Morgunblaðið - 24.12.2012, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
• Starfsfólk Orkuveitu Reykjavíkur óskar þér gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. www.or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
62
44
8
12
/1
2
VIÐ ERUM Á VAKTINNI
ALLAN SÓLARHRINGINN
Við erum
til taks Við treystum sjaldan meira á orkuna en um jól og áramót. StarfsfólkOrkuveitu Reykjavíkur er í viðbragðsstöðu til að tryggja þér birtu og ylum hátíðirnar. Gleðilega hátíð!
Í hófi sem haldið var í tilefni af út-
gáfu bókarinnar VFÍ í 100 ár -
Saga Verkfræðingafélags Íslands
fengu heiðursfélagarnir Vigdís
Finnbogadóttir og Egill Skúli Ingi-
bergsson, bókina afhenta. Með út-
gáfu bókarinnar hefur það mark-
mið náðst sem sett var á 90 ára
afmæli félagsins að gefa út ritröð
sem hæfist með bókinni Frum-
herjar í verkfræði og lyki á 100
ára afmælisári með sögu félagsins.
Bókin er í tveimur hlutum.
Fyrri hlutinn fjallar um 50 ára
sögu VFÍ en hún var gefin út í
hefti á 50 ára afmælinu og rituð af
prófessor Jóni Guðnasyni. Bætt
hefur verið inn fleiri myndum og
rammagreinum. Annar hlutinn er
mun stærri og fjallar um seinni 50
árin. Hann er í tíu meginköflum
og var unninn á þann hátt að sér-
fróðir menn á hverju sviði rituðu
hvern kafla. Ritnefnd samræmdi
efnið og skrifaði það sem upp á
vantaði. Meginkaflarnir í bókinni
fjalla um skipulag og félagsstarf-
semi, menntun verkfræðinga,
Verkfræðingahús, kjaramál, út-
gáfu, orðanefndir, formenn og
framkvæmdastjóra, heiðursfélaga,
stórframkvæmdir í landinu og
stórafmæli félagsins. Í ritnefnd
bókarinnar voru Hákon Ólafsson,
Logi Kristjánsson og Sveinn Þórð-
arson.
Fengu
fyrstu
eintökin
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir,
formaður stjórnar Ólafíusjóðs, sem
starfar á vegum íslenska safnaðarins
í Noregi, hefur afhent Hjálparstarfi
kirkjunnar styrk að upphæð 75.000
norskar krónur, eða rúmlega ein og
hálf milljón íslenskra króna, frá safn-
aðarfólki í Noregi. Er styrknum ætl-
að að renna til hjálparstarfs kirkj-
unnar á Íslandi fyrir jólin og vilja
Íslendingar í Noregi með því leggja
lið löndum sínum heima. Með
styrknum fylgja hlýjar jólakveðjur.
Jónas Þórisson veitti styrknum við-
töku. Ólafíusjóður er nefndur í höf-
uðið á trúkonunni Ólafíu Jóhanns-
dóttur, sem starfaði meðal þeirra
sem minnst máttu sín í Osló upp úr
aldamótunum 1900. Hlutverk sjóðs-
ins er að aðstoða bágstadda Íslend-
inga bæði í Noregi og á Íslandi.
Ólafía var brautryðjandi í hjálp-
arstarfi á sinni tíð og hafa Norðmenn
heiðrað minningu hennar með ýms-
um hætti. Brjóstmynd af Ólafíu
stendur nærri Vaterland-brúnni í
Osló og í nágrenninu er gata nefnd
eftir henni; Olafiagangen. Ólafía
sinnti starfi sínu einkum meðal
þeirra kvenna sem minnst máttu sín
í samfélaginu og urðu að þola kyn-
ferðisofbeldi. Þegar Norðmenn settu
á stofn miðstöð fyrir leiðbeiningar
um getnaðarvarnir og meðhöndlun
kynsjúkdóma nefndu þeir hana því
Olafiaklinikken í höfuðið á Ólafíu.
Styrkur til hjálparstarfs
Ólafíusjóðurinn í Noregi afhenti Hjálparstarfi kirkjunnar
styrk að upphæð 1,5 milljónir króna til aðstoðar bágstöddum
„Það var engin skata hér, UPS-
hraðsendingarfyrirtækið sagði að
hún hefði skemmst á leiðinni og
því er hún föst í vöruhúsi í Winni-
peg, en þeir þekkja greinilega
ekki ilminn,“ sagði Grétar Axels-
son á Gimli í Kanada, en hann og
fleiri Íslendingar í bænum hafa
gjarnan borðað skötu frá Íslandi á
Þorláksmessu.
Íslendingar vestanhafs halda
þónokkuð í íslenskar hefðir og nóg
er af þeim í Nýja-Íslandi. Grétar
hefur reynt að verða sér úti um
skötu um árabil og oft tekist, en
nú tók til þess að gera nýfluttur
Íslendingur af honum ómakið og
fékk senda skötu, sem faðir hans
verkaði á Vestfjörðum. „26 manns
voru skráðir í skötuna og þetta
eru því mikil vonbrigði,“ segir
Grétar. steinthor@mbl.is
Engin skata
á Gimli í ár