Morgunblaðið - 24.12.2012, Qupperneq 31
FRÉTTIR 31Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Öllum þykir okkur mikilvægt að
finna til öryggis í lífinu.
Dynjandi hefur verið leiðandi á
sviði öryggisvara síðan 1954.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
ÖRUGGLEGA FYRIR ÞIG!
Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is Skeifunni 3 - Sími: 588 5080 - dynjandi.is
Gleðilega hátíð
og þökk fyrir
viðskiptin á árinu.
Öllum þykir okkur mikilvægt
að finna til öryggis í lífinu.
Dynjandi hefur verið leiðandi
á sviði öryggisvara síðan 1954.
Dynjandi örugglega fyrir þig!
Ögurhvarfi 2 • 203 Kópavogi • Sími 567 1770 • Opið alla daga kl. 10 -23
Óskum landsmönnum
öllum gleðilegra jóla
og farsældar
á komandi ári
Stjórnvöld í
Bandaríkjunum
hafa afhent
íröskum sveitum
tvö skip sem nýta
á við eftirlit og
önnur verkefni
við strendur
landsins.
Skipin, sem
eru um 60 metrar á lengd, voru af-
hent af sjóher Bandaríkjanna 20.
desember síðastliðinn en sam-
kvæmt upplýsingum frá stjórnvöld-
um vestanhafs geta skipin m.a. að-
stoðað olíuborpalla, stærri
eftirlitsskip og árásarbáta. Að auki
má nýta skipin til fleiri verkefna,
m.a. þegar færa þarf öryggissveitir
á milli staða.
Eftir að brottflutningi Banda-
ríkjahers lauk 18. desember á síð-
asta ári eru nú innan við 200 her-
menn eftir í landinu og aðstoða þeir
einkum við þjálfun innlendra ör-
yggissveita.
ÍRAK
Bandaríkin afhenda
Írökum tvö skip
Maður íklæddur
jólasveinabún-
ingi var hand-
tekinn í borginni
Austin í Tex-
asríki í Banda-
ríkjunum eftir
að hafa ritað
með krít á stétt-
ina fyrir framan
þinghúsið. Kemur þetta fram á
vef bandarísku fréttaveitunnar
Huffington Post.
Vitni segjast hafa séð Sveinka
þar sem hann hvatti nærstödd
börn til þess að rita hvatning-
arorð um betri heim á stéttina.
Ekki vildi betur til en svo að
Sveinki var samstundis tekinn
höndum og sakaður um refsi-
verða háttsemi. Nærstaddir
brugðust ókvæða við og bentu á
að fleiri en jólasveinninn hefðu
ritað á stéttina en slíkt skeyttu
laganna verðir ekki um heldur
leiddu jólasveininn á brott.
BANDARÍKIN
Sveinki tekinn
höndum í Texas
Elísabet II Englandsdrottning var ekki viðstödd guðs-
þjónustu í kirkju Maríu Magðalenu í Sandringham í Nor-
folk á Austur-Englandi eins og venja er. Ástæðan mun
vera sú að drottningin ákvað að hvílast lengur þar sem
hún er enn að ná sér eftir kvefpest. Filippus prins, ásamt
fleiri meðlimum bresku konungsfjölskyldunnar, var hins
vegar viðstaddur athöfnina.
Talsmaður konungsfjölskyldunnar segist eiga von á
því að drottningin snúi fljótlega til starfa á ný og að ekki
sé við öðru að búast en hún taki þátt í öðrum hefð-
bundnum hefðum í kringum jólahátíðina.
Breska konungsfjölskyldan dvelur vanalega í Sandringham yfir jólin en
nýverið var tilkynnt að Vilhjálmur prins og Katrín eiginkona hans yrðu hjá
fjölskyldu hennar á jóladag. Yngri prinsinn, Harry, verður einnig fjarri
góðu gamni þar sem hann gegnir nú herþjónustu í Afganistan.
Drottningin hélt kyrru fyrir í rúmi sínu
Elísabet II.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga