Morgunblaðið - 24.12.2012, Síða 44

Morgunblaðið - 24.12.2012, Síða 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012 Mig langar til að minnast Helga frænda míns frá Vals- hamri með nokkrum orðum. Efst í huga mér er þakklæti til hans fyrir þau ár er ég dvaldi hjá honum í sveitinni á yngri ár- um, þar átti ég góðar stundir. Það var alltaf tilhlökkun að komast í sveitina eftir að skóla lauk á vorin og þangað fór ég oftast í öllum mínum fríum. Helgi var alltaf tilbúinn að leið- beina unga vinnumanninum við sveitastörfin. Margar ferðir fór ég með honum á fjall bæði að vori og hausti. Það var alltaf gaman að vera með honum í þessum ferð- um, þar naut hann sín vel og þekkti vel til. Hann var alltaf tilbúinn að fræða okkur um um- hverfið og þekkti þar öll örnefni sem hann var óspar á að segja okkur hinum. Sveitin og sveitastörfin voru hans líf og yndi og var hann ekki mikið fyrir að víkja frá þeim störfum. Þó svo að hann væri orðinn sjúklingur nú hin seinni ár og nánast bundinn heima við fylgdist hann vel með því sem var að gerast í búskapn- um. Það sá ég best er ég tók þátt í sauðburði á Valshamri sl. tvö ár. Eitt sinn kom ábending frá honum um að kind gæti ekki borið í brekkunni fyrir utan fjárhúsin. Þá hafði hann verið að fylgjast með í kíkinum sínum og sá þá að eitthvað var að þarna og var fljótur að láta okkur Valla vita af því. Alla tíð var notalegt að koma Helgi Júlíus Hálfdánarson ✝ Helgi JúlíusHálfdánarson fæddist í Valdarás- seli í Víðidal 19. júlí 1927. Hann lést á Sjúkrahúsi Akra- ness 14. desember 2012. Úför Helga var gerð frá Borg- arneskirkju 22. desember 2012. til þeirra Helga og Sveinu og alltaf tekið vel á móti manni. Hann heils- aði mér alltaf með orðunum „Sæll Sæbbi minn“ og þótti mér alltaf jafnvænt um að heyra það. Það var gælunafn sem hann gaf mér og notaði alla tíð. Elsku frændi, ég kveð þig með þakk- læti í huga fyrir öll þau góðu samskipti sem við höfum átt. Ég vil votta Sveinu, Halla, Valla, Hafdísi og fjölskyldum þeirra mína dýpstu samúð á erfiðri stundu. Samúðarkveðjur. Sævar Þ. Þórisson (Sæbbi). Það mun verið hafa fyrstu ár- in sem við áttum heima í Borg- arnesi sem við hittumst fyrsta sinn, nafnarnir, og upp hófust okkar kynni og urðu með tím- anum tengsl sem fjölskyldu- bönd. Nafni var reyndar þá drengur í foreldrahúsum sem það heitir, eða hvort hann hefur þá verið skráður vinnumaður, en fljótlega kom í ljós að hann ætl- aði sér og varð viðtakandi bóndi á bænum. Það gerðist árið 1957 og sama ár kvæntist hann sinni ágætu konu Sveinfríði Sigurð- ardóttur. Það kom fljótlega í ljós að Helgi var gott efni í bónda og þegar ég, sem hef verið kunn- ugur þar á bæ alla tíð, lít yfir farin ár fer ekki hjá að ég meti þá kosti sem hann virtist hafa umfram aðra sem ég þekkti til, en ég þykist ekki þekkja mann sem hefur með farsælli hætti varið allri sinni ævi sem bóndi. Um búsafurðir og annað sem tók til daglegra starfa á þeim bæ heyrðist aldrei nokkurt orð né í neinu athugavert og hefði þó ef svo hefði verið, áreiðan- lega frést til næstu bæja og því er ég sannfærður um að þar hefur allt verið fullkomið. Eitthvert sinn kemur hann að máli við mig og þarf rafvirkja. Þá var ekkert rafmagn komið um þá sveit og þess ekki von næstu árin svo bóndinn hafði lagt inn pöntun fyrir nýrri ljósa- vél, af bestu og fullkomnustu gerð sem þá var að fá. Var nú lagt í að rafvæða bæði bæ og önnur hús og þetta tók ein- hverja daga og lýsing um allt ljómaði. Ég hafði aldrei séð nafna koma til Borgarness nema þá á traktor, en sennilega hefur það verið um líkt leyti og lagt var rafmagn í bæinn, að Helgi kem- ur á splunkunýjum Land-Rover dísilbíl, ekkert minna en það al- besta. Einhverjum árum seinna kemur hann enn til mín og þarf þjónustu, þá voru nokkur ár frá því fyrst var til sjónvarp og nú hafði nafni keypt sér tæki til þess brúks og þegar ég kom upp eftir þá er þetta eitt það stærsta sem ég hafði séð, heill stór skáp- ur og innihélt bæði sjónvarp, út- varpstæki og ég held líka radíó- grammófón, ekkert minna en það alflottasta. Og einhvern tíma urðu ein- hver eigendaskipti á næsta bæ við Valshamar þar sem hét Há- hóll og þar sem þessir bæir báð- ir voru að nokkru nátengdir, ég held sama aðkomuleið og lá um hlað hjá nafna, gerði hann sér lítið fyrir og keypti bara Háhól og nytjaði sjálfur og seinna eldri sonurinn. Ég var líklega farinn frá Borgarnesi þegar að Valshamri kom svo loksins rafmagn frá samveitu og sömuleiðis missti ég af því þegar þar var byggt nýtt íbúðarhús og í það kom ég fyrsta sinn seinasta sumar og heilsaði upp á nafna, en ég hafði þó hitt hann nokkrum sinnum, einu sinni til dæmis þegar hann lá hér á Landspítala eftir hjarta- skurð og einhver sinn oftar. Þetta eru punktar frá okkar samskiptum gegnum árin, drep- ið á örfáa en ég segi frá vegna þess að mér finnst hann hafa alla tíð sýnt í verki hvernig á að vera bóndi. Helgi Ormsson. Kveðja frá Ungmenna- félaginu Breiðabliki Gunnar Reynir Magnússon var einn af máttarstólpum þeirrar kynslóðar á Íslandi sem nú er að renna sitt skeið. Úr fá- brotnu uppeldi hóf hann sig á eigin spýtur til náms og síðar í fremstu röð fagmanna á sviði endurskoðunar hérlendis. Gunnar bjó sér og fjölskyldu sinni heimili í Kópavogi, lengst af í stóru og glæsilegu húsi í Hrauntungu 3. Þar ólu hann og Sigurlaug kona hans upp sín börn, fjórar dætur og tvo syni. Það var einmitt í gegnum knattspyrnuþátttöku Hákonar sonar Gunnars sem hann hóf að venja komur sínar á völlinn hjá Breiðabliki strax upp úr 1970. Frá 1979 er Gunnar síðan fasta- Gunnar Reynir Magnússon ✝ Gunnar ReynirMagnússon fæddist 8. nóv- ember 1925 í Ný- lendu í Miðnes- hreppi, Gullbringusýslu. Hann lést á Landa- kotsspítala í Reykjavík 5. des- ember 2012. Útför Gunnars Reynis fór fram frá Digraneskirkju í Kópavogi 14. desember 2012. gestur á leikjum meistaraflokks karla í knatt- spyrnu, allt fram á allra síðustu ár er heilsan leyfði ekki lengur vallarferðir. Til þess var ávallt tekið að Gunnar mætti ekki síður á leiki þegar á móti blési hjá Breiða- bliki en þegar bet- ur gekk. Gleði hans var því ósvikin þegar Breiðablik varð Bikarmeistari karla árið 2009 og enn meiri þegar liðið varð Íslandsmeistari árið 2010. Gunnar sýndi hug sinn gagn- vart Breiðabliki víðar en ein- göngu á vellinum. Hann varð aðili að styrktarmannafélagi knattspyrnudeildar strax árið 1977, færði deildinni stundum gjafir, tók virkan þátt í get- raunastarfi, mætti stundum út á flugvöll til að taka á móti lið- inu eftir leiki úti á landi og svo mætti lengi telja. Ég fékk tækifæri til strax í æsku að kynnast Gunnari. Minnist ég hans sem ígrundaðs og virðulegs manns með leiftr- andi kímnigáfu í farteskinu. Vörumerkin voru að sjálfsögðu blái Benzinn Y-595 og hatturinn sem hann bar ávallt á höfðinu. Það var mér því mikil ánægja að fá tækifæri til þess sem formaður Breiðabliks að sæma Gunnar æðsta heiðurs- merki félagsins á 85 ára afmæli hans fyrir tveimur árum. Við þá litlu athöfn fór ekki framhjá neinum sem á horfði að sá gamli var ánægður og stoltur af viðurkenningunni. Sú viður- kenning er þó ekki nema örlítill þakklætisvottur á móti þeim stuðningi sem Gunnar veitti Breiðabliki í gegnum tíðina. Fyrir hönd Breiðabliks sendi ég Sigurlaugu og öðrum fjöl- skyldumeðlimum samúðar- kveðjur. Formaður Breiðabliks, Orri Hlöðversson. Þegar hún mamma mín dó árið 1980 birtust um hana tvær minningargreinar í Mogganum. Önnur var skrifuð af „Systk- inunum í Hrauntungu 3“, börn- um Gunnars Reynis, móður- bróður míns og undir hina var ritað „Vinur“. Minningargreinin frá „Vini“ mömmu var hófstillt og falleg og byrjaði náttúrlega á hefð- bundnum ættfræðiupplýsingum um framættir, systkini og börn hinnar látnu en endar á þessum orðum: „Við sem höfum átt því láni að fagna að hafa átt sam- fylgd með henni í gegnum árin, finnum best nú að við eigum henni skuld að gjalda. Sú skuld verður aldrei greidd á þann veg sem vert er. Hinsvegar er minning um hana samofin í þá mynd sem við gerum okkur um þá persónu sem rís undir því heiti að vera góð manneskja – Kærleikur til annarra, heiðar- leiki og fórnfýsi.“ Mér fannst sem unglingi pirrandi og hálf- truflandi að einhver „vinur“ væri að skrifa um hana mömmu mína og fljótlega kom í ljós að sá sem hafði skrifað þessi minningarorð var Gunnar Reynir bróðir hennar. Það hjálpaði mér eiginlega ekkert. Hvernig gat hann, bróðir henn- ar sagst vera vinur hennar – það var fyrir ofan minn skiln- ing. Hann Reynir, eins og hann var kallaður á mínu heimili var álíka kjarni og kjölfesta í stór- fjölskyldunni og mamma hafði verið. Til hans var leitað með allt sem viðkom fjármálum og því um líku. Maður sagði ekki margt þegar maður hímdi hálf- skelfdur í gestastólnum í skrif- stofunni á meðan hann riggaði upp svo sem eins og einni skattaskýrslu á sjö mínútum og fann einhverja ótrúlega frá- drætti til handa nánast vega- lausri systurdóttur á níunda áratug síðustu aldar. Ég taldi mér trú um að eftirprentun hans af málverki Picasso, Guer- nica væri á einhvern hátt stærri, betri, merkilegri en aðr- ar eftirprentanir. Og svo leyfði hann sér að kaupa alls konar stórar og flottar bækur bara svona til þess að eiga. Það hefur runnið æ betur upp fyrir mér eftir því sem árin líða hvað þau áttu sameiginlegt systkinin frá Nýlendu og Reyn- ir náði að fanga svo fallega í minningarorðunum um mömmu – það að vera góðar manneskj- ur – og sannarlega voru þau Reynir og mamma vinir. Silla, þú ótrúlega manneskja og börnin ykkar öll. Ég á skuld að gjalda. Inni- legar samúðarkveðjur. Sólveig Ólafsdóttir. Ég man fyrst eftir Gunnari Reyni í einhverju stússi með pabba, þegar pabbi var að glíma við skattskýrsluna. End- urskoðandinn var hæglátur og ráðagóður. Hann var á öllum Breiðabliksleikjum. Ég var barn að aldri fastagestur á Al- þýðubandalagsfundum – þar var Gunnar Reynir líka. Hann var einn úr þeim fjölmenna hópi hugsjónafólks sem fyrst byggði nýjan bæ og leiddi hann um langa hríð. Kópavogur byggðist sem flóttamannabúðir undan ofríki Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavíkurborg. Vinstri- menn áttu lítinn kost á lóðum í Reykjavík og leituðu því eftir lóðum og kofum í þeirri sveit sem Kópavogur var þá. Alþýðu- flokkarnir tveir í Kópavogi byggðu á þessari arfleifð frum- byggjanna og voru burðarásar í uppbyggingu félagslegrar þjón- ustu sem var í fremstu röð meðal sveitarfélaga landsins. Gunnar Reynir var ásamt fjölskyldu sinni óaðskiljanlegur hluti af Alþýðubandalaginu og síðar Samfylkingunni í Kópa- vogi. Hann glímdi við mikið heilsuleysi síðustu ár, en var allt fram í andlátið framsýnn og fordómalaus og skildi mikilvægi þess að flokkurinn væri í stakk búinn til að mæta nýjum tím- um. Hann var eindreginn stuðningsmaður minn og svo ákveðinn og harðdrægur í stuðningi að mér þótti stundum nóg um. Ég man þegar hann kom á Landsfund 2009 til að veita mér brautargengi í vara- formannskjöri og gat varla gengið. Hann var rúmfastur síðustu mánuðina, en gerði ráð- stafanir til að fá tölvubúnað til að tryggja að hann gæti veitt mér kærkominn stuðning í prófkjörinu nú í nóvember. Slíks mannkostamanns er ljúft að minnast og þakka fyrir stuðning og samferð. Ég þakka fyrir hönd Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi allt hans góða starf í þágu flokksins og forvera hans alla tíð og votta Sigurlaugu og fjölskyldunni allri mína dýpstu samúð. Árni Páll Árnason. Gummi minn, margs er að minnast þar sem rúmlega fjöru- tíu ár eru frá okkar fyrstu kynn- um. Það er ótrúlega erfitt að þurfa að kveðja þig þegar þú ert loksins búinn að fá bót meina þinna eftir hjartaaðgerð og and- lega hliðin búin að vera góð síð- an þá. Ég hef stundum hugsað um það hvernig þú myndir líta út sem gamall maður, en ég sá alltaf fyrir mér að þú myndir lifa mig og að dætur okkar myndu þá gæta þín. Dagurinn 22. nóvember síð- astliðinn rennur mér aldrei úr minni, á leiðinni upp á spítala gerði ég mér enga grein fyrir hversu alvarlega slasaður þú varst. Þú sýndir nú viðbrögð við „gömlunni þinni“ þegar við hitt- um þig fyrst á gjörgæslu en eftir það gátum við bara vonað að þú myndir ná fullri meðvitund aft- ur. Flest okkar búskaparár bjuggum við í Þorlákshöfn og þar ólust dætur okkar upp og áttu sín uppvaxtarár. Fluttum svo 1997 til Reykjavíkur í Engja- selið en þar gat stórfjölskyldan komið saman og átt notalegar stundir hjá okkur. Á einum tíma- punkti bjuggum við t.d. ellefu saman í heimili þegar eldri dæt- ur okkar voru á milli íbúða og mamma þín bjó líka hjá okkur. Við höfum bæði átt við veikindi að stríða og einhvern veginn allt- af náð að styrkja hvort annað í gegnum þau. Þú hefur verið mín stoð og stytta og hjálpað mér í gegnum óteljandi hluti og at- burði. Ekki þurfti annað en að spyrja þig hvenær ákveðnir at- burðir áttu sér stað þá varstu með dagsetningu og ártal á hreinu. Ótrúlegustu setningar ultu stundum út úr þér, ég man sér- Guðmundur Sigurðsson ✝ GuðmundurSigurðsson fæddist í Reykjavík hinn 8. janúar 1944. Hann lést á heila- og taugaskurð- lækningadeild Landspítalans í Fossvogi 14. des- ember 2012. Útför Guð- mundar fór fram frá Bústaðakirkju 20. desember 2012. staklega eftir einu skipti þegar ég hafði litað hárið á mér og dekkt það talsvert, en við vor- um í lyftu, þá sagðir þú: „Hafdís, hárið þitt er svipað og Ólafs Ragnars í Næturvaktinni með nýja hárlitinn.“ Við fórum oft í gönguferðir með vinum þínum og drukkum kaffi í Kolaportinu, kíktum á Austur- völl og fleiri ljúfa staði í mið- borginni. Við hétum hvort öðru 5. júlí 1969 að styðja hvort annað í blíðu og stríðu og það höfum við svo sannarlega gert. Auðvit- að skiptust á skin og skúrir hjá okkur öll þessi ár, en seinni árin þegar við höfum notið góðra stunda í félagsskap barna og barnabarna okkar, vona ég að þær verði fjársjóðurinn sem við skiljum eftir handa þeim. Hugg- un mín á þessum erfiða tíma er að foreldrar þínir hafi tekið vel á móti þér þegar þú varst tekinn frá mér, dætrum okkar og þeirra fjölskyldum. Ég mun halda minningu þinni á lofti, elsku Gummi minn. Þín alltaf, Hafdís. Pabbi, manstu símtölin okkar sem voru daglega nema á álags- tímum í skólanum. Þá bættum við okkur það upp með því að taka lengra spjall að þeim lokn- um. Ég fékk einkunn út úr verk- efni, eftir slysið, og þá helltist yf- ir mig mikil sorg því þú hefur alltaf verið sá fyrsti sem ég hringi í þegar ég fæ einkunnir. Samtöl okkar eru mér dýrmæt og allar staðlotur þar sem ég kíkti í heimsókn til þín, stundum með sérbakað vínarbrauð handa þér og rúnnstykki handa mér. Í dag hafði ég útsýni yfir uppáhaldsgöngustaðinn þinn, hjá sjónum við Sæbrautina. Það er ótrúlegt að þú eigir ekki eftir að ganga leiðina þína aftur en þú gekkst allra þinna ferða og kall- aðir þetta smá spotta til að taka strætó. Þú gættir vel að mér í kringum sykursýkina og ég hef ekki alltaf hlustað en með hækk- andi aldri og auknum þroska hefur heyrnin lagast, þar sem ég reyni að hlýða þér, elsku pabbi. Reynsla mín af þínum geðræna sjúkdómi hefur líka verið dýr- mæt og hún er hluti af því að þroska mig umfram aldur minn. Að hugsa sér að einungis er ár liðið frá hjáveituaðgerð þinni þegar þetta áfall dynur yfir 22. nóvember síðastliðinn. Þú varst svo duglegur eftir aðgerðina og þú varst farinn að trítla með mér eftir göngunum á hjartadeildinni þremur dögum eftir aðgerð. Þú varst í einu orði sagt ótrúlegur! Eftir slysið kom- um við inn á gjörgæslu og þú sýndir lítil viðbrögð þegar hjúkr- unarfræðingarnir töluðu við þig, en þegar mamma, sem liggur frekar hátt rómur, sagði: „Gummi minn!“ þá leistu til okk- ar og svaraðir já og nei við spurningum þó það væri örlítið drafandi. Svo fjaraði athyglin út og það kvöld þurfti að tengja þig við öndunarvél, eftir það náðum við ekki sambandi við þig svo hægt væri að greina skýr við- brögð. Þú opnaðir þó augun og þú áttir þér einskis ills von þeg- ar ég, miðlungurinn þinn, hélt uppi einræðusamtölum eins og þú værir þátttakandi. Þetta var mín leið til að sigra sorgina þeg- ar ég þurfti að horfast í augu við að sjá þig svona mikið slasaðan. Þórey Katla fékk góðan tíma með þér og fékk að tromma á potta og leika hjá ykkur mömmu þegar hún var lítil og hún talar mikið um allt sem afi gerði fyrir hana. Stefán Ingi mætti oft með þungan bókabunka, fleygði á sóf- ann og sagði: „Afi, koddu að lesa.“ Eftir slysið fjölgaði kvöld- bænunum hans úr 2 í 8 á hverju kvöldi og alltaf er beðið fyrir afa Gumma í lokin og við ræðum um að nú ætli guð að gæta þín. Ég er svo glöð að nestisferðin, sem við fjölskyldan fórum í janúar, situr honum í minni en við kom- um strax á eftir til þín þar sem þú dvaldir á Reykjalundi eftir aðgerðina. Þú sagðist vera á lúx- ushóteli og starfsfólkið væri frá- bært. Síðastliðið ár varstu hress- ari að öllu leyti og ég held að allir sem þig þekktu hafi verið því sammála. Þú hafðir alla tíð verið í fantaformi og Anna hjúkrunarfræðingur á gjörgæslu ætlaði að fá uppgefið hvaða hrukkukrem þú notaðir. Þú hugsaðir um okkur á undan sjálfum þér og spurðir alltaf hvernig gengi hjá barnabörnun- um og sagðir svo: „Kysstu þau frá mér.“ Ég sakna þess að tala við þig og heyra röddina þína. Þín Halldóra Björk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.