Morgunblaðið - 24.12.2012, Page 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2012
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þótt sjálfsagt sé að taka hlutina alvar-
lega er óþarfi að vera svo stífur að geta ekki
brosað út í annað, þegar svo ber undir. Ekki
hafna hjálp sem þér er boðin.
20. apríl - 20. maí
Naut Þér er allt mögulegt ef þú hefur brenn-
andi áhuga. Leitaðu ráða hjá þér reyndari
mönnum, ef einhver efi leynist í brjósti þér.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einhver platar tvíburann hugs-
anlega í dag. En þú veist hvernig þú ert. Farðu
ekki út fyrir þau mörk sem þú settir þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Ef aðstæður valda þér óþægindum
skaltu endilega endurskoða þær og nú með
hjartanu en ekki skynseminni. Ef tiltekin fjár-
útlát valda þér hugarangri, er best að láta þau
eiga sig.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Ferðaáætlanir þínar virðast óraunhæfar
þar sem þú virðist hreinlega ekki hafa efni á
að fara þangað sem þú hafðir hugsað þér.
Sýndu mildi og mýkt og gakktu úr skugga um
hvað aðrir vilja.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur verið ein/n á báti of lengi og
ættir að finna þér félagsskap við fyrsta tæki-
færi. Notaðu tækifærið til að eignast nýja
vini, eða jafnvel nýja elskhuga.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ferðaáform sem virtust möguleg fyrir fá-
einum dögum virðast núna óframkvæmanleg.
Leggðu þig fram um að ná samkomulagi og
hafðu forystu þar um, ef með þarf.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Ýmis tækifæri standa þér opin í
fjármálum en farðu gætilega og þú skalt forð-
ast alla óþarfa áhættu. Brjóttu odd af oflæti
þínu og farðu eftir góðum ráðum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu hreinskilin/n! Ertu enn að
bíða eftir einhverjum sem getur ekki skuld-
bundið sig. Mundu að útlit þitt sendir ákveðin
skilaboð út í umhverfið.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er allt í lagi að taka tilfinning-
arnar með í reikninginn en útkoman getur
reynst afleit ef þær eru einar um hituna. Ein-
hver gæti gefið þér gjöf eða gert þér greiða.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Nánustu sambönd þín ættu að
ganga vel. Með því að einbeita þér að því sem
mestu máli skiptir öðlast þú auka orku. Gefðu
þér tíma til að rækta sjálfa/n þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er góður dagur til viðskipta en
þið ættuð þó að gæta þess að ofmeta ekki
hæfni ykkar. Leggðu þig allan/n fram og þá
mun framlag þitt verða mikils metið.
Kátt er á jólunum, koma þau senn,
– þá munu upp líta Gilsbakkamenn,
upp munu þeir líta og undra það mest,
úti sjá þeir stúlku og blesóttan hest.
Í tímaritinu Huld, sem út kom á
síðasta áratug 19. aldar, segir um
kvæði þetta, að úr því kunni margir
enn heila kafla, meira og minna, um
land allt, og er haft sem vöggu-
kvæði, enda segi svo í eptirmála við
eina uppskriptina: „Fylgir sá krapt-
ur kvæði þessu, að varla er svo rell-
ótt barn, að ekki huggist það og
hlýði á með mesta athygli, ef það er
kveðið við það af sönglærðum
manni og eptir rjettum söng-
reglum.“ Ég veit dæmi þess, að enn
í dag hefur sá siður haldist í fjöl-
skyldum að Gilsbakkaþula sé sung-
in á jólum, – og er þá áhersla lögð á,
að hana verði að syngja undir réttu
lagi!
Það hafa margir spreytt sig á að
yrkja um jólin og sumir hafa fyrir
sið að láta nýja vísu fylgja jólakort-
um ár hvert. Sigurður Sigurðsson
dýralæknir yrkir:
Gleðilega og góða tíð
gefi oss á jólunum
hann sem ávallt ár og síð
endaveltir pólunum.
Eins og flestir vita er Sigurður
mikill kvæðamaður, kann ótal
stemmur og kveður þær á góðum
stundum. Um fjögurra vetra dótt-
urson sinn yrkir hann og fellur
línuskipting orðanna vafalaust að
hljómfalli og hrynjandi stemm-
unnar:
Litli Dagur, litli Dagur
ljós og fagur
logar af kæti,
logar af kæti,
léttur á fæti
sínum,
enginn betri,
enginn betri
er á setrum mínum.
Stephan G. Stephansson orti jóla-
vísu til föður dáins drengs:
Þó að jóla fró og frið
fjörs og lífs við höfum
þeir munu búa betra við
sem blunda niðrí gröfum.
Og að síðustu fylgir Jólavísa Jóns
Þorsteinssonar á Arnarvatni með
jólakveðjum til lesenda Vísnahorns:
Nei, hér er þá dálítil hjörð á beit
og hjarðsveinn á aldri vænum. –
Í hverri einustu Íslands sveit
og afkima fram með sænum
nú stendur hún jólastundin há
með stjörnuna yfir bænum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Þá munu upp
líta Gilsbakkamenn
Í klípu
„ÞAÐ GERÐIST SVO HRATT.
SEM BETUR FER TÓK EINHVER
ÞAÐ UPP OG SETTI Á YOUTUBE.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„PAVEL, „KLESST’ANN“ ER BARA EITTHVAÐ
SEM FÓLK SEGIR ÁÐUR EN ÞAÐ HEILSAST
MEÐ LOKUÐUM HNEFUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hann flýgur til
þín yfir hátíðirnar.
KOMUFARÞEGAR
ÞETTA LYKTAR VEL!
HVAÐ ER SVO Í
EFTIRRÉTT?
ÉG BLANDAÐI EFTIR-
RÉTTINUM SAMAN VIÐ
AÐALRÉTTINN!
ÉG SPARA HELLINGS
TÍMA ÞANNIG.
Víkverji keypti pylsu úr lúgu á föstu-daginn var. „Góða helgi, og gleði-
lega hátíð,“ sagði ungur afgreiðslu-
maður hress í bragði og bætti svo við:
„Svona ef þú skyldir ekki halda jól.“
Pylsan var góð. Með beikoni.
x x x
Saga jólanna er mjög áhugaverð.Fornrómverskir heiðingjar héldu
Satúrnalíu, einskonar lögleysuhátíð,
sem stóð í eina viku og lauk 25. desem-
ber. Kristin jól, sem yfirtóku síðar Sat-
úrnalíu, geta rakið sögu sína til 4. ald-
ar, en tóku ekki að líkjast núverandi
jólum fyrr en á 19. öld. Sá siður að gefa
gjafir er rakinn til Satúrnalíu en notk-
un sígrænna trjáa er að finna í til
dæmis þýskri og norrænni heiðni, og
er fyrst tengdur kristnum jólum í
Þýskalandi á 16. öld.
Orðið „jól“ er svo auðvitað gam-
algróið nafn á vetrarsólstöðuhátíð ása-
trúarfólks sem er oft haldin 21. desem-
ber, og úr þeirri hátíð fáum við til
dæmis veisluhöldin, góða matinn og
söngvana.
x x x
En það eru fleiri hátíðir í desember.Bodhi-dagur Búddatrúarfólks var
8. þessa mánaðar. Í Bandaríkjunum
fagna afkomendur Afríkubúa Kwan-
zee-hátíðinni 26. desember til 1. janúar
og gyðingar héldu ljósahátíð sína 8.-16.
desember.
Ramadam múslima var þetta árið í
júlí, eftir því sem Víkverji kemst næst,
og verður næst um jólaleytið árið 2030.
Hins vegar er Zartosht no-diso-dagur
zaraþústratrúaðra þann 26. desember.
x x x
Og svo eru það þeir sem halda enginjól. Á Íslandi eru til dæmis fjöl-
margir vottar Jehóva, sem fagna ekki
afmælum dauðlegra manna. Þeir
benda líka á að nær útilokað sé að Jesú
hafi fæðst í desember.
Þeir sem iðka svo enga trú líta flest-
ir á jólin sem fjölskylduhátíð en þó
þekkist að þeir láti þau framhjá sér
fara.
x x x
Í ljósi alls þessa óskar Víkverji þess aðþú, lesandi góður, hafir það náðugt í
kvöld, vonandi í faðmi ástvina með góð-
an mat á borðum, hvort sem þú heldur
hátíð eður ei.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er hlutdeild mín, segir sál
mín, þess vegna vona ég á hann.
(Harmljóðin 3:24)