Morgunblaðið - 06.11.2012, Blaðsíða 11
Ein úti á ísnum Gangan yfir Grænlandsjökul tók 29 daga, þar af þurftu þau að bíða af sér óveður í fjóra daga.
inn til að kaupa mér gönguskó og
valdi þá sem mér fannst flottastir en
þeir voru alltof litlir og ekki vatns-
heldir. En samt kveikti þessi ganga
algerlega á fjallamennskunni hjá
mér og ég keypti mér skömmu síðar
fjallahjól og fór í fyrstu hjólaferðina
mína, alein, af því enginn komst
með mér. Ég var í fjóra daga í
hjólaferðalagi um Sveinstinda og
Skæling, en ég kunni ekki að lesa
kort og kunni ekki á áttavita. En
samt fann ég að ég átti heima á
þessum vettvangi,“ segir Vilborg
sem hefur unnið sem leiðsögumað-
ur, bæði í jöklaferðum og öðrum
göngum og hún gekk líka yfir
Grænland í vor.
Allir með sitt rétta andlit
Hún segir það hafa marga kosti
að ganga eða hjóla einn á fjöllum.
„Þá hefur maður frelsi til að gera
hlutina algerlega á eigin forsendum
og fara á sínum hraða, fá sér að
borða þegar maður er svangur,
tjalda þegar maður er þreyttur og
halda áfram þegar maður er í stuði.
Og maður kynnist sjálfum sér mjög
vel í slíkum ferðum, enda hangir
maður þá bara með sjálfum sér. Það
er ómögulegt að fara einn í langt
ferðalag án þess að kynnast sjálfum
sér mjög vel. En að ferðast í félags-
skap með öðrum er líka ótrúlega
gaman, af því þá kynnist maður svo
mörgu fólki. Það er alveg magnað
að í útivist og ferðamennsku eru all-
ir með sitt rétta andlit, enginn getur
falið sig eða reynt að vera einhver
annar. Og það er ofboðslega
skemmtilegt. Mér finnst bæði gam-
an að ferðast ein og með öðrum, það
er bara ólíkt. Fyrst þegar ég lét mig
dreyma um að fara á suðurpólinn sá
ég ekki fyrir mér að ég færi ein. En
þegar ég fór að lesa mér til og las
frásagnir kvenna sem höfðu farið
einar, þá heillaði það mig.“
Krefst mikils aga
En hvenær og hvernig vissi
hún að hún væri tilbúin til að fara á
suðurpólinn? „Það tekur eflaust
misjafnlega langan tíma hjá hverj-
um og einum, en maður finnur þetta
bara. Maður þarf að setja sér mark-
mið og vera mjög agaður þegar
maður vinnur að því markmiði. Og
það má ekki láta trufla sig þó marg-
ar hindranir séu í veginum, því það
er ekki auðvelt að skipuleggja svona
leiðangur. Ég held það sé líka gott
að hafa reynslu af því að stýra verk-
efnum, en ég hef komið að skipu-
lagningu ferða og leiðangra, bæði
hér á landi og í óbyggðum Græn-
lands. Ég tek með mér alla reynslu
úr atvinnulífinu og af útivist og
pakka öllu saman í einn pakka í
þessu stóra verkefni,“ segir Vilborg
og bætir við að þó svo að líkamlegt
atgervi skipti miklu þá sé andlegi
þátturinn lykilatriði þegar komið sé
út á ísinn.
Ævintýrin eru líka á íslensk-
um fjöllum og jöklum
Vilborg kemur heim um miðjan
janúar. Hvað verður þá næsta
markmið? Ætlar hún að fara á Eve-
rest eða norðurpólinn? „Ætli ég
byrji ekki á að reyna að klára þetta.
Allt streðið er eftir og ég á eftir að
meta hvernig mér líður eftir það.
En ég er vissulega ævintýramann-
eskja. Hver veit hvað ég tekst á við
næst. En það þarf ekki endilega að
fara út í svona stór verkefni til að
upplifa ævintýri, mér finnst líka frá-
bært að upplifa ævintýri heima á ís-
lenskum fjöllum og jöklum. Æv-
intýrin eru margskonar þó þau séu
af ólíkum stærðargráðum.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Verð kr. 8.990Verð kr. 7.990
CASALGRANDE
PADANA
Pave your way
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Eitt af því flottasta á markaðnum í dag
Parketflísar
Gæði og glæsileiki á góðu verði
Kynningarverð
Matur og eldsneyti (60 daga vistir)
Fjarskiptabúnaður (tveir gervihnattasímar, iridium tracer, talstöð)
Tjald, svefnpoki, tvær frauðdýnur og ein loftdýna
Prímus, hitabrúsi, vatnsbrúsar og mataráhöld
Jöklabúnaður
Jöklafatnaður
Sjúkrabúnaður og lyf
Viðgerðarsett
Afþreying (ipod, bók osfrv)
Gervihnattasímar og prímus
HVAÐ TEKUR VILBORG MEÐ SÉR Á PÓLINN?
Vilborg heldur úti bloggi um leið-
angurinn á slóðinni: www.lifs-
spor.is/blogg, og þar geta allir
fylgst með framgangi mála. Hún
mun hringja inn á mbl.is einu sinni
í viku og segja frá förinni.
Einnig er áheitasöfnun í gangi á
www.lifsspor.is, og rennur ágóðinn
til Lífs, styrktarfélags Kvenna-
deildar Landspítalans.