Morgunblaðið - 06.11.2012, Page 40
40 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 2012
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Hin mörgu andlit kristninnar nefnist ný bók
séra Þórhalls Heimissonar. Þetta er hans sjö-
unda bók og sjálfstætt framhald Hinna mörgu
andlita trúarbragðanna, sem kom út árið 2005.
Í nýju bókinni tekur Þórhallur fyrir kristina
trú og rekur á persónulegan hátt sögu hennar,
þróun, táknfræði, kenningar og styrjaldir, allt
frá Egyptalandi hinu forna til dagsins í dag.
Þetta er meðal annars saga um blóðug átök
gyðingastríðanna og krossferðanna, must-
erisriddara og frímúrara, kristna talnaspeki og
táknfræði, biblíurannsóknir og daga kirkjuárs-
ins. Einnig fjallar hann um samfélagsmál í ljósi
kristinnar trúar, svo sem kirkjuna og jafnrétti
kynjanna, samkynhneigð og umhverfismál.
Auk þess að starfa sem prestur hefur Þór-
hallur haldið fjölda námskeiða og skrifað bæk-
ur. Eru skriftirnar einhverskonar köllun?
„Köllun er kannski mikið sagt en ég hef alla
vega afskaplega gaman af að skrifa,“ segir Þór-
hallur. „Ég hef í gegnum árin notað frístundir
til skrifta. Skrifin tengjast auðvitað oft
vinnunni, námskeiðshaldi, og allrahanda sam-
skiptum, en mikilvægasti drifkrafturinn er hvað
mér þykir þetta skemmtilegt.“
Vitnar í önnur trúarbrögð
Hann segist í skrifunum iðulega vera að velta
fyrir sér og grúska í hinu og þessu sem hann
hafi áhuga á; hann sé að gera þetta fyrir sjálfan
sig en afraksturinn verði stundum bók eins og
nú, bók sem lesendur hafa vonandi gaman af.
„Oft er ég að sökkva mér í eitthvað sem fáir
hafa fjallað um hér á landi. Eins og trúar-
bragðastyrjaldir og talnaspeki. Síðan tek ég
iðulega þátt í samræðum um málefnið, enda hef
ég notað grúskið á námskeiðum sem ég kenni.“
Áður en Þórhallur hóf nám í guðfræði lagði
hann um skeið stund á sagnfræði og segir að
sagnfræðin hafi lengi togað í sig – þann áhuga
má sjá birtast í flestum bókum hans.
„Sagan er mikið áhugamál mitt. Margt í sög-
unni fer fram hjá mönnum í dag en mér finnst
áhugavert að draga fram fortíðina til að hjálpa
okkur að skilja samtímann,“ segir hann.
„Ég dreg í þessari bók fram ýmsa ein-
staklinga sem hafa ekki endilega bein tengsl við
kristni en snerta sögu hennar. Ég segi til dæmis
hina dramatísku sögu Kleópötru, hvernig hún
vélaði til sín þá Sesar og Antóníus, reyndi hið
sama við Oktavíanus, og hvernig hún dó. Allt
tengist þetta upphafi kristninnar í gegnum
Ágústus keisara sem kemur fyrir í Jóla-
guðspjallinu. En þar er einmitt kominn áð-
urnefndur Oktavianus. Oft þegar maður byrjar
að velta einni persónu fyrir sér þá stígur önnur
áhugaverð fram og tekur völdin af sögumanni.“
Dulræn reynsla
„Þessi bók er ekki kirkjusaga frá a til ö held-
ur fjallar hún um ýmis andlit sem birtast í sög-
unni. Ég fjalla líka um Ísland í dag og segi frá
fólki sem ég hef kynnst, eins og séra Sigurði
Hauki sem ég vann með í Langholtskirkju á sín-
um tíma. Svo er kafli um dulræna reynslu sem
ég hef sjálfur orðið fyrir í starfi við ýmsar að-
stæður. Góður kunningi minn sem deilir slíkri
reynslu með mér var til dæmis svo elskulegur
að staðfesta það skriflega að allt hafi verið þar
eins og ég greini frá því,“ segir hann.
Þórhallur segist brosandi ekki getað svarað
því sjálfur hvort skrifin geri hann að betri presti
en hinsvegar njóti hann þess að hafa verið að
velta öllum þessum hlutum fyrir sér þegar kem-
ur að því að skrifa prédikanir.
„Til dæmis er gaman að prédika um ákveðna
daga ef bak við þá eru sögur sem fáir þekkja en
hægt er að fræða um.
Þetta grúsk er áhugamál sem hefur ekki látið
mig í friði. Mér finnst gaman að skrifa og hef
notið þess að eiga góða fjölskyldu sem styður
mig í því.“
Þórhallur tók i haust árs launalaust leyfi frá
störfum í Hafnarfirði og vinnur sem stendur hjá
sænsku þjóðkirkjunni, í Falun. „Það er fallegt
þarna úti, skógur og mikil útivistarparadís. Ég
vildi breyta aðeins til – og skrifa,“ segir hann.
„Sagan er mikið áhugamál mitt“
Þórhallur Heimisson skrifar í nýrri bók um mörg andlit kristninnar Rekur sögu hennar á persónu-
legan hátt „Finnst áhugavert að draga fram fortíðina til að hjálpa okkur að skilja samtímann“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Höfundurinn „Þetta grúsk er áhugamál sem hefur ekki látið mig í friði,“ segir Þórhallur.
Himneskur gluggi nefnist sýning sem Konstantinos
Zaponidis opnar í í kaffihúsi Gerðubergs í dag kl. 18.
„Á sýningunni eru hefðbundnir býsanskir íkonar
sem unnir eru í egg tempera sem og akrýl. Mynd-
irnar á sýningunni eru samkvæmt hefðinni og fylgir
hann býsantínskri listsköpun,“ segir í tilkynningu.
Þar kemur einnig fram að Zaponidis er fæddur í
Kastoria í Norður-Grikklandi. Hann nam býsanska
list í Kastoria og í munkríkinu Athos en þar var lögð
áhersla á gerð íkona, mósaíkmynda og veggmynda.
Síðar fór hann til Parísar og lagði þar stund á list-
nám. Í Þessaloníku lærði Zaponidis forvörslu og
hvernig varðveita á listaverk og listmuni og starfaði
við það m.a. í munkríkinu Athos.
Annað kvöld kl. 20 fer fram handverkskaffi og þar
ræðir Zaponidis um sögu íkona og gildi þeirra í rétt-
trúnaðarkirkjunni sem og muninn á grískum og
rússneskum íkonum. Farið verður í tákn og merkingu lita og íkonar á ýms-
um vinnslustigum sýndir. Sýningin stendur til 13. janúar og er opin virka
daga kl.10-16 og um helgar kl. 13-16.
Himneskur gluggi í Gerðubergi
Íkon Eitt þeirra íkona
sem sést á sýningunni.
TILBOÐSDAGUR
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR
ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR
–BARA LÚXUS
www.laugarasbio.is
SKYFALL Sýnd kl. 7 - 9 - 10 (Power)
PITCH PERFECT Sýnd kl. 8 - 10:15
HOTEL TRANSILVANIA 2D Sýnd kl. 6
TEDDI 2D Sýnd kl. 6
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
FYRSTA SINN Á ÍSLANDI! SÝNINGAR Í 4K - KL: 7 OG 10
POWE
RSÝN
ING
KL. 10
Í 4K
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
Þriðjudagstilboð
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG ÍSL TEXTI
Þriðjudagstilboð
-bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Þriðjudagstilboð
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
7
12
12
L
,,Sú besta í allri seríunni”
T.V - Kvikmyndir.is
,,Fyrsta flokks 007”
J.A.Ó - MBL
,,Þrælspennandi og skemmtileg
frá upphafi til enda”
H.V.A - FBL
Þ.Þ - FBL
ÞRIÐJUDAGSTIL
BOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
T.V. - KVIKMYNDIR.ISJ. A. Ó. - MBL
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%GLERAUGU SELD SÉR 5%
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
NÁNAR Á MIÐI.IS
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐIN
GILDA EKKI Í BORGARBÍÓ
PITCH PERFECT KL. 8 - 10.10 12
SKYFALL KL. 5.20 - 8 - 10.40 12
DJÚPIÐ KL. 6 10
PITCH PERFECT KL. 5.30 - 8 - 10.30 12
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 3.40 - 5.50 - 8 7
SKYFALL KL. 5 - 8 - 10.10 12
SKYFALL LÚXUS KL. 5 - 8 12
TEDDI LANDKÖNNUÐUR KL. 3.40 L
FUGLABORGIN 3D ÍSL.TAL KL. 3.30 L
TAKEN 2 KL. 10.10 16
DJÚPIÐ KL. 5.50 - 8 10
PITCH PERFECT KL. 8 - 10.30 12
HOTEL TRANSYLVANIA ÍSL. TEXTI KL. 5.50 7
SKYFALL KL. 6 - 9 12 / TAKEN 2 KL. 10.30 16
LOVE IS ALL YOU NEED KL. 8 L
THE DEEP ENSKUR TEXTI KL. 5.50 10
KORA KL. 10 L / I DO KL. 8 10
THE FLOWERS OF WAR KL. 5.30 16