Morgunblaðið - 01.12.2012, Síða 29

Morgunblaðið - 01.12.2012, Síða 29
rískri borg afar óvenjuleg. Þannig hafa 462 verið myrtir í Chicago þar sem um 2,7 milljónir manna búa. Sumir rekja ástæðu þess að lög- reglan í New York hafi náð svo góð- um árangri til þess að hún reki mjög harða stefnu í því að leita á þeim sem hún grunar um græsku. Aðrir benda á að sú aðferð hafi leitt til þess að hundruð þúsunda ungra blökkumanna og fólks af róm- önsk-amerískum uppruna séu stöðv- uð af lögreglu að ástæðulausu. AFP Friður Lögreglan í New York átti óvenjunáðugan dag á mánudag. FRÉTTIR 29Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012 Jólaréttirnir er ný bók matreiðslumeistarans Sigga Hall. Bók um helstu jólarétti sem hafa verið á borðum Íslendinga síðustu áratugina. Hefðbundnir réttir, nýir réttir, uppskriftir og fróðleikur, handa matgæðing- um á öllum aldri. Jólahlaðborðið, síldin, reykti laxinn, rjúpan, hangikjötið, hátíðarmaturinn og humarsúpan. Íslensk matreiðsla í hátíðarbúning eins og hún gerist best. Uppskriftirnar eru allar aðgengilegar „að hætti Sigga Hall“ í hæstu gæðum eins og hátíðarmatreiðslan er í kringum jólin. Bókin fæst hjá bóksölum og helstu matvöruverslunum um land allt. Pöntunarsími 563 6000 Stjórnvöld í Ísr- ael hafa veitt leyfi fyrir því að byggð verði þrjú þúsund ný íbúð- arhús á her- numdum svæð- um Palestínu- manna. Frá þessu var sagt í ísraelskum fjöl- miðlum í gær og koma fréttirnar beint í kjölfar þess að Palestína fékk stöðu áheyrn- arríkis hjá Sameinuðu þjóðunum. Talið er að húsin verði byggð í Austur-Jerúsalem og á Vest- urbakkanum. Palestínsk stjórnvöld hafa lýst því yfir að friðarviðræður geti ekki haldið áfram fyrr en út- breiðsla landtökubyggða verði stöðvuð. ÍSRAEL Byggja meira á landi Palestínumanna Ísraelskur landtökumaður. Síma- og netsam- bandslaust var í stærstum hluta Sýrlands í gær, annan daginn í röð að sögn mannréttinda- samtaka. Banda- rísk stjórnvöld hafa sakað stjórn Bashar al-Assads um að skera á sambandið. Google og Twitter til- kynntu í gær að fyrirtækin hefðu opnað raddstýrt forrit sem geri Sýrlendingum kleift að semja færslur með því að tala í síma. Það er sama kerfi og notað var í Egyptalandi í fyrra þegar stjórn- völd lokuðu á netið. SÝRLAND Sýrlendingar geti tíst með símanum Eyðilegging í Sýrlandi. Yfirgnæfandi meirihluti þýskra þingmanna samþykkti í gær neyð- arlán upp á 44 milljarða evra til Grikkja. Alls kusu 473 þingmenn á sambandsþinginu með frumvarpinu en hundrað kusu gegn því. Fyrir atkvæðagreiðsluna hafði fjármálaráðherrann Wolfgang Schäuble varað þingmenn við því að örlög evrusvæðisins væru undir í Grikklandi. „Gjaldþrot Grikklands leiddi til þess að evrusvæðið liðaðist í sundur,“ sagði hann. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, hafði áður hvatt þingmenn allra flokka til þess að styðja frum- varpið. Fjármálaráðherrar evruríkjanna sautján samþykktu á mánudag að greiða Grikkjum út lán hinn 13. des- ember. Þýski fjölmiðillinn ARD segir að kostnaður þýska ríkisins vegna neyðarlánanna til Grikklands nemi 730 milljónum evra á næsta ári og 660 milljónum árið 2014. Samþykktu neyðarlánin  Framtíð evrusvæðisins sögð undir AFP Atkvæðagreiðsla Merkel bíður niðurstöðunnar í þinginu í gær. Listi sem embætti ríkissaksóknara í Mexíkó hefur tekið saman sýnir að um 25.000 manns hafa horfið í landinu í fíkniefnastríðinu sem þar hefur geisað á undanförnum sex árum. Þetta eru mun fleiri mannshvörf en áður hefur verið talið en listinn var aldrei birtur opinberlega. Embættismenn sem voru óánægðir með aðgerðaleysi stjórnvalda láku honum til fjölmiðla nýlega. Um 100.000 manns hafa verið myrt- ir í forsetatíð Felipe Calderón sem lætur brátt af völdum og vita fjöl- skyldur margra þeirra sem hafa horfið ekki hvort ástvinir þeirra eru á meðal hinna föllnu eða ekki. Hvorki talsmað- ur forsetans né skrifstofa ríkissak- sóknara hefur viljað tjá sig um hvers vegna tölurnar um þá sem er saknað hafa ekki verið birtar opinberlega. Ekki er talið að listinn sé nákvæm- ur né tæmandi. Hann var tekinn sam- an í excel-skjal þar sem finna má færslur við nöfn fólks á borð við: „Fað- irinn var handtekinn af einkennis- klæddum mönnum og sást aldrei aft- ur.“ Tugir þúsunda hafa horfið á síðustu árum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.