginn og snýr ...
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Íslenskar stuttmyndir verða í
brennidepli á alþjóðlegu stuttmynda-
hátíðinni Interfilm í Berlín sem hefst
13. nóvember nk. og lýkur fimm dög-
um síðar. Myndirnar verða á dagskrá
sem nefnist Focus on Iceland og
verður henni skipt í tvo flokka og sjö
myndir sýndar í hvorum. Meðal
mynda á dagskrá er Bræðrabylta eft-
ir Grím Hákonarson.
Íslenskar stuttmyndir
í brennidepli í Berlín
Fjórar þunga-
rokkssveitir: Wist-
aria, Angist, Aet-
erna og Blood
Feud, koma fram
á tónleikum á
Gamla Gauknum í
kvöld sem hefjast
kl. 22. Yfirskrift
tónleikanna er
Einhver andskotans læti og í tilkynn-
ingu eru þeir sem viðkvæmir eru fyrir
miklum hljóðstyrk hvattir til að halda
sig heima.
Mikil læti á Gamla
Gauknum í kvöld
Fleiri hafa nú séð frönsku kvik-
myndina Intouchables hér á landi en
nýjustu kvikmyndina um Leðurblöku-
manninn, The Dark
Knight Rises. Engin
mynd hefur hlotið
viðlíka aðsókn á árinu
og sú franska, ríflega
64 þúsund miðar
hafa verið seldir
á hana en um
63.500 á The
Dark Knight
Rises.
Intouchables með
mesta aðsókn allra
Á laugardag og sunnudag Austan 5-13 m/s og stöku skúrir
syðst, annars hæg austlæg eða breytileg átt og bjartviðri. Hiti 1 til
6 stig að deginum, en í kringum frostmark í innsveitum.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan 8-13 og smáskúrir við S-ströndina,
annars hægari vindur og bjart veður, en dálítil él austast. Hlýnandi,
hiti 2 til 7 stig síðdegis.
VEÐUR
Afturelding nældi sér í sín
fyrstu stig í N1-deild karla í
handknattleik í gærkvöld
þegar liðið gerði sér lítið
fyrir og lagði lið Akureyrar,
28:23, og það á heimavelli
norðanliðsins. Þrátt fyrir
sigurinn eru Mosfellingar í
botnsæti deildarinnar með
2 stig en Akureyringar,
sem töpuðu sínum fyrsta
leik í deildinni á tímabilinu,
eru í öðru sætinu með 7
stig. »2
Fyrstu stigin hjá
Aftureldingu
Björgvin Páll Gústavsson, landsliðs-
markvörður í handknattleik, segir að
veikindin sem hann glímir við þessa
dagana séu það versta sem hann hef-
ur lent í á sínum ferli. „Ég veit ekki
hversu lengi ég verð að jafna
mig,“ segir Björgvin í sam-
tali við Morgunblaðið og el-
ur von um að geta spilað
með landsliðinu í
undankeppni
EM um mán-
aðamótin.
„Það mun
skýrast í
næstu viku
þegar ég fer
að æfa með lið-
inu á nýjan
leik.“ »1
„Veit ekki hversu lengi
ég verð að jafna mig“
Edda Garðarsdóttir, landsliðskona í
fótbolta, segir að leikirnir við Úkraínu
séu þeir mikilvægustu sem kvenna-
landsliðið hefur spilað. Liðið er nú í
Sevastopol þar sem fyrri leikur þjóð-
anna fer fram á morgun. „Allir sem
koma nálægt þessu verkefni eru fullir
sjálfstrausts og hafa trú á því að okk-
ur takist að vinna þetta einvígi,“ seg-
ir Edda. »4
Mikilvægustu leikir
landsliðsins
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Horfur eru á að fleiri íslensk börn í
Noregi njóti fermingarfræðslu í vet-
ur en í fyrravetur, að sögn Ingu Er-
lingsdóttur, starfsmanns íslenska
safnaðarins í Noregi. Hún annast
skráningu fermingarbarnanna.
Nú stendur yfir aðalskráningar-
tíminn fyrir fræðsluna en að feng-
inni reynslu má búast við því að
börnunum fjölgi eftir því sem á líður.
Inga nefndi til dæmis að í september
í fyrra hefði 41 barn verið skráð í
fermingarfræðsluna en þau urðu 64
sem luku náminu. Nú í september
var búið að skrá 54 börn í fermingar-
fræðslu. „Það stefnir í að þau verði
enn fleiri í ár en þau voru í fyrra,“
sagði Inga. Ástæðan er m.a. sú að
Íslendingar flytja til Noregs allt árið
með fjölskyldur sínar.
Flest börnin eru fermd af íslensk-
um prestum. „Þetta eru mikið börn
sem eru nýkomin og einfaldara fyrir
þau að fara í gegnum fermingar-
fræðsluna á sínu tungumáli en á
norsku sem þau eru rétt að byrja að
læra,“ sagði Inga. Börnin kynnast
íslenskum jafnöldrum í fermingar-
fræðslunni og geta deilt með þeim
reynslu sinni af að vera nýkomin til
framandi lands. Uppistaðan í ferm-
ingarfræðslunni er um tvær helgar, í
lok september og í byrjun maí, þeg-
ar íslensk börn alls staðar að úr Nor-
egi hittast. Börnin safnast þá saman
í Ósló og fara með rútu til Uddevalla
í Svíþjóð þar sem þau hitta um tutt-
ugu íslenska jafnaldra sína frá Sví-
þjóð og Danmörku.
Inga sagði að íslenski söfnuðurinn
í Noregi fengi sóknargjöld þeirra
sem eru í íslensku þjóðkirkjunni frá
norska ríkinu. Það gerði söfnuðinum
kleift að greiða ferðakostnað ís-
lensku fermingarbarnanna hvaðan-
æva úr Noregi til að taka þátt í
fermingarfræðslunni.
Íslensku börnin í Noregi láta svo
fermast í ýmsum kirkjum, ýmist í
Noregi eða á Íslandi. Nokkuð mörg
fara til Íslands og láta fermast þar,
oft í sínum gömlu sóknarkirkjum
með sínum gömlu félögum. Einnig
eru mörg fermd í athöfn sem ís-
lenski presturinn í Noregi er með á
Íslandi um mánaðamót júní og júlí.
Inga sagði oft auðveldara fyrir fjöl-
skyldurnar að fara með fermingar-
barninu til Íslands en að allir ætt-
ingjarnir kæmu til Noregs.
Íslensku söfnuðirnir
Íslenskur prestur þjónar ís-
lenska söfnuðinum í Noregi
(kirkjan.no). Einnig er safn-
aðarstarf í Svíþjóð og íslenskur
prestur (kirkjan.se) sem starfar
þar. Í Danmörku er íslenskur
söfnuður í Kaupmannahöfn en þar
er ekki íslenskur prestur um þessar
mundir. Á heimasíðu íslenska safn-
aðarins í Danmörku (kirkjan.dk) eru
margar myndir frá mótum íslenskra
fermingarbarna á Norðurlöndunum.
Læra kverið á íslensku í Svíþjóð
Íslensk börn frá Noregi, Danmörku
og Svíþjóð saman í fermingarfræðslu
Ljósmynd/Lárus Guðmundsson
Fermingarfræðsla Íslensk börn frá Noregi, Danmörku og Svíþjóð hittust í Svíþjóð í haust til að fara í fermingarfræðslu. Annað námskeið er í vor.
Í Landakirkju í Vestmannaeyjum
verða 77 börn í fermingar-
fræðslu í vetur eða svipaður
fjöldi og íslensku börnin sem
sækja fermingarfræðslu í
Svíþjóð. Í Eyjum búa um
4.200 manns. Í Hjalla-
sókn í Kópavogi búa um
6.200 manns, þar af
nærri 4.600 í þjóð-
kirkjunni og þar eru
skráð 84 fermingar-
börn í vetur. Á Akra-
nesi búa um 6.600
manns og eru 100
börn skráð í
fermingarfræðslu
þar í vetur.
Svipað og
í Eyjum
SAMBÆRILEGUR FJÖLDI
FERMINGARBARNA