Morgunblaðið - 06.11.2012, Side 10
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Hæðasmára 6
201 Kópavogi
www.lifandimarkadur.is
Fákafeni 11
108 Reykjavík
Nýtt
Argan olían frá NO
W
Mjög rakagefandi olía sem lætur
hárið glansa og gefur hársverði, húð
og naglaböndum raka til að viðhalda
heilbrigði. Argan olían er 100% hrein
,
lífræn og rík af fitusýrum
–Olía sem allir þurfa að eiga.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
É
g er spennt og hlakka
til að takast á við pól-
inn. Það er kannski
ekkert auðvelt að
segja bless en brottför
og kveðjustund eru líka upphaf að
einhverju öðru,“ segir Vilborg Arna
Gissurardóttir sem lagði af stað í
leiðangur síðastliðinn föstudag þeg-
ar hún flaug af landi brott til að
freista þess að verða fyrsta íslenska
konan til að ganga á suðurpólinn.
„Ég hef alltaf verið sterklega tengd
náttúrunni. Þegar ég var barn þá
langaði mig mest í heimi til að eiga
gönguskó. Þó ég sé fædd í Reykja-
vík þá var ég nánast öll sumur upp-
vaxtaráranna ýmist hjá ömmu og
afa á Rauðasandi eða á
Kirkjubæjarklaustri. En það var
ekki fyrr en fyrir tíu árum sem ég
fór að gera eitthvað meira með
þennan áhuga, en þá gekk ég á
Hvannadalshnúk í brjáluðu veðri og
við mjög erfiðar aðstæður.“
Kunni ekki að lesa kort og
kunni ekki á áttavita
Á þeim tíma bjó Vilborg á
Klaustri og hún segist hafa fundið
fyrir sterku aðdráttarafli jöklanna.
„Við vinkona mín ákváðum með
stuttum fyrir vara að fara í þessa
göngu á Hvanndalshnúk. Við áttum
ekkert til fararinnar, vorum ekki í
réttum fatnaði og vorum með glat-
aða bakpoka. Ég hafði skotist í bæ-
Andlegi þátturinn
lykilatriði úti á ísnum
Hún ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Hún hefur göngu á suðurpól-
inn í dag. Leiðin er 1.140 km löng og ekki ólíklegt að hún mæti miklum mótvindi
og að skíðafærið verði erfitt. Kuldinn á suðurskautinu getur farið allt niður í
-40°C. Hún verður með tvo sleða fyrir útbúnað og vistir sem vega 100 kg í upphafi
ferðar. Hún þarf að ganga rúmlega 22 km á dag til að ná markmiði sínu að klára
gönguna á 50 dögum. Vilborg Arna Gissurardóttir er fyrsta íslenska konan sem
gerir atlögu að suðurpólnum.
Inni í tjaldi Gott er að hvílast inni í tjaldi og sinna skriftum og öðru.
Grænlandsganga Vilborg og Peter sem skutlaðist með hana og Valdimar
Halldórsson upp að Grænlandsjökli þar sem þau hófu gönguna.
Fyrir þá sem aldrei hafa prófað að
fara á skauta er um að gera að nýta
þau skautasvell sem í boði eru til að
byrja að stunda þá íþrótt sér til
ánægju og yndisauka. Á vefsíðunni
wikihow.com/Ice-Skate eru nokkur
haldgóð ráð, bæði fyrir byrjendur og
lengra komna. Í þessu eins og öðru
skapar æfingin meistarann og til að
ná tökum á tækninni þarf að gefa sér
tíma til að renna sér aftur og aftur á
svellinu. Það þarf líka að æfa sig í því
að detta og í því að standa upp á
skautunum. Flestir fullorðnir eiga
skemmtilegar minningar af skauta-
svellinu frá bernskuárunum, en það
er engin ástæða til að hætta að renna
sér á skautum þó fólk verði fullorðið.
Það er líka kjörin leið til að eiga sam-
an gæðastundir með börnunum að
renna sér saman á skautum. Og leyfa
ungviðinu liðuga líka að leiðbeina
stirðum foreldrum. Góða skemmtun!
Vefsíðan www.wikihow.com/Ice-Skate
Morgunblaðið/Kristinn
Fjör á svellinu Allir ættu að gefa sér tíma til að fara á skauta annað slagið.
Að skella sér á skauta er gaman
Powerade-vetrarhlaupin eru haldin
annan fimmtudag í mánuði, frá októ-
ber fram í mars. Næsta hlaup er núna
á fimmtudaginn 8. nóvember.
Hlaupin byrja klukkan 20 við Ár-
bæjarlaugina og sala þátttökuseðla
hefst hálftíma fyrir hlaup í anddyri
laugarinnar. Þátttökuseðillinn er
fylltur út skilmerkilega, hlaupið með
hann og hann síðan afhentur tíma-
vörðum þegar komið er í mark.
Hægt er að komast hjá biðröð með
því að kaupa þátttökuseðla í forsölu
hjá Afreksvörum í Glæsibæ. Hlaupa-
hópar geta keypt þátttökuseðla í
magnkaupum með afslætti.
Endilega…
…takið þátt í
vetrarhlaupi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hlaup Líka góð yfir vetrartímann.
Næstu helgi, 9-11. nóvember, verður
Icelandic Fitness and Health Expo
2012 í Hörpu. Þar verður mikil
íþróttadagskrá, meðal annars verða
aflraunakeppnin Jón Páll Sigmarsson
Classic, Evrópumeistarmót WBFF í
fitness, kraftlyftingar, boot camp,
cross fit og jiu jitsu. Heimsfrægar
stjörnur eins og Ingrid Romero og
Dexter Jackson IFBB Pro verða gestir
í ár og einnig verður vörusýning þar
sem allt sem viðkemur bættri heilsu
og heilbrigði verður á boðstólum.
Í tengslum við sýninguna verður
svokallað „5K Pump & Run“-hlaup
sunnudaginn 11. nóvember. Keppnin
gengur út á það að lyfta allt að lík-
amsþyngd sinni (mismunandi eftir
flokkum og kyni) í bekkpressu áður
en 5 km eru hlaupnir. Hver lyfta gefur
lækkun um 30 sekúndur á 5 km tím-
anum þó að hámarki 30 lyftur.
Hægt er að skrá sig í „5K Pump &
Run“ og taka bæði bekkpressuna og
hlaupið en einnig er hægt að taka
bara þátt í 5 km hlaupinu. Um þetta
er hægt að velja í skráningarferlinu.
Skráning fer fram á hlaup.is.
Fjölbreytt dagskrá á Icelandic Fitness and Health Expo 2012
Aflraunakeppni kennd við
Jón Pál Sigmarsson
Afreksmaður Jón Páll Sigmarsson tekur hér hvolpa tvo léttilega á arma sína.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.