Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 50
50 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Jólalögin mín eru nokkur, meðal annars tvö við ljóð ÞorsteinsValdimarssonar og eru þau á plötu sem við Jónas Tómassonfélagi minn gerðum fyrir meira en fjörutíu árum. Það fór að
vísu lítið fyrir plötunni en lögin lifa þó. Svo samdi ég á sínum tíma
lag við faðirvorið og við það lag er ég afar sáttur,“ segir Heimir
Sindrason, sem er 68 ára í dag. Hann er tannlæknir en þjóðinni best
þekktur sem lagasmiður, meðal annars fyrir lagið við Hótel jörð eft-
ir Tómas Guðmundsson.
Heimir segist kunna því vel að eiga afmæli á aðfangadag. „„Nei,
áttu afmæli á jólunum?“ segir fólk og brosir þegar það sér kennitöl-
una mína,“ segir Heimir, sem í æsku kveðst hafa notið þess með að
fá fleiri pakka en aðrir. Í dag segir hann jólin í sínum huga þó fyrst
og fremst ánægjulega samverustund fjölskyldunnar, sem jafnan
hefur rjúpu í matinn á aðfangadagskvöld.
Í áraraðir starfrækti Heimir eigin tannlæknastofu og gerir enn en
í félagið hafa svo bæst m.a. dóttir hans og tengdasonur, Kristín
Heimisdóttir og Bjarni Elvar Pétursson. „Eftir að fleiri komu að
rekstri stofunnar hef ég meira svigrúm til að sinna áhugamálum. Er
í golfi á sumrin og svo gengur tónlistin eins og rauður þráður í
gegnum líf mitt. Byrjaði á fertugsaldri að spila á píanó og sit mikið
við hljóðfærið og æfi mig. Einhver þarf dægradvölin að vera þegar
starfsævinni lýkur,“ segir Heimir að síðustu. sbs@mbl.is
Heimir Sindrason er 68 ára í dag
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Tónskáldið „Spila á píanó og sit mikið við hljóðfærið,“ segir Heimir
Sindrason, hér á tannlæknastofunni sem hann hefur rekið í áratugi.
Tannlæknirinn
samdi jólalög
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Sigurður Kristjánsson, tæknifræð-
ingur og fyrrverandi yfirkennari,
verður hundrað ára 26. desember
næstkomandi.
Árnað heilla
100 ára
Reykjavík Júlíus Hrafn fæddist 22.
maí kl. 12.32. Hann vó 3.755 g og var
52 cm langur. Foreldrar hans eru
Fanney Ída Júlíusdóttir og Kristján
Leifsson.
Nýir borgarar
Ísafjörður Vigdís Birna fæddist 1.
mars kl. 1.29. Hún vó 3.220 g og var
48 cm löng. Foreldrar hennar eru Jó-
hanna Fylkisdóttir og Samúel Orri
Stefánsson.
E
iríkur fæddist í Súðavík
24.12. 1962, ólst þar
upp til sex ára aldurs
og síðan á Akranesi.
Hann lauk stúdents-
prófi frá Flensborg 1984 og stundaði
nám í prentverki um skeið. Hann hóf
nám í sagnfræði við HÍ 1989, lauk
BA-prófi 1994 og MA-prófi 2005.
Eiríkur stundaði fiskvinnslu á
Akranesi á unglingsárunum og í
Hafnarfirði á framhaldsskóla-
árunum og starfaði við Prentsmiðj-
una Eddu og Prentsmiðju Morg-
unblaðsins.
Eftir BA-prófið var Eiríkur safn-
stjóri Sýslusafns Austur-Skaftafells-
sýslu á Höfn í Hornafirði 1996-99,
var blaðamaður við Morgunblaðið
1999-2002, kynningarstjóri BHM
2002-2004 og sinnti blaðamennsku
og ritstörfum á eigin vegum 2004-
2005.
Eiríkur hóf störf við sjóminjasafn-
ið Víkina í Reykjavík 2005 og hefur
verið stafnstjóri þar frá 2009.
Eiríkur er formaður Sambands ís-
lenskra sjóminjasafna, varamaður í
Safnaráði og sat í stjórn FÍSOS, Fé-
lags íslenskra safna og safnamanna.
Eiríkur Páll Jörundsson, safnstjóri Víkur – 50 ára
Fjölskyldan Eiríkur Páll og kona hans, Heiða Helena, á heimili sínu, ásamt dætrunum, Guðrúnu Rakel, Ásu Hrund
og Birnu Rún, og barnabörnunum, Birki Val, Heiðu Bríet og Emilíu Klöru.
Sjóminjar við höfnina
Safnstjóri Á Hátíð hafsins sl. vor en þá opnar safnið sínar sumarsýningar.
Keilulegur Flans- og búkkalegur Hjólalegusett Nála- og línulegur
LEGUR
Í BÍLA OG TÆKI
www.falkinn.is
Það borgar sig að nota það besta!
th
or
ri@
12
og
3.
is
/3
1.
31
3
TRAUSTAR VÖRUR
...sem þola álagiðKúlu- ogrúllulegur