Morgunblaðið - 24.12.2012, Page 22
BAKSVIÐ
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Sjálfboðaliðar á vegum Rauða kross
Íslands hafa um margra ára skeið
farið utan til þess að sinna marg-
víslegum hjálparstörfum. Á meðal-
ári eru um 5-10 manns erlendis
vegna þessa og óhjákvæmilega ger-
ist það því að sumir sjálfboðaliðanna
eru í verkefnum ytra yfir hátíðarnar.
Í vetur hafa fjórir starfsmenn Rauða
krossins verið í verkefnum erlendis
og þrír þeirra verða þar yfir jól og
áramót.
Magna Björk Ólafsdóttir kom til
Kenýa í byrjun nóvember og sam-
hæfir þar aðgerðir og styður við
landsfélög Rauða krossins þegar
kemur að faröldrum og hamförum í
Afríku.
Magna Björk segir að stefnt sé
að því að hún verði þar í eitt ár og
dvelur Magna Björk því í Kenýa yf-
ir jólin. Hún sér ekki fyrir sér að
það verði mikið jólastress hjá sér,
en þetta er í fyrsta sinn sem hún
heldur jólin sín hátíðleg erlendis.
Sól og blíða og 25 stiga hiti
Magna Björk segir að flestir af
öðrum starfsmönnum Rauða kross-
ins í Kenýa séu farnir í jólafrí og því
hafi ekki verið gerðar neinar sér-
stakar áætlanir um jólin. „Þannig
að þetta verður bara rólegheita að-
fangadagur með hangikjöti og kon-
fekti og svo Skype heim til Íslands,“
segir Magna Björk, en samskipta-
forritið skiptir gríðarlegu máli við
að viðhalda tengslunum heima á
Fróni. „Maður getur alltaf hringt og
það er gott samband þannig að það
verður voðalega gott að geta aðeins
heyrt í fjölskyldunni á aðfangadag,“
segir Magna Björk. „Þetta er fínn
hópur hér líka og við sem erum eftir
gerum örugglega eitthvað í tilefni
jólanna.“
Magna Björk segir að sér finnist
frekar ójólalegt um að litast í Kenýa.
„Það er bara sól og blíða og molla,“
segir Magna og hlær, en hitastigið
þar er í kringum 25-30 gráður á Cel-
síus núna og það er að hitna, enda
hásumar á suðurhveli jarðar. „Jóla-
skapið er því ekki alveg dottið í mig
ennþá, en ég er að vinna í því.“
Magna Björk segir að hún sé ekki
með nein sérstök áform fyrir ára-
mótin, en að hún muni eyða tím-
anum á milli jóla og nýárs í safarí í
þjóðgarðinum í Nairobi, höfuðborg
Kenýa.
Birna Halldórsdóttir hefur verið í
Gambíu síðastliðna hálfa árið að að-
stoða við matardreifingu vegna
uppskerubrests sem varð í fyrra.
„Dreifingunni lauk í október og
núna erum við með það framhalds-
verkefni að styðja við uppbyggingu
á grænmetisgörðum sem eru í fjór-
um þorpum,“ segir Birna en hún
mun líklega snúa heim til Íslands í
byrjun febrúar eftir að því verkefni
lýkur.
„Ég er eini Íslendingurinn hérna í
Gambíu, en ég fæ hérna í heimsókn
fimm manna fjölskyldu, hluti af
henni kemur frá Gíneu-Bissau, svo
kemur ein íslensk vinkona mín sem
er að vinna í Malaví og ein hálf-
íslensk stúlka sem verður hérna líka,
þannig að við verðum átta Íslend-
ingar saman hér yfir jólin, þannig að
það verður ekki einmanalegt fyrir
mig.“
Vegna þess að enginn Íslending-
anna kemur beint frá Íslandi verður
fátt um íslenskan jólamat á boð-
stólum, hvorki hangikjöt né malt og
appelsín. Birna segir að það sé ekki
mjög jólalegt um að litast í Gambíu,
flestir íbúar þar séu múslimar sem
haldi ekki upp á jólin, þannig að lítið
sé gert til að skapa jólastemningu í
aðdraganda jólanna, engin jólalög
spiluð eða neitt þannig.
„Í fyrsta lagi er skrítið að vera í
sól og sumaryl og síðan er skrítið að
það sé ekkert jólalegt í kring. Ég er
samt búin að skreyta smá og spila
jólalögin heima hjá mér þannig að ég
fæ jólafiðringinn bara þar,“ segir
Birna sem saknar íslenskra að-
stæðna yfir jólin. „Ég er mikið jóla-
barn, mér finnst yndislegt á aðvent-
unni. Hún er yndislegur tími sem
allir eiga að njóta.“
Jólagestir Birnu fara síðan til Ís-
lands á milli jóla og nýárs en þá fær
hún son sinn og tengdadóttur ásamt
móður hennar í heimsókn. „Það
verður því mjög gestkvæmt hjá mér
og ég get ekki kvartað yfir því að
vera ein yfir hátíðarnar,“ segir
Birna sem vill óska landsmönnum
öllum gleðilegrar hátíðar ljóss og
friðar.
Jólin haldin um hásumarið
Starfsfólk Rauða krossins er oft erlendis yfir jól og áramót Ójólalegt um að litast í Afríku á
þessum árstíma 600.000 krónur sem söfnuðust hérlendis í tombólum fóru til skólastarfs í Gambíu
Ljósmynd/Magna Björk Ólafsdóttir
Í Kenýa Magna Björk Ólafsdóttir samhæfir aðgerðir Rauða krossins þegar kemur að hamförum og faröldrum í
Afríku. Hérna er hún í hópi kátra krakka í Kenýa. Þetta er í fyrsta sinn sem hún heldur jólin hátíðleg erlendis.
Ljósmynd/Rauði krossinn
Skólabörn í Gambíu Birna Halldórsdóttir hefur verið í hálft ár í Gambíu.
Hér sést hún með skólabörnum. Hún er eini Íslendingurinn á svæðinu.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Íslensk börn eru dugleg að
halda tombólur og mörg hver
ákveða að styrkja Rauða kross-
inn með ágóðanum. Á hverju ári
safnast þannig um 600.000
krónur. Í ár var ákveðið að nýta
peninginn til þess að hjálpa
börnum í Gambíu með skóla-
göngu sína. „Í sumum skólum
hérna er skylda að vera í skóla-
búningi, annars fá þau ekki að
ganga í skólann,“ segir Birna
Halldórsdóttir. Fyrir tombólu-
peninginn í ár hafa því verið
keyptar skólatöskur, stílabæk-
ur, skriffæri og 2 sett af skóla-
búningum handa börnum í fjór-
um skólum sem annars hefðu
ekki haft efni á slíku og því
þurft að fara á mis við skóla-
göngu sína.
Skaffa skóla-
búninga
Námsfús Skólabörn í Gambíu.
TOMBÓLUSAFNANIR
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Óskum viðskiptavinum okkar
og landsmönnum öllum
gleðilegrar jólahátíðar og
farsældar á komandi ári
Trimmklúbbur
Seltjarnarness
stendur fyrir
svokölluðu
kirkjuhlaupi á
annan dag jóla,
26. desember.
Lagt verður af
stað frá Seltjarn-
arneskirkju kl.
10:00 og hlaupin
um 14 km leið
fram hjá fjölmörgum kirkjum borg-
arinnar; Rússnesku rétttrúnaðar-
kirkjunni, Landakotskirkju, Hjálp-
ræðishernum, Dómkirkjunni,
Fríkirkjunni, Kirkju aðventista,
Hallgrímskirkju, Háteigskirkju,
Kirkju óháða safnaðarins, Foss-
vogskapellu, Neskirkju og Seltjarn-
arneskirkju. Auðvelt er að stytta
leiðina ef fólk vill. Ekki er boðið
upp á tímatöku.
Að loknu hlaupi býður Seltjarn-
arneskirkja hlaupurum upp á heitt
kakó og smákökur.
Í fyrra tóku um 70 hlauparar þátt
í hlaupinu.
Kirkjuhlaup haldið
á annan dag jóla