Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég bað frænku mína aðkippa með sér tré fyrirmig þegar hún fór í Skóg-ræktina að höggva eitt
slíkt fyrir sjálfa sig. Þau mættu svo
hér stórfjölskyldan með fjögurra
metra hátt tré á pallbíl og höfðu með
sér sög og klippur. Öðruvísi var ekki
hægt að koma trénu inn. Við þurftum
að saga af því toppinn svo það gæti
staðið í stofunni. Að öllu þessu loknu
héldum við hátíð hér og glöddumst
yfir trénu, drukkum heitt kakó og
gæddum okkur á smákökum,“ segir
Ólöf Kristjánsdóttir sem búið hefur í
New York undanfarin tíu ár ásamt
manni sínum en fyrir þremur árum
fæddist þeim sonurinn og gleðigjaf-
inn Gabríel.
Hefð fyrir heitum rjómasoðn-
um grjónagraut í eftirmat
Ólöf á tvöfalt af öllu jólaskrauti,
því hún skreytir auðvitað líka heimili
sitt úti í New York. „En ég skreytti
minna þar, mest með greni og stórum
jólastjörnum. Við höfum haldið jól úti
í Bandaríkjunum en mér finnst hátíð-
legra hér á Íslandi yfir hátíðirnar.
Fólk sem við þekkjum úti gerir ekki
svo mikið úr jólunum, en aftur á móti
er þakkargjörðarhátíðin miklu meiri
hátíð þar.“ Ólöf býr sjálf til sitt jóla-
konfekt og ekkert lítið af því. „Ég
geri fjórfaldar og fimmfaldar upp-
skriftir og maðurinn minn hefur
kvartað mikið yfir konfektgerðinni í
gegnum tíðina, af því að ég býð allt of
mörgum að taka þátt og þá er súkku-
laði út um allt,“ segir Ólöf sem á von á
gestum um hátíðirnar. „Við erum
með opið hús á Þorláksmessu, svo
verður fimmtán manna matarboð hjá
Íslensk jól hátíðlegri
en þau bandarísku
Hún er tveggja heima kona sem býr mestan part ársins í New York en á líka fal-
legt heimili á Íslandi. Ólöf Kristjánsdóttir er mikil jólakona sem býr til sitt eigið
jólakonfekt og lætur sig ekki muna um að taka á móti þrjátíu gestum í mat.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jóladrengur Einkasonurinn Gabríel er kominn í jólaskap, hér við jólatréð
stóra og fagra sem skreytt er bæði með íslensku og bandarísku jólaskrauti.
Bloggsíðan www.blog.katr-
inbjork.com er full af fallegum
hugmyndum og þá sérstaklega
jólahugmyndum þessa dagana. Lík-
legast hafa flestir nóg að gera í
dag en ef þig myndi langa til að
búa til fíkju- eða chili-sultu svona
korteri fyrir jól þá finnur þú upp-
skriftir að slíku hér. Katrín Björk
sem heldur vefsíðunni úti er mikill
fagurkeri og eins eru myndirnar
hjá henni mjög fallegar. Enda starf-
ar hún sem frílans ljósmyndari. Á
síðunni segir að Katrín Björk hafi
mikinn áhuga á hönnun, listum,
ferðalögum og heilbrigðum lífsstíl.
Hún hefur gott auga fyrir fallegum
smáatriðum og hlutum sem krist-
allast í óskalistum hennar fyrir jól-
in. Falleg síða og skemmtileg sem
vert er að smella í möppuna og
skoða reglulega til að gleðja augað
í skammdeginu.
Vefsíðan www.blog.katrinbjork.com
Morgunblaðið/Arnaldur
Krukka Góða sultu er nauðsyn að eiga í ísskápnum, ofan á brauð eða í sósuna.
Gott auga fyrir fallegum hlutum
Þá líður að því að klukkur landsins
hringi inn heilög jól. Eftir anna-
sama daga á aðventu gefst nú ljúf-
ur og góður tími til að eyða með
vinum og fjölskyldu. Einbeitum
okkur að því að stilla hugann en
það getur jú tekið dálítinn tíma að
ná sér niður eftir stress sem oft
vill fylgja fyrir hátíðar. Kannski
væri ráð að skella sér í langt og
gott bað eða bara í heita pottinn
og tæma algjörlega hugann. Þetta
hjálpar manni að finna jólafriðinn
og jólabarnið innra með sér. Með
ósk um gleðileg jól og ljúfar stund-
ir yfir hátíðardagana.
Endilega…
…finnið
jólafriðinn
Morgunblaðið/Ernir
Jólakyrrð Gott er að tæma hugann
með heitu baði eða göngutúr.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Blessuð jólin koma í dag og þá
kætast börnin stór og smá. Enda
eigum við flest lítið jólabarn innra
með okkur og hugurinn vill reika til
bernskujólanna á þessum tíma.
Mikilvægt er að hafa þakklæti í
huga á þessum árstíma. Enda geta
því miður ekki allir haldið gleðileg
jól í þessum heimi og vert er að
muna eftir söngtexta Magnúsar Ei-
ríkssonar þar sem segir svo: Víða’
er hart í heimi, horfin friðar sól.
Margir láta gott af sér leiða yfir
jólin og hjálpa þeim sem minna
eiga.
Í flestum löndum er þó jólaund-
irbúningurinn gleðilegur og hátíð-
legur og nóg að gera hjá fólki. Hér
má sjá myndir sem sýna jóla-
stemninguna í nokkrum löndum.
Jólaljós lýsa upp umhverfið og
brosin ljóma af spenntum andlitum
barnanna sem geta ekki beðið eftir
jólunum.
Jólum fagnað um heiminn
Króatía Óskalugtum sleppt í loftið.
Víetnam Jólalegur blöðrusali á ferð.
AFP
Belgía Þessir grallaralegu snjókarlar í búðarglugga eru búnir til úr súkkulaði.
Jólaundirbúningur
LAUGAVEGI 5 SÍMI 551 3383 SPÖNGIN GRAFARVOGI SÍMI 577 1660
Gleðileg jól
Við óskum landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar
á komandi árum.
Þökkum viðskiptin
á liðnum árum.