Morgunblaðið - 01.12.2012, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Reykjavíkurborg hefur hug á því að koma fyrir um 30
fermetra flotbryggju í tengslum við kaffihúsið á jarðhæð
Ráðhússins og er málið sem stendur hjá skipulagsráði,
sem tekur það fyrir á fundi sínum 5. desember næstkom-
andi.
Steve Christer, arkitekt Ráðhússins hjá Studio
Granda Arkitektum ehf., segir að málið sé á hugmynda-
stigi. Í maí hafi hann, fyrir hönd Reykjavíkurborgar, lagt
inn fyrirspurn um málið til byggingafulltrúa en ekki hafi
verið um formlega beiðni að ræða og teikning liggi ekki
fyrir. Hann áréttar að hugmyndin sé ekki ný af nálinni,
því rætt hafi verið um þetta af og til í um 20 ár.
Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavík-
urborgar, segir að málið hafi farið hina lögformlegu leið.
Víða hafi verið leitað umsagna, meðal annars hjá garð-
yrkjustjóra Reykjavíkurborgar, sem hafi veitt jákvæða
umsögn og sagt að slík flotbryggja hefði ekki skaðleg
áhrif á lífríki Tjarnarinnar.
Samþykki byggingafulltrúa þarf áður en ráðist verður
í framkvæmdir. Bjarni bendir auk þess á að síðan sé eftir
að fjármagna verkefnið og leita samþykkis borgarráðs
fyrir því að fjármunum verði ráðstafað í það.
steinthor@mbl.is
Bryggja við Ráðhúsið
Fólk getur fengið sér kaffisopa við hljóð fuglanna
Morgunblaðið/Júlíus
Ráðhúsið Flotbryggjan yrði við suðurhliðina.
Skattur
á lífeyri
stendur
„Stjórnvöld lofuðu því við endur-
skoðun kjarasamninga í janúar að
skattur á hreina eign lífeyrissjóð-
anna á árinu 2011
og 2012 yrði
felldur niður. Í
bandorminum
eru þessir skatt-
ar látnir standa
2011 en verða
hins vegar felldir
niður 2012,“ segir
Gylfi Arnbjörns-
son, forseti ASÍ.
„Við endur-
skoðun kjara-
samninga lofuðu stjórnvöld því að í
október á þessu ári yrði lagt fram
frumvarp á Alþingi sem myndi fella
þessa skatta niður. Þau gerðu síðan
samning við lífeyrissjóðina sem fól í
sér að frumvarpið yrði lagt fram ef
þeir færðu fjármuni heim til lands-
ins. Álagningin er á hreina eign sjóð-
anna, lífeyrisréttindi almennings.“
Hrein eign sjóðanna í lok árs 2010
var 1.718.855 millj. kr. og átti skatt-
urinn, 0,0814%, að skila 1,4 millj-
örðum kr. 2011. Að sögn Gylfa lítur
miðstjórn ASÍ svo á að skattarnir
brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnar-
skrár og hefur ASÍ falið lögmanni að
undirbúa lögsókn gegn ríkinu.
Gylfi
Arnbjörnsson
ASÍ hyggst fara
í mál við ríkið
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Áformað er að byggja um 12.000 fer-
metra íbúðar- og atvinnuhúsnæði á
Hampiðjureitnum svokallaða við
Stakkholt 2-4 í Reykjavík og miðað
við að framkvæmdir hefjist í byrjun
komandi árs er gert ráð fyrir að
þeim ljúki í árslok 2014. Í fjölbýlis-
húsinu verða meðal annars 139 íbúð-
ir af ýmsum stærðum.
„Þetta er stærsta einstaka íbúðar-
verkefni okkar til þessa og stærsta
framkvæmd sem við ráðumst í frá
hruni,“ segir Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri og eigandi systurfélaganna
ÞG verktaka og Arcus ehf., en síð-
arnefnda félagið er lóðarhafi og sér
um framkvæmdir. Hann áætlar að
um 100 manns muni starfa við verk-
efnið, þegar það verður komið á fullt,
fyrir utan fjölmarga aðra í afleiddum
störfum, en nú vinna um 30 manns
hjá honum.
Á fundi skipulagsráðs Reykjavík-
urborgar í vikunni var tekið fyrir er-
indi frá afgreiðslufundi byggingar-
fulltrúa þar sem sótt er um leyfi til
að byggja umrætt hús. Það skiptist í
fimm mishá stigahús með 139
tveggja til fjögurra herbergja íbúð-
um, verslunar- og þjónusturýmum
og bílakjallara fyrir 144 bíla. Ráðið
gerði ekki athugasemdir við erindið
og það samræmist deiliskipulagi en
því var vísað til fullnaðarafgreiðslu
byggingarfulltrúa.
Þorvaldur segir að stærð íbúð-
anna verði 65 til 130 fermetrar.
„Þetta eru mjög fjölbreyttar tegund-
ir af íbúðum og metnaðarfull upp-
bygging,“ segir hann og bætir við að
íbúðirnar séu hannaðar og hugsaðar
fyrir mjög breiðan kaupendahóp.
Minnstu íbúðirnar séu jafnframt
hugsaðar til útleigu fyrir til dæmis
námsfólk.
Vonast er til að framkvæmdir
hefjist strax eftir áramót, að sögn
Þorvaldar. Hann segir að byrjað hafi
verið að huga að framkvæmdum
2007, en hætt hafi verið við á þeim
tíma og málið tekið aftur upp í ár.
139 íbúðir á Hampiðjureitnum
Stærsta íbúðarbyggingarverkefni Arcus frá hruni
Um 100 manna vinnustaður þegar allt verður komið á fullt
Stakkholt 2-4 Þrívíddarmynd af verkefninu á Hampiðjureitnum.
Þrívíddarmynd/THG arkitektar
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra tilkynnti í gær framboð
sitt til formanns Samfylkingarinnar.
Í samtali við
mbl.is sagði Guð-
bjartur að góð
niðurstaða úr
prófkjöri Sam-
fylkingarinnar í
Norðvesturkjör-
dæmi hefði verið
forsenda þess að
hann byði sig
fram. Hann hafi
verið hvattur til
þess að gera það
af breiðum hópi. „Það er auðvitað
búið að kalla eftir því að fá framboð
sem myndi leggja áherslu á sam-
stöðu, reyna að skapa traust og leita
lausna þar sem við reynum að ná
sem allra breiðastri sátt innan Sam-
fylkingarinnar og úti í samfélaginu,“
segir Guðbjartur.
Aðspurður hvort hann eigi von á
hörðum slag við Árna Pál Árnason
sem tilkynnti framboð sitt til for-
manns í október segist Guðbjartur
vonast til þess að hann verði mál-
efnalegur og sanngjarn. „Við leggj-
um fram bæði okkar persónur og
málefni og síðan er það flokksfélaga
okkar að velja á þeim grunni.“
Guðbjartur í
formanns-
slaginn
Býður sig fram
á móti Árna Páli
Guðbjartur
Hannesson
Viðgerð á gólfi Ólafsfjarðarleggs Héðinsfjarðarganga
er að ljúka. Verktaki er að malbika veginn á sjö stöðum
sem brotnir voru upp á síðasta ári til að veita vatninu
frá. Mikill vatnsagi kom í ljós þegar göngin voru gerð.
Vatnið var leitt út um frárennslislagnir sem lagðar eru
með hliðum ganganna. Eftir að göngin voru opnuð fór
vatn að þrýstast upp úr gólfi og skemmdi veginn á
nokkrum stöðum. Drenlögn sem lögð var í gólfið í fyrra
virðist skila sínu hlutverki og nú er verið að ganga var-
anlega frá veginum.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Gert við gólf Héðinsfjarðarganga
Opið: Mán - Fim 11:00 - 18:00
Fös 10:00 - 18:30 & Lau 11:00 - 16:00
Hátíðarkörfur
Ostabúðarinnar
eftir þínu höfði
Við erum byrjuð að
taka á móti pöntunum
í síma 562 2772,
ostabudin@ostabudin.is
og á ostabudin.is