Morgunblaðið - 01.12.2012, Síða 46
46 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2012
Norðlendingurinn Helga Kvam er 40 ára í dag, fædd á full-veldisdaginn árið 1972. Hún býr á Svalbarðsströnd þar semhún er fædd og uppalin. Helga ætlar að halda upp á daginn
enda heppilegt að slíkt stórafmæli lendi á laugardegi. „Ég komst
ekki hjá því að halda upp á afmælið. Ef þetta hefði verið virkur dag-
ur þá hefði ég bara þagað um þetta. Ég býð fjölskyldunni í hrís-
grjónagraut og slátur í hádeginu og um kvöldið verð ég með opið
hús fyrir fólk.“
Helgu hefur alltaf fundist frábært að eiga afmæli 1. desember.
„Mér fannst rosalega leiðinlegt þegar hætt var að gefa frí í skólum
og dagurinn hætti að vera sami hátíðisdagurinn. Þó ég eigi afmæli á
deginum þá finnst mér hann vera hátíðlegri en 17. júní fyrir þjóð-
ina.“ Hún segist ekki hafa haldið mikið upp á afmælin sín í gegnum
tíðina. „Þegar ég varð þrítug gerði ég ekki neitt. Mamma bauð mér í
kaffi og var þá búin að bjóða allri fjölskyldunni. Afþví að ég er nú
tónlistarmaður hefur þetta alltaf hitt á vinnutarnatíma.“
Helga er skólastjóri í tónlistarskóla Svalbarðsstrandar þar sem 32
nemendur stunda nú nám. Hún starfar líka sem ljósmyndari og
kennir ljósmyndun við Myndlistaskólann á Akureyri. Helgu er
margt til lista lagt því hún heldur úti uppskriftasíðunni Allskonar.is
og kennir á matreiðslunámskeiðum. Hún er líka í sveitarstjórnar-
málunum og gegnir stöðu varaoddvita í Svalbarðsstrandarhreppi.
Helga Kvam er fertug í dag
Afmælisbarn Helga Kvam er skólastjóri tónlistarskóla Svalbarðs-
strandarhrepps, ljósmyndari, matarbloggari og varaoddviti.
Mikill hátíðisdagur
fyrir þjóðina
Íslendingar Pétur Atli Lárusson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Hafnarfjörður Alexandra Tinna fædd-
ist 15. febrúar kl. 17.04. Hún vó 2.665
g og var 46,5 cm löng. Foreldrar henn-
ar eru Hrefna Nilsen Tómasdóttir og
Ómar Þór Nilsen Andrésson.
Nýir borgarar
Hafnarfjörður Sóley Anna fæddist 6.
september kl. 0.35. Hún vó 3.110 g og
var 48 cm löng. Foreldrar hennar eru
Borghildur Sverrisdóttir og Jóhann
Bjarni Kjartansson
H
afsteinn fæddist í
Vestmannaeyjum og
ólst þar upp. Hann
flutti til Reykjavíkur
í gosinu 1973 þar
sem hann hefur búið síðan. Eftir
að skyldunámi lauk nam Hafsteinn
húsasmíði í Iðnskólanum í Vest-
mannaeyjum, kláraði það uppi á
landi og starfaði við smíðar til árs-
ins 1987. Þá hóf hann störf hjá
Samvinnutryggingum og síðar hjá
Vátryggingafélagi Íslands hf. þar
sem hann gegnir í dag stöðu
tryggingafulltrúa í söludeild.
„Þetta er mjög skemmtilegt og
gefandi starf og ég er með frá-
bæra vinnufélaga.“
Byrjaði tíu ára að beita
Hafsteinn telur það vera forrétt-
indi að hafa alist upp í Eyjum.
„Að byrja snemma að vinna í
beitningaskúrnum, frystihúsunum
og útskipunum og kynnast öllu í
kringum sjóinn er ómetanlegt. Ég
fór 10 ára gamall að stokka og
beita með gömlu körlunum.“
Hafsteinn byrjaði einnig ungur
að veiða með pabba sínum, fór 8
ára að fiska á trillu með honum og
stýrði bátnum meðan pabbi hans
skaut svartfugl.
„Pabbi var rosalegur veiðimaður
Hafsteinn Ragnarsson tryggingaráðgjafi - 60 ára
Í faðmi fjölskyldunnar „Ég er mikill fjölskyldumaður og lifi og hrærist í því að sinna henni.“
Er fæddur veiðimaður
Í Minneapolis „Við konan ferðumst mikið saman og spilum golf.“
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is