Morgunblaðið - 06.11.2012, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Markaðshlutdeild Apple í spjaldtölv-
um á heimsvísu hefur dregist saman
á síðustu misserum en spjaldtölvur
sem nota Android-stýrikerfið frá Go-
ogle hafa sótt í sig veðrið. Þetta kem-
ur fram í frétt Financial Times.
Samkvæmt mælingum IDC seldi
Apple helming allra spjaldtölva í
heiminum á þriggja mánaða tímabili
sem lauk í september en á sama tíma
fyrir ári nam hlutdeildin 60%. Á
sama tímabili jókst hlutdeild Sam-
sung á spjaldtölvumarkaðnum í 18%
úr 7%.
Amazon var með 9% markaðshlut-
deild með spjaldtölvum sem ganga
undir nafninu Kindle Fire og Asus,
sem byggir sínar spjaldtölvur á
Android-tækninni, jók hlutdeild sína
í 9% úr 4%. Hafa verður í huga að
margir kusu að bíða eftir nýju iPad-
græjunum sem fóru í sölu á föstu-
daginn var. Um er að ræða iPad mini
og fjórðu kynslóð af hefðbundnum
iPad. Þrjár milljónir af iPad seldust
um liðna helgi, og eru nýju tækin
meðtalin.
Android með mikla hlutdeild
á símamarkaðnum
Android-stýrikerfið er með stóra
sneið af símamarkaðnum. Sam-
kvæmt gögnum IDC var Android
með 75% markaðshlutdeild á þriðja
ársfjórðungi, þ.e. tímabilið júlí ágúst
september, sem er aukning frá því á
sama tíma fyrir ári, þegar hlutdeild-
in nam 58%. Android er að bæta við
sig markaðshlutdeild, að mestu leyti
á kostnað BlackBerry og Nokia
Symbian-síma. iPhone er með 15%
markaðshlutdeild, segir í fréttinni.
Samkvæmt mælingum IDC óx
Samsung og Asus mun hraðar en
Apple sé litið ár aftur í tímann. Sam-
sung óx um 325% og Asus um 243%
en Apple um 26%, segir í fréttinni.
Morgunblaðið/Ómar
Beðið eftir nýju Nýjar iPad-græjur komu í hillur verslana á föstudaginn
var: iPad mini og fjórða kynslóð af iPad. Margir biðu eftir þeim.
Android-spjald-
tölvur sækja á
Apple er með um helmings markaðs-
hlutdeild á heimsvísu í spjaldtölvum
blaðið að þetta gæti haft mikla þýð-
ingu fyrir mörg fyrirtæki og eflt ný-
sköpun til muna. Annars vegar
vegna þess að fyrirtækin gætu nýtt
markaðinn til að sækja fé sem nýtt
væri til vaxtar og hins vegar gætu
fjárfestar sem studdu fyrirtækin
snemma í vaxtarferlinu, áður en þau
urðu nógu burðug til að fara á mark-
að, nýtt Kauphöllina sem útgöngu-
leið og selt þar bréfin. „Ef fjárfestar
vita af þessum möguleika eru þeir
viljugri til að fjárfesta í rekstrinum á
fyrri stigum. Skráning á First North
gæti því hjálpað fyrirtækjum bæði
beint og óbeint,“ segir hann.
Hvað er First North?
First North-markaðurinn er
hugsaður fyrir smærri fyrirtæki,
sprotafyrirtæki, nýsköpunarfyrir-
tæki og fyrirtæki sem sjá sér hag í
því að vera á markaði en telja skrán-
ingu á Aðalmarkað Kauphallarinnar
vera of stórt skref að sinni. Vera á
First North hefur flesta þá kosti sem
fylgja hefðbundinni skráningu en
regluverk er léttara og kostnaður
minni. Fyrirtæki verða að birta upp-
gjör á hálfs árs fresti á First North-
markaðnum en fjórum sinnum á ári á
Aðalmarkaðnum.
Kauphallir á Norðlöndum reka
First North-hliðarmarkaði. Páll seg-
ir að á undanförnum árum hafi um 25
félög fært sig af First North-mark-
aðnum yfir á Aðalmarkað, en á hlið-
armörkuðunum séu um 130 fyrir-
tæki.
First North-markaðurinn er ekki
skilgreindur sem skipulagður verð-
bréfamarkaður samkvæmt lögum
um verðbréfaviðskipti heldur mark-
aðstorg fjármálagerninga og því
flokkast bréfin ekki sem skráðar
eignir hjá lífeyrissjóðunum. Milli
landa getur skilgreiningin á slíku
markaðstorgi verið nokkuð mismun-
andi. Hér á landi er téður markaður
nokkuð svipaður skipulegum verð-
bréfamarkaði, að sögn Páls.
Íslenski First North-markaðurinn
var stofnaður árið 2007 og var í raun
hugsaður fyrir vaxtarfyrirtæki en
það hefur ekki verið raunin. Þar eru
rótgróin fyrirtæki eins HB Grandi,
Hampiðjan, SS og Century Alumini-
um sem rekur álverið á Grundar-
tanga, en ekki hefðbundin vaxtarfyr-
irtæki.
Páll segir að útfærsla auðlegðar-
skatts sé með þeim hætti að eigend-
ur margra fyrirtækja sem ættu er-
indi á markað gefa þeim möguleika
lítinn gaum. Ástæðan sé að stofn til
auðlegðarskatts miðast við skatta-
legt eigið fé ef um óskráð fyrirtæki
er að ræða, en markaðsvirði ef fyr-
irtækið er skráð á hlutabréfamark-
aði.
Vill rýmka heimildir lífeyrissjóða
Forstjóri Kauphallarinnar telur að það geti hleypt lífi í markað fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Gæti þýtt að um 100 milljarðar væru tiltækir í slíkar fjárfestingar á First North-markaðnum
Skattar Páll Harðarson, forstjóri Kauphallarinnar, segir að auðlegðar-
skattur sé með þeim hætti að það dragi úr áhuga á skráningu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
BAKSVIÐ
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Forstjóri Kauphallarinnar kallar eft-
ir því að heimildir lífeyrissjóða verði
lítillega rýmkaðar sem myndi hafa
það í för með sér að um 100 millj-
arðar verði tiltækir til að fjárfesta í
minni og meðalstórum fyrirtækjum
sem skráð eru á hliðarmarkað Kaup-
hallarinnar, First North.
Páll Harðarson, forstjóri Kaup-
hallarinnar, leggur til að leyfa lífeyr-
issjóðum lögum samkvæmt að fjár-
festa í nýjum flokki sem komið væri
á fót – en nú mega sjóðirnir fjárfesta
að hámarki 20% eigna sinna óskráð-
um eignum og annað í skráðum –
sem væru fjárfestingar í bréfum á
First North-hliðarmarkaðnum.
Hann nefnir að veita lífeyrissjóðun-
um heimild til að fjárfesta allt að 5%
af eignunum þar, en 5% af eignum
lífeyrissjóðanna séu um 100 milljarð-
ar. Fjárfestingar á First North-
markaðnum flokkast nú í bókum líf-
eyrissjóðanna undir óskráðar eignir.
Hann segir í samtali við Morgun-
þingholtsstræti 1 · 101 rvk · sími 562 7335
caruso.is · caruso@caruso.is
við Erum líka á facebook
Á fimmtudagskvöldum í nóv. og des.
ætlar hinn frábæri tónlistarmaður
Eyjólfur Kristjánsson að spila öll
sín bestu lög í bland við sérvaldar
perlur.
Kósýkvöldin hafa verið gríðarlega
vinsæl undanfarin ár og því bendum
við á að panta tímanlega.
Fjölbreyttur matseðill þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi
Suðrænn
og seiðandi
Rómantískur og hlýlegur
veitingastaður á þremur
hæðum í miðbæ Reykjavíkur
STUTTAR FRÉTTIR
● Tæplega 65.000 erlendir gestir fóru
frá Íslandi um Leifsstöð í september
síðastliðnum, en það er metfjöldi ferða-
manna á þessum tíma árs. Greining Ís-
landsbanka bendir á að í fyrra hafi fjöldi
ferðamanna verið 51.600 og því nam
aukningin í september 25,4% á milli
ára. Sé tekið mið af fyrstu 9 mánuðum
ársins eru brottfarir erlendra ferða-
manna 537.000. Þeim hefur því fjölgað
um 17,2% frá sama tímabili 2011.
Aldrei fleiri ferðamenn
● Helstu hlutabréfavísitölur í Evrópu
lækkuðu í gær og er það rakið til for-
setakosninganna í Bandaríkjunum sem
fara fram í dag. Afar mjótt er á munum
milli frambjóðenda og töluverð óvissa
hvort Barack Obama eða Mitt Romney
fari með sigur af hólmi í kosningunum.
Í London lækkaði FTSE-vísitalan um
0,45%, DAX lækkaði um 0,50% í Frank-
furt og CAC-vísitalan í París um 0,96%.
Kosningaskjálfti á
hlutabréfamörkuðum
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Finnur Oddsson, sem hefur gegnt
starfi framkvæmdastjóra Viðskiptaráðs
síðustu fimm ár, hefur verið ráðinn í
starf aðstoðarforstjóra Nýherja hf.
Hann mun jafnframt gegna starfi fram-
kvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Nýherja,
sem er ábyrgt fyrir sölustarfsemi og
viðskiptastjórn á fyrirtækjamarkaði.
Finnur verður ábyrgur fyrir stefnu og
daglegum rekstri Nýherja innanlands,
segir í tilkynningu frá Nýherja.
Finnur til Nýherja
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
,1,.22
+,2.3-
,+.2-3
,,.12/
+4./+4
+30.50
+.54+3
+/0.1,
+-,.35
+,2.,0
,13.,-
+,2.23
,+.4,2
,,.+00
+4./23
+30./,
+.545/
+/0.-
+-,.4
,,5.,410
+,2.50
,13.25
+,4.+
,+.4/+
,,.,1/
+/.1,4
+35.3
+.5/15
+/5.+4
+-3.,5