Morgunblaðið - 06.11.2012, Síða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þegar yfirmaðurinn getur ekki verið
nákvæmur í skipunum, notaðu ímyndunar-
aflið. Gerðu ekki meiri kröfur til annarra en
þú gerir til sjálfs þín.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert á réttri leið en þarft þó að vera
ákveðinn til að hlutirnir gangi hraðar fyrir
sig. Með réttu verklagi kemstu hjá mistök-
um og klárar þig af þessu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú hefur unnið vel að undanförnu
og getur því um frjálst höfuð strokið. Vertu
skorinorður þegar þú útskýrir hugmyndir
þínar fyrir öðrum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það getur verið erfitt að láta skyn-
semina ráða þegar tilfinningarnar tala ann-
að. Gefðu þér tíma til að grandskoða málin
áður en þú tekur afstöðu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Farðu þér hægt í að gera aðra að trún-
aðarmönnum þínum, einkum á fjármálasvið-
inu. En nú er komið að því að þú uppskerir
laun erfiðis þíns.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hugmyndirnar streyma að þér úr öll-
um áttum svo þú mátt hafa þig alla/n við
að drukkna ekki í flóðinu. Smáatriði vefjast
ekki fyrir þér og þú finnur leiðina að réttri
lausn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Framsæknar hugmyndir kvikna í koll-
inum á þér og krefjast þess að hann taki af
skarið, eigi síðar en strax. Endurskoðaðu
þessa afstöðu þína.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú þarft að sýna mikla lipurð til
þess að komast í gegnum þá erfiðleika sem
fylgja nýju verkefni. Láttu það eftir þér að
skemmta þér með vinum og fjölskyldu.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er svo auðvelt að fylgja
straumnum en erfiðara að standa á sínu.
Menn munu sjá þegar mál skýrast að þú
hefur rétt fyrir þér. Innst inni veistu þó að
þú munt ná þér aftur á strik.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Veldu þér trúnaðarvini til þess að
ræða við þau mál sem þér finnst erfitt að
glíma við ein/n. Leitaðu hjálpar ef með þarf.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Ef þú hefur tíma aflögu skaltu
nota hann til að létta undir með öðrum. Fátt
er dýrmætara í lífinu en að eiga góða vini
svo leggðu þig fram um að halda þeim.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver hefur látið á þig reyna sein-
ustu þrjár vikur, og nú er kominn tími til að
snúa dæminu við. Misskilningur og ruglingur
virðast allsráðandi.
Fyrir tæpum mánuði birtust hér íVísnahorni hringhendur sem
Vala Kristjánsson hafði fundið í
fórum föður síns, Einars óp-
erusöngvara. Af því tilefni skrifar
Helgi Ziemsen að hann hafi rekist á
tvær vísur eftir séra Tryggva H.
Kvaran á Mælifelli sem séu keim-
líkar vísum númer tvö og þrjú í
uppskriftinni, sem út af fyrir sig
þurfi hvorki að sýna neitt né sanna:
Fyllist grandi frera slóð.
Flestum vandast rökin.
Fólskublandin þykja þjóð
Þorra handatökin
Blærinn andar blítt um lá.
Brott er grand úr landi.
Þorrinn vanda vill sig á
vinar handabandi.
Dr. Sturla Friðriksson sendi mér
línur á vefnum: „Alltaf gaman að
lesa Vísnahornið. Í Vísnasafni mínu
er vísan Nordan. Breyti ég þar
fyrstu ljóðlínunni, því annars er
hardan endurtekið í miðríminu. Ég
hef síðan lært seinni hlutann nokk-
uð öðruvísi en þarna kemur fram.
Sendi ég þér mína útgáfu,“ skrifar
Sturla með þeirri athugasemd að
„nordan hardan“ sé vart rímhæft:
Nordan fjardar gerdi gard,
geysi hardur vard hann.
Fjúkid vardi fredid bard
fönn í skardid bardi hann.
Björn Ingólfsson rithöfundur á
Grenivík skaut þessari vísu að mér,
sem hann orti þegar hann varð sex-
tugur:
Víst er ég annar en var ég fyrst
við þetta skal þó glaður una;
ég hef svo sem ekki mikið misst
nema minnið, vitið og náttúruna.
Gamall skólabróðir minn, Grétar
Snær Hjartarson, gaukar oft að
mér vísum og margvíslegum fróð-
leik, oft að vestan:
„Guðbrandur Loftsson í Hvera-
vík var sagður leggja það í vana
sinn að hagræða sannleikanum ef
svo bar undir, orðljótur og bölvaði
mikinn. Einhverju sinni kom hann
kjagandi heim að bænum Hellu í
Steingrímsfirði. Feðgarnir Jör-
undur Gestsson og Ragnar sonur
hans voru útivið. Heyrist þá í Ragn-
ari:
Kemur Brandur búandi
bölvandi og ragnandi
Eftir litla bið kemur frá Jörundi:
… orðaklækjum úandi,
ekki er honum trúandi.“
Jörundur kenndi barnabörnum
sínum þessa heilræðisvísu eftir sig:
Þó að bjáti eitthvað á
ei skal gráta af trega:
Lifðu kátur líka þá
en lifðu mátulega.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Víst er ég annar en var ég fyrst
Í klípu
FYRIR TEIKNIMYNDAHÖFUND VAR
ÞETTA KJÁNALEG SPURNING.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„DAVÍÐ, ÞEGAR ÉG BAÐ ÞIG UM AÐ TELJA
SÚRSUÐU GÚRKURNAR ...“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... dýrmætur
minjagripur.
LEYFÐU MÉR AÐ
ORÐA ÞAÐ SVONA:
HVORT VILTU GERA
ÞAÐ SEM ER RÉTT
EÐA ÞAÐ SEM ER
FYNDIÐ?
HJÓNABANDS-
RÁÐGJÖF
ÉG ÞOLI EKKI SVONA
HJARÐHEGÐUN!
ÉG ÆTLA AÐ SÝNA YKKUR
TÍMAVÉLINA MÍNA.
OG, EINS OG EKKERT SÉ,
ER KOMINN ANNAR DAGUR!Þegar hinn sívinsæli dægurlaga-söngvari Helgi Björnsson gerði
gamla slagarann „Sem lindin tær“
eftir Bjarka Árnason aftur vinsælan
fyrir fáeinum árum risu athyglis-
verðar deilur um eina línu í textan-
um. Þar sem Helgi söng: „Já, ef ég
mætti lifa eins og lindin silfurtær,
sem lög á sína hundrað strengi
slær“ var því haldið fram að hann
ætti að syngja: „Já, ef ég mætti lifa
eins og lindin silfurtær, sem lög á
sína undrastrengi slær.“
Lögðust menn í nokkrar rann-
sóknir á þessu og enda þótt Vík-
verja minni að illa hafi gengið að
staðfesta þetta, þótti blasa við að
línan væri rangt sungin. Hvers
vegna ætti lindin tær svo sem að
eiga hundrað strengi?
Helgi Björnsson hefur greinilega
tekið mark á þessu en Víkverji
heyrði hann flytja téð lag á árshátíð
úti í bæ um liðna helgi. Hlustaði
sérstaklega eftir hinni umdeildu
línu og það fór ekkert á milli mála,
Helgi söng, hátt og snjallt: „Já, ef
ég mætti lifa eins og lindin silf-
urtær, sem lög á sína undrastrengi
slær.“
Helgi var eitt af skemmtiatrið-
unum á árshátíðinni og sópaði að
honum. Alltént voru flestir staðnir
upp þegar hann lauk sér af – og var
þó dansgólfið harðlokað. Og allir
voru sexí! Nema hvað?
x x x
Víkverji las merkilega frétt á dög-unum um konu nokkra í Banda-
ríkjunum sem var á mælendaskrá á
fundi borgarráðs í ónefndri borg.
Sté hún í pontu og hafði þrjár mín-
útur til að ljúka máli sínu. Það tókst
ekki og þegar konan sýndi engin
merki um að linna látum tóku ör-
yggisverðir hana höndum og færðu
burt emjandi í fjötrum.
Vakti þetta nokkurn óhug við-
staddra og heyrðist meðal annars
hrópað á pöllum: „Borgarstjóri, vilt
þú láta minnast þín fyrir þetta?“
Eftir uppákomuna kvaðst borg-
arstjórinn ekki bera ábyrgð á gjörn-
ingnum en búið er að skerpa á
reglum á þann veg að ekki má leng-
ur handtaka fólk á fundum téðs
borgarráðs nema að fengnum fyr-
irmælum frá borgarstjóra.
Land frelsisins! víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn birtist honum úr fjarlægð:
Með ævarandi elsku hef ég elskað þig,
fyrir því hef ég látið náð mína haldast
við þig. (Jeremía 31:3)