Morgunblaðið - 24.12.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Samtals voru sautján lagafrumvörp samþykkt á
Alþingi síðastliðinn föstudag og aðfaranótt laug-
ardags. Má þar helst nefna að samþykkt var
frumvarp um ný upplýsingalög, frumvarp um
ráðstafanir í ríkisfjármálum (svokallaður band-
ormur), frumvarp um breytingu á lögum um
loftslagsmál (skráningarkerfi losunarheimilda),
frumvarp um breytingu á barnalögum, frumvarp
um breytingu á ýmsum lagaákvæðum um skatta
og gjöld, frumvarp um breytingu á lögum um
tekjustofna sveitarfélaga, um breytingu á lögum
um dómstóla og frumvarp til laga um sölu á eign-
arhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Óframkvæmanleg lög
Við atkvæðagreiðslu við lok annarrar umræðu
um frumvarp um breytingar á barnalögum var
samþykkt breytingatillaga sem lögð var fram af
Birgittu Jónsdóttur, Eygló Harðardóttur, Guð-
mundi Steingrímssyni og Unni Brá Konráðs-
dóttur. Með samþykkt breytingatillögunnar
færðist gildistaka laganna frá 1. júlí 2013 til 1.
janúar næstkomandi. Í samtali við mbl.is síðast-
liðið föstudagskvöld sagði Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, formaður velferðarnefndar Alþingis,
að nú liti allt út fyrir að það tækju gildi lög sem
væru óframkvæmanleg.
Þá voru síðastliðið föstudagskvöld einnig sam-
þykkt lög um veitingu ríkisborgararéttar en með
samþykkt þeirra hljóta samtals 39 einstaklingar
íslenskan ríkisborgararétt. skulih@mbl.is
Samþykktu 17 lög á lokasprettinum
Umdeild breytingatillaga stjórnarandstöðu við frumvarp um breytingar á barnalögum samþykkt
Ný upplýsingalög samþykkt síðastliðið föstudagskvöld Samtals 39 manns fá ríkisborgararétt
Morgunblaðið/Eggert
Jólafrí Alþingi er komið í jólafrí en fundum þess var frestað um þrjúleytið aðfaranótt laugardags.
Alþingi fer í jólafrí
» Með samþykkt frumvarps
um breytingu á lögum um dóm-
stóla var heimild til að setja
varadómara við Hæstarétt Ís-
lands rýmkuð.
» Samkvæmt nýsamþykktum
lögum um sölumeðferð eignar-
hluta ríkisins í fjármálafyrir-
tækjum er ráðherra heimilt að
selja að öllu leyti eða að hluta
eignarhluti ríkisins í Arion banka
hf., Íslandsbanka hf., í Lands-
bankanum hf. (umfram 70% hlut
ríkisins af heildarhlutafé bank-
ans) og í sparisjóðum, að fenginni
heimild í fjárlögum og fengnum
tillögum frá Bankasýslu ríkisins.
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
„Það er ekki auðvelt að skera úr
um hvort það eru stóru brandajól
núna eða ekki,“ segir Árni Björns-
son þjóðháttafræðingur, spurður
hvort svokölluð stóru brandajól
séu nú í ár. Brandajól kallast það
þegar leggjast saman flestir frí-
dagar. Ef aðfangadagur er skil-
greindur sem frídagur og hann ber
upp á mánudag eru þeir orðnir
fimm frídagarnir sem liggja saman
og verða varla fleiri. „Já, það má
kannski segja það, en það skiptir
líka máli hvar þrettándinn lendir
og ég er bara ekki búinn að reikna
þetta út,“ segir Árni. „En stóru
brandajól voru með öðrum hætti
hér áður fyrr. Því þá var til dæmis
ekki frí á laugardegi og því var
gjarnan miðað við þegar fjórða í
jólum bar upp á sunnudag. En það
var líka með öðrum hætti þá, að
hér áður fyrr var líka frí á þriðja í
jólum og jafnvel fjórða í jólum og
kallaðist þá fjórheilagt. Það gildir
ekki það sama og fyrir 300 árum.
Eitt af því sem lútersmenn gerðu
við siðaskiptin var að fækka helgi-
dögum af praktískum ástæðum svo
fólk gæti unnið meira.“
Brandajól komin af eldibrandi
Elsta heimild um brandajól er í
minnisgrein frá Árna Magnússyni
frá um 1700. Í bókinni Sögu dag-
anna er sagt frá þeirri tilgátu að
orðið brandur gæti hæglega merkt
eldibrandur þar sem þurfti að
safna miklum eldivið fyrir hátíð-
arnar. „Það er eina skynsamlega
skýringin á nafninu sem maður
finnur, en hún er ekki örugg,“ seg-
ir Árni um það.
Brandajól gengin í garð?
Morgunblaðið/Ómar
Frí Margar fjölskyldur fá óvenjumikinn tíma saman um þessi jól.
Það kallast brandajól þegar leggjast saman flestir frídagar yfir hátíðarnar Flestir í fríi frá laug-
ardegi fram á fimmtudag Erfitt að skera úr um hvort það eru stóru brandajól núna eða ekki
Fjölmargir tóku þátt í árlegri friðargöngu sem
fór niður Laugaveginn í gærkvöldi. Söngfólk úr
Hamrahlíðarkórnum og Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð söng í göngunni og við lok fundar á
Ingólfstorgi. Íslenskir friðarsinnar hafa efnt til
göngunnar í rúmlega þrjá áratugi.
Morgunblaðið/Golli
Fjölmenni í árlegri friðargöngu á Þorláksmessu
Uppsveitir Ár-
nessýslu eru í
brennidepli viða-
mikillar leitar að
Matthíasi Mána
Erlingssyni. Í
dag, mánudag, er
vika frá því hann
strauk úr fang-
elsinu á Litla-
Hrauni. „Matt-
hías þekkir til
meðal annars við Laugarvatn og
Flúðir og því horfum við m.a. þang-
að. Yfirleitt nást strokufangar fljótt,
oftast fáum klukkustundum eftir
brotthlaup. Einskis fanga hefur ver-
ið leitað jafn lengi og nú. Við förum
yfir allar vísbendingar en þær hafa
samt ekki komið okkur á sporið,“
sagði Ágúst Svansson aðalvarðstjóri
sem stýrir aðgerðum. Hann sagði að
í dag, aðfangadag, yrði farið heild-
stætt yfir málið og aðgerðir end-
urskipulagðar ef ástæða þætti til.
Konan sem Matthías var dæmdur
í fangelsi fyrir að ráðast á er flúin úr
landi. Taldi hún sig í hættu á meðan
hann gengi laus og raunar fór hún í
öruggt skjól strax eftir strokið.
sbs@mbl.is
Leitað í upp-
sveitunum
Vika liðin frá
stroki Matthíasar
Matthías Máni
Erlingsson
Í Sögu daganna eftir Árna
Björnsson segir: „Mjög senni-
legt er að hugtakið stóru
brandajól stafi frá þeim árum
sem menn minntust enn hinnar
gömlu fjórhelgar, nema það sé
frá tímum siðaskiptanna þegar
menn söknuðu fimmhelg-
arinnar. Á miðri 20. öld virðast
menn helst hafa talið að stóru
brandajól væru þegar aðfanga-
dag bæri upp á fimmtudag.“
Brandajól
MARGIR HELGIDAGAR Í RÖÐ