Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 24.12.2012, Blaðsíða 39
UMRÆÐAN 39 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012 Er jólin ganga senn í garð, við gleðjumst yfir því sem varð, á helgri hátíð nú. Á jólum fæddur Jesús var á jörðu er fagnað allstaðar, og þessu fagnar þú. Við ljóssins hátíð höldum hér, þar heilög birta skín við mér, og englar syngja söng. Úr fjárhúsinu birtu ber, á barnið sem að nýfætt er nú er ei nóttin löng. Á andartaki allt varð bjart, er flýði næturhúmið svart, því geisla sló á grund. Í fjárhúskofa friður var með fjárhirðum sem komu þar og staldra við um stund. Hver atburðurinn annan rak. hvert afdrifaríkt andartak, var allt af Guði gert. Þá hæst bar fæðing frelsarans; er fæddist Guð í líking manns. Og það varð opinbert. En englakórinn söng af sál, sjálf dýrin fengu mannamál, svo helg er hátíð sú. Og fjárhirðarnir fögnuð þann, fluttu inn í sérhvert rann. Því Guð nú gaf þeim trú. Því frelsarinn nú fæddur var, er fróða menn að garði bar, í jötu Jesús lá. Og fögnuði þeir fylltust þar, þeir fengið höfðu bænasvar. Þar frumburð fengu að sjá. En fæðing Drottins blessun bar, boðin lýð til fagnaðar, sem barst um heiminn brátt: Drottinn, er fæddur í Davíðs borg! Dýrð sé Guði um stræti og torg! Fögnum í friði og sátt. Heilög jólin gaf þér Guð, er gæska hans var fullkomnuð. Hann gaf oss sáttargjörð. Enn vill hann gefa þér gleðileg jól, Guð er við syngjum Heims um ból, Því helg er hátíð á jörð. Á helgri hátíð nú Sigurður Rúnar Ragnarsson Höfundur er sóknarprestur í Norðfjarðarprestakalli. Sunnuhlíð 12, Akureyri, sími 462 1415 www.tonabudin.is Síðumúla 20, Reykjavík, sími 591 5340 www.hljodfaerahusid.is Yamaha píanó og flyglar með og án “silent” búnaðar. Áratuga góð reynsla gerir Yamaha að augljósum kosti þegar vanda skal valið. Veldu gæði, veldu Óskum viðskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla Starfsfólk Eignamiðlunar S í ð u m ú l a 2 1 · S . 5 8 8 9 0 9 0 · w w w . e i g n a m i d l u n . i s Óskum vinskiptavinum okkar og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu. Jólakveðja, starfsfólk Höfða fasteignasölu. Nú hefur Norður-Kóreumönnum loks tekist að skjóta eldflaug með gervitungli á sporbraut umhverfis jörðu. Þetta eru váleg tíðindi fyrir friðinn í heim- inum, vegna þess að það sýnir að fátæk þjóð getur bæði komið sér upp kjarnorku- sprengjum og burðartækni til að koma þeim á áfangastað hvar sem er í heim- inum. En þá er ekki loku skotið fyrir það að mörg önnur ríki fari að fordæmi hennar; með þeim afleið- ingum að aðeins sé tímaspursmál hvenær kjarnorkuvopn verði svo út- breidd, að ómögulegt verði að forða heiminum frá margfalt meiri stríðs- eyðileggingu en áður hefur þekkst. Enn sem komið er má þó telja kjarnorkuveldin á fingrum beggja handa; en það eru Bandaríkin, Rúss- land, Frakkland, Bretland, Kína, Indland, Pakistan, Norður-Kórea og Ísrael. Miklu skiptir fyrir trú á heims- friðinn að handhafar kjarnorku- vopnanna séu ríki sem hafa langa og trúverðuga sögu stöðugleika að baki. Þetta á við um Bandaríkin, Bretland og Frakkland, en ekki um Rússland, Kína, Indland, Pakistan, Norður- Kóreu og Ísrael. Alvarlegast er þó fyrir okkur Ís- lendinga að helsta óstöðuga kjarn- orkuveldið er við bakgarðinn hjá okkur; nefnilega Rússland. En það land hefur áður beint kjarnorku- flaugum sínum að Íslandi og ef lík- legt er að heimurinn lendi í kjarn- orkustyrjöld á næstu áratugum er sennilegast að Ísland verði fyrir hvað mestum skaða frá því ríki. Raunar má segja að svo líklegt sé að gereyðingarmáttur kjarnorku- styrjalda hitti Íslendinga fyrir á næstu áratugum að barnalegt sé að láta eins og sú framtíð snúist einkum um hagvaxtarörvun, umhverfis- vernd eða Evrópusambandsaðild; ef ætla megi að eftir hálfa öld búi hér í besta lagi fámenn, sjúk og fátæk þjóð, í kjölfar eitrunar kjarnorku- stríðs; og skiptir þá víst litlu máli hvort hún tali ennþá íslensku og verði sjálfstæð íslensk bókaþjóð. Líkt og í kalda stríðinu munu flestir okkar vilja humma þessa ógeðfelldu framtíðarsýn fram af sér. En reynslan kennir okkur þó að ekk- ert fæst að gert ef við fljótum sof- andi að feigðarósi: Ef við fáum eitt- hvað að gert verður það líklegast í skjóli Bandaríkjanna og Nató og Evrópusambandsins. Og við þurfum strax að byrja á því að fylgjast með þróuninni í kjarn- orkuvígbúnaðarmálum aftur. Ég vil enda þessi inngangsorð með því að birta brot úr ljóði eftir mig í Stúdentablaðinu 1984. Það heitir Sálmur fyrir árið 2084 og er lýsing á kjarnorkuárás. Það var svo endurbirt í ljóðabókinni minni Tró- meti og fíóli, frá 1992. En þar segir meðal annars: Elstu menn mundu ekki / annað eins tíðarfar; / máttu ekki um frjálst höfuð strjúka / fyrir fljúgandi hús- gögnum, / mjólkurkúm og blikk- beljum, / konum og dætrum náung- ans. Og ljósið brenndi burt kynþætt- ina, / gerði vopnin að fornleifum / en mennina að hráefnum. / Og Guði fannst það harla gott / og lét nýjan snjó falla / með nýjum fyrirmælum. TRYGGVI V. LÍNDAL, skáld og menningar- mannfræðingur. Geimskot N-Kóreu og kjarnorkuváin Frá Tryggva Líndal Tryggvi V. Líndal Nú geta allir fengið iPad-áskrift Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.