Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 4. D E S E M B E R 2 0 1 2
Stofnað 1913 302. tölublað 100. árgangur
ÍSLENSK JÓL
HÁTÍÐLEGRI
EN BANDARÍSK
LAUFABRAUÐIÐ
ER LISTSKÖPUN
FÁTT SEM
MINNIR Á
JÓLIN Í KENÝA
SKURÐURINN OFT PERSÓNULEGUR 18 SÓL OG SUMARYLUR 22TVEGGJA HEIMA KONA 10
Morgunblaðið/RAX
Gleðileg jól
Sextán áramótabrennur verða á
höfuðborgarsvæðinu á gamlárs-
kvöld, þar af tíu í Reykjavík.
Byrjað verður að safna í borg-
arbrennurnar fimmtudaginn 27.
desember. »24
Hefðbundnar brennur
www.jolamjolk.is
Á heimili Eiríks Inga
Jóhannssonar hefur ver-
ið í nógu að snúast á að-
ventunni eins og á flest-
um öðrum heimilum.
Tæpt ár er liðið síðan
Eiríkur bjargaðist á
ótrúlegan hátt er tog-
arinn Hallgrímur SI
fórst undan ströndum
Noregs, en þrír skips-
félagar hans fórust.
Framundan segir Ei-
ríkur að sé að halda „jól
á jákvæðum nótum“
með eiginkonunni og
fjórum börnum þeirra.
Jólin og samveran með
fjölskyldunni hafi alltaf
skipt hann miklu máli.
Eiríkur segist þakklátur
fyrir að vera á lífi „og
kannski tek ég aðeins
þéttar utan um konuna
og börnin á þessum jól-
um“. Um mánuðina sem
liðnir eru frá slysinu
segir hann: „Það hafa
ýmsir bardagar verið í
þessu, sem maður gat
ekki gert sér grein fyrir
áður.“ »6
Morgunblaðið/RAX
Feðgar Eiríkur Ingi Jóhannsson og Adam Val-
geir, sex ára sonur hans, á rölti við Rauðavatn.
Á jákvæðum nótum
Segist þakklátur fyrir að vera á lífi
„Jólaspáin er góð og í kortunum útlit
fyrir ágætt ferðaveður víðast hvar.
Einhvers staðar gætu orðið hálku-
blettir, svo sem fyrir norðan, og því
ætti fólk að fylgjast vel með og vera
á bíl með góðum dekkjum,“ segir
Þorsteinn Jónsson, veðurfræðingur
á Veðurstofu Íslands.
Um hátíðarnar verður bjartviðri
sunnanlands með talsverðu frosti og
helst það yfir jóladagana. Fyrir vest-
an, norðan og austan gera veður-
fræðingar ráð fyrir NA-átt og élja-
gangi og á annan í jólum gæti orðið
allt að 20 stiga frost í innsveitum
nyrðra. Fyrstu tölur um frost fyrir
norðan bentu til að gaddur í innsveit-
um þar gæti farið í 40 gráður. Að
mati kunnugra er slíkt ofmat og litl-
ar líkur á að frostið bíti svo hart.
Hjá Vegagerðinni er staðin vakt
um jólin. Snjómokstursmenn verða
að fram til klukkan 15 í dag og fara af
stað klukkan 10 á jóladagsmorgun,
en þann dag er þjónusta á vegum út
frá borginni og suður með sjó, austur
í Vík í Mýrdal, vestur á Snæfellsnes
og í Dali og norður um til Húsavíkur.
Þá verður vegum milli þéttbýlisstaða
á Vestfjörðum og Austurlandi haldið
opnum.
Strætisvagnar aka til kl. 14
Í dag verða verslanir opnar til há-
degis en klukkubúðir til klukkan 17.
Nánast allt er lokað á jóladag en
nokkrar matvöruverslanir verða
opnar á öðrum degi jóla.
Í Reykjavík aka strætisvagnar
fram til klukkan rúmlega 14 í dag.
Icelandair flýgur til London nú í
morgunsárið og kemur heim síðdeg-
is. Lundúnaflugið er eina áætlunar-
ferð dagsins. Flugfélag Íslands flýg-
ur til helstu áfangastaða og síðasta
vél þess kemur í bæinn laust eftir há-
degi. Á annan í jólum fer svo allt á
flug að nýju. sbs@mbl.is
Ágætt jólaveð-
ur í kortum
Bjart syðra en él nyrðra Litlar líkur
á 40 gráðu frosti Vegum haldið opnum
MFrostspá fyrir »4