Morgunblaðið - 06.11.2012, Blaðsíða 44
ÞRIÐJUDAGUR 6. NÓVEMBER 311. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
1. Birgitta liggur á spítalagangi
2. Tveggja ára barn lést í dýragarði
3. Segir morð á dóttur „vilja guðs“
4. Húsið selt á 700 þúsund
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikum Bjarna Thors Krist-
inssonar bassa, sem áttu að vera í
Bergi á Dalvík í mánuðinum, hefur
verið frestað fram í febrúar. Bjarni
hefur verið ráðinn að Scala-óperunni,
þar sem hann er nú við æfingar nýrr-
ar uppfærslu á óperunni Lohengrin.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarss.
Frestar Dalvíkurtón-
leikum vegna Scala
Kvartett raf- og
kontrabassaleik-
arans Sigmars
Þórs Matthías-
sonar kemur fram
á KEX Hostel í
kvöld. Á dag-
skránni verða
djasslög úr ýms-
um áttum m.a.
eftir John Scofield og Miles Davis, í
bland við nýtt og eldra frumsamið
efni hljómsveitarstjórans. Sem fyrr
er aðgangur ókeypis.
Kvartett Sigmars
Þórs á KEX Hosteli
Prinsessur og gyðjur er yfirskrift
hádegistónleika sem haldnir verða í
Hafnarborg í dag kl. 12. Á tónleik-
unum flytur Elsa Waage
messósópran aríur
úr ýmsum óperum,
m.a. „Mon coeur“
úr Samson og
Dalíla eftir Saint-
Saëns og „Stride
la vampa“ úr Il
Trovatore eftir Verdi.
Antonía Hevesi leikur
undir á píanó.
Elsa Waage syngur á
hádegistónleikum
Á miðvikudag Austlæg eða breytileg átt 5-10 m/s. Dálítil él, en
þurrt að kalla suðvestan- og vestanlands. Hiti um frostmark með
S- og V-ströndinni, annars frost víða 1 til 6 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austlæg átt 5-10 m/s en 8-18 síðdegis,
hvassast við S- og NV-ströndina. Rigning SV-til, en slydda eða
snjókoma SA-til. Hiti 0 til 6 stig á SV-landi.
VEÐUR
Guðbjörg Gunnarsdóttir,
landsliðskona í knatt-
spyrnu, telur ósennilegt að
hún leiki áfram með sænska
liðinu Djurgården eftir að
það féll úr sænsku úrvals-
deildinni um helgina. Guð-
björg segir í samtali við
Morgunblaðið að hún hafi
orðið vör við talsverðan
áhuga frá félögum. Hún sé
hinsvegar ekki í tímaþröng
og ætli að gefa sér tíma til
að skoða hvað er í boði. »1
Guðbjörg fer frá
Djurgården
„Þegar svona vel gengur er ekki hægt
að kvarta yfir miklu. Auðvitað vill
maður alltaf spila alla leiki frá upp-
hafi til enda en ég er þokkalega sátt-
ur við minn hlut, enda getur staðan
varla verið betri hjá okkur,“ sagði
Ólafur Ingi Skúla-
son, miðjumaður
belgíska liðsins
Zulte-Waregem
sem er efst í
deildinni. Ólaf-
ur Ingi var í
gær valinn í
íslenska
landsliðið í
knatt-
spyrnu sem
mætir
Andorra í
næstu viku.
»4
Ekki hægt að kvarta
þegar vel gengur
Útilokað er að bjóða mönnum upp á
fimm tíma rútuferðir innanlands frá
flugvelli á leikstað eins og Rúmenar
gerðu fyrir helgina þegar íslenska
landsliðið í handknattleik karla sótti
þá heim. Einhvers staðar verður að
draga mörkin í þessum efnum og þar
verður EHF að setja mönnum stólinn
fyrir dyrnar, segir m.a. í viðhorfsgrein
Ívars Benediktssonar. »2
Einhvers staðar verður
að draga mörkin
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Bobby Fischer er uppáhalds-
skákmeistarinn minn, hann var svo
góður, en Hjörvar Steinn Grétarsson
er líka góður, hann hefur kennt mér
rosa mikið,“ segir Vignir Vatnar
Stefánsson, níu ára skákmaður í
Taflfélagi Reykjavíkur og nemandi í
4. bekk í Hörðuvallaskóla í Kópavogi.
Þó að Vignir Vatnar sé ekki gamall
hefur hann öðlast töluverða reynslu
heima og erlendis. Hann hefur líka
staðið sig vel og varð til dæmis í efsta
sæti ásamt aldursforsetanum Gunn-
ari Gunnarssyni, fyrrverandi Ís-
landsmeistara, á kappskákmóti í
Gallerý Skák í liðinni viku. Hann seg-
ir samt engu máli skipta í hvaða sæti
hann lendi. „Mér finnst allt í lagi þó
að ég tapi og lendi kannski í 5. sæti.“
Helgi Ólafsson, stórmeistari og
kennari hans í Skákskóla Íslands,
leggur einmitt áherslu á þetta.
Margir krakkar stundi skákina af
miklum krafti og standi sig vel, en
varast beri að gera miklar kröfur til
þeirra og ætlast til mikils af þeim á
unga aldri.
Á ferð og flugi
Á morgun fer Vignir Vatnar til
Slóveníu til þess að taka þátt í heims-
meistaramóti 10 ára og yngri barna,
fjórða mótið hans erlendis í ár.
„Þetta er erfitt,“ segir Vignir
Vatnar um erlendu skákmótin.
„Þetta er erfitt því ég er alltaf svo
kvíðinn þegar ég er kominn inn á
hótelið.“ En keppnin sem slík er ekki
aðalatriðið heldur bara það að tefla.
„Það er skemmtilegast að leika
svörtu mönnunum,“ segir hann og
bætir við að stærðfræði sé skemmti-
legasta fagið í skólanum. Það sé líka
gaman að ferðast. „Ég var á Norð-
urlandamóti og eftir tvo mánuði fór
ég á mót á Ítalíu. Svo fór ég á Evr-
ópumótið eftir tvo mánuði og núna,
tveimur mánuðum seinna, er ég að
fara á heimsmeistaramótið. Svo
stoppa ég líka í löndum því mótin eru
svo langt í burtu, stoppa kannski í
Frakklandi eða eitthvað svoleiðis. Þá
bíðum við á flugvellinum og spilum
kannski ólsen-ólsen eða eitthvert
annað spil.“
Stefán Már Pétursson, faðir Vign-
is Vatnars, segir að sonurinn hafi
fljótlega fengið áhuga á skák, fylgst
með sér tefla og byrjað í kjölfarið.
„Ég sat alltaf við borðið og horfði á
þá og svo fór ég bara sjálfur að
tefla,“ segir Vignir Vatnar. Og hvað
skyldi drengurinn ætla að verða þeg-
ar hann verður stór? „Bara skák-
meistari,“ segir hann.
Í takt við trausta taflmennina
Níu ára skákar
sér eldri mönnum
og ætlar sér langt
Morgunblaðið/RAX
Níu ára meistari Vigni Vatnari Stefánssyni í Taflfélagi Reykjavíkur finnst svörtu mennirnir skemmtilegastir.
Vignir Vatnar er sonur Stefáns
Más Péturssonar og Sigurlínu
Guðbjörnsdóttur. Stefán Már hefur
fylgt syni sínum á æfingar og í
keppni og fer meðal annars með til
Slóveníu. Hann segist lengi hafa
teflt heima en ekki á mótum. „En
það er mikill skákáhugi í ættinni,“
segir hann og vísar til þess að Pét-
ur Zóphóníasson, frumkvöðull að
stofnun Taflfélags Reykjavíkur
1901, hafi verið langafi sinn og
langalangafi Vignis Vatnars.
Synir Péturs, Sturla, Áki og
Gunngeir, voru kunnir skákmenn
og Jakobína, systir þeirra, var gift
Hafsteini Gíslasyni, kunnum skák-
unnanda.
Áhuginn gengur í ættir
LANGALANGAFINN FRUMKVÖÐULL Í TR