Morgunblaðið - 01.12.2012, Page 36
Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Vorið 2013 eru liðin 30 ár síðan vís-
indamönnum tókst að greina hiv-
veiruna, það sama ár, 1983, er fyrsti
einstaklingurinn greindur með hiv á
Íslandi. Eftir marga sigra og líka
ósigra í glímunni við þennan alvar-
lega sjúkdóm á undanförnum árum,
eru teikn á lofti um betri tíma. Aldrei
hefur ríkt eins mikil bjartsýni um ár-
angur baráttunnar gegn útbreiðslu
hiv í heiminum og nú. Eftir hörm-
ungar síðustu áratuga þar sem millj-
ónir manna hafa þjáðst og dáið af
völdum alnæmis er að skapast þekk-
ing og tækni til að koma böndum á
heimsfaraldurinn. Lyfjameðferðir
gegn hiv hafa tekið slíkum fram-
förum að einstaklingar í vel sam-
settri meðferð eru ekki smitberar í
þeim mæli sem var. Það gerir tilveru
hiv-jákvæðra svo sannarlega létt-
bærari, að vera á lyfjum sem ná að
halda veirunni svo vel í skefjum að
þeir eru ekki lengur smitandi. Ímynd
hiv og alnæmis verður væntanlega
eðlilegri og sanngjarnari í kjölfar
þess að sjúkdómurinn er viðráð-
anlegri, því það eru gömul og ný
sannindi að þegar þekking og skiln-
ingur eykst, þá minnkar óttinn.
Samskonar viðhorfsbreyting átti sér
stað gegn berklum, með tilkomu
berklalyfja, um miðja síðustu öld.
Úrræði og árangur
Aukin úrræði og samvinna al-
þjóðasamfélagsins er að skila gríð-
arlegum árangri í aðgerðum gegn hiv
og alnæmi í heiminum. 8 milljónir
jarðarbúa eru nú komnir í lyfja-
meðferð og eru alþjóðleg markmið
þau að 15 milljónir manna verði á
lyfjum við hiv árið
2015. Alnæmis-
tilfellum hefur fækkað
umtalsvert í heiminum
og á það við um þróun-
arlöndin líka og það
hefur líka bless-
unarlega dregið úr
úbreiðslu hiv á heims-
vísu, ákveðin ríki og
landsvæði hafa verið
til eftirbreytni hvað
varðar forvarnir og
meðferð. Bandarísk
heilbrigðisyfirvöld hafa til dæmis
gert að stefnu sinni að hiv-smituðum
verði boðið að fara á lyf, strax í fram-
haldi af greiningu. Í Austur-Evrópu
og arabalöndum hefur ekki enn dreg-
ið úr útbreiðslu. Því miður á það
einnig við um Ísland en tæplega 50
manns hafa greinst hérlendis með
hiv á síðustu tveimur árum sem er
mikið áhyggjuefni. Þessi mikla aukn-
ing skýrist m.a. af skyndilegri og
hraðri útbreiðslu hiv meðal fíkla sem
deila með sér sprautubúnaði. Margt
bendir þó til að toppnum eða botn-
inum sé náð og að árið 2012 verði ný-
smit færri og dreifingin milli þjóð-
félagshópa jafnari. 17 einstaklingar
hafa greinst það sem af er þessu ári
og er fjöldi smitaðra frá
upphafi því að ná 300,
eða eða 297 talsins. Sett
hefur verið á laggirnar
samstarfshópur á veg-
um Sóttvarnaráðs þar
sem HIV-Ísland á full-
trúa. Hópurinn vinnur
að tillögum að úrræðum
sem gætu lágmarkað
þennan skaða meðal
fíkla og vonandi dregið
úr frekari útbreiðslu.
Aðalforvörnin er að nota
gamla góða smokkinn –
það hefur ekkert breyst.
Þrátt fyrir basl við að láta enda ná
saman í rekstri HIV-Íslands í ár, sem
helst skapast af lækkun styrkja til fé-
lagsins, hefur tekist að halda úti eðli-
legu starfi. Fræðslu- og forvarna-
vinna á sér stað m.a. í grunnskólum
landsins, fangelsum, meðferðarstofn-
unum, fyrirtækjum og ýmsum deild-
um háskólanna. Margt bendir til að
hiv-jákvæðum sé hættara við ýmsum
sjúkdómum en öðrum og er jafnvel
talað um ótímabæra öldrun sjúklinga
í því samhengi. Ekki er nægjanlega
mikið vitað um orsökina, en hún er
talin vera flókið samspil hiv-
veirunnar og aukaverkunar lyfja.
Þættir s.s. lífstíll og erfðir hafa áhrif í
þessu samspili. Þessi þróun er al-
gengari hjá þeim sem hafa gengið
lengi með hiv. Það er því til mikils að
vinna fyrir hópinn að fylgjast vel með
eigin heilsufari og líðan. HIV-Ísland
hefur í samstarfi við systursamtök á
norðurlöndunum staðið fyrir nám-
skeiðum og útgáfu fræðsluefnis um
þetta sem þýtt hefur verið á íslensku.
Það hefur gríðarlega mikið að segja
fyrir góða heilsu hiv-jákvæðra, það
góða aðgengi sem þeir hafa á göngu-
deild smitsjúkdóma LSH í Fossvogi.
Fögnum 1. des
Alþjóðlegi alnæmisdagurinn er 1.
desember og er hans minnst í 25.
skiptið um allan heim í ár. Á næsta
ári eru líka liðin 25 ár frá stofnun fé-
lagsins. Á þeim tímamótum er ekki
úr vegi að líta um öxl og minnast
allra þeirra með þakklæti sem hafa
með einum eða öðrum hætti komið að
starfi félagsins og lagt hafa hönd á
plóg við forvarnir og glímuna við for-
dóma. Rauða borðinn er merki fé-
lagsins og er tákn um stuðning við
hiv-jákvæða og alnæmissjúka og
táknar jafnframt kröfu um fordóma-
lausa umræðu um hiv. Merkið er til
sölu og í tilefni dagsins er opið hús
hjá samtökunum kl. 15-18.
Glíman við HIV í 30 ár
Eftir Einar Þór Jónsson
» Það gerir tilveru
hiv-jákvæðra svo
sannarlega léttbærari,
að vera á lyfjum sem ná
að halda veirunni svo vel
í skefjum að þeir eru
ekki lengur smitandi
Einar Þór Jónsson
Höfundur er þroskaþjálfi, trésmiður,
kennari og lýðheilsufræðingur. Hann
starfar sem framkvæmdastjóri HIV Ís-
land.
Munið að
slökkva á
kertunum
Slökkvilið
höfuborgasvæðisins
Staðsetjið kerti ekki
nálægt opnum
glugga þar sem
vindur getur sveiflað
gluggatjöldum
í kertalogann
Ég, Reynir Björnsson
löggiltur fasteignasali,
með 15 ára starfsreynslu
á fasteignamarkaði hef
hafið störf hjá Eignamiðlun
fasteignasölu og býð
viðskiptavinum í kaup- og
söluhugleiðingum
velkomna að hafa
samband.
Reykjavík
Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is
Fagleg og vönduð vinnubrögð
Kortið er meðal annars selt hjá
Krabbameinsfélaginu í Skógarhlíð.
Upplýsingar í síma 896 5808.
Styrkur, samtök krabbameinssjúklinga
og aðstandenda þeirra
Haustsveitakeppni Bridsfélags
Reykjavíkur
Haustsveitakeppninni er nú skipt í
deildir. Sex kvöldum af átta er lokið.
Staðan í fyrstu deild er þannig.
1. deild:
Lögfræðistofa Íslands 330
Chile 316
Grant Thornton 214
2. deild:
Sölufélag garðyrkjumanna 290
VÍS 281
Pétur og úlfurinn 265
Þessar þrjár sveitir í annarri deild
flytjast næsta kvöld í 1. deild.
Minningarmót í Gullsmára
Spilað var á 16 borðum í Gull-
smára fimmtudaginn 29. nóvember,
en þá hófst minningarmótið um Guð-
mund Pálsson. Spilað verður í fjögur
skipti og gilda þrír bestu dagarnir.
Úrslit í N/S:
Katarínus Jónsson – Jón Bjarnar 336
Þorbjörn Benediktss. – Halldór Jónss. 308
Birna Lárusd. – Sturlaugur Eyjólfss. 298
Örn Einarsson – Óskar Ólason 296
A/V:
Sigurður Njálsson – Pétur Jónsson 350
Gunnar Alexanderss. – Elís Helgason 342
Gróa Jónatansd. – Kristm. Halldórss. 313
Ragnar Haraldss. – Bernhard Linn 308
Allir spilarar eru alltaf velkomnir.
BRIDS
Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is