Morgunblaðið - 01.12.2012, Síða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
ÓDÝRU BÍLALEIGUBÍLARNIR
VORU AÐ KOMA!
Vertu fyrstur, fáðu þann besta!
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | hofdahollin@hofdahollin.is
Eigum allskonar bíla,
langar þig í einn?
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 580 8900 | bilalind.is
Ertu með kaupanda?
Skjalafrágangur frá 14.990 kr.
Löggildir bílasalar tryggja öryggi beggja aðila
Fylgstu með okkur á facebook
Sölulaun
frá 39.900 kr.
www.s i ggaog t imo . i s
LINNETSSTÍG 2 | SÍMI: 565-4854 |Opið: Mánudag - Föstudag 11:00 - 18:00 | Laugardagur 11:00 - 14:00
Handsmíðað í Hafnarfirði síðan 1993
Hagnaður Eimskips eftir skatta á
fyrstu níu mánuðum ársins nam
13,724 milljónum evra, 2.249 milljón-
um króna, en 12,53 milljónum evra,
2.053 milljónum króna, á sama tíma-
bili í fyrra.
Hagnaður Eimskips á þriðja árs-
fjórðungi var í samræmi við áætlanir
en hann nam 5,748 milljónum evra
en var 2,071 milljón evra í fyrra.
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eim-
skips, segir m.a. í tilkynningu:
„Rekstrarhagnaður Eimskips fyrir
afskriftir á þriðja ársfjórðungi 2012
er að aukast á milli ára og er í sam-
ræmi við væntingar félagsins að
teknu tilliti til kostnaðar að fjárhæð
0,7 milljónir evra vegna undirbún-
ings skráningar félagsins á NAS-
DAQ OMX Iceland.“
Fram kemur að flutningsmagn í
áætlanaflutningum félagsins á Norð-
ur-Atlantshafi jókst um 6,3% fyrstu
níu mánuði ársins frá því sem var á
sama tímabili 2011. Á árinu 2011 var
ákveðið að bæta við öðru skipi á Am-
eríkuleið og tengja þannig Norður-
Ameríku við Norður-Noreg.
„Magn í frystiflutningsmiðlun á
þriðja ársfjórðungi dróst saman um
12,7% frá fyrra ári sem endurspegl-
ast í þróun markaða í Asíu, en þrátt
fyrir að magnið sé að minnka hefur
framlegðin í frystiflutningsmiðlun
ekki minnkað að sama skapi,“ segir
jafnframt í fréttatilkynningu.
Hagnaður Eim-
skips 2,25 ma.
„Í samræmi við væntingar,“ segir
Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskips
Morgunblaðið/Eggert
Forstjórinn Gylfi Sigfússon segir aukinn hagnað vera í samræmi við væntingar.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga