Morgunblaðið - 19.01.2013, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
F E R Ð A S K R I F S T O F A A L L R A L A N D S M A N N A
Hófý, fararstjóri Bændaferða
verður á skrifstofunni
21. - 25. janúar kl. 10.00 - 16.00
mánudaginn 21. janúar til
föstudagsins 25. janúar frá
kl. 10:00 - 16:00.
Það er því alveg upplagt að kíkja
í Síðumúlann í kaffi, hitta Hófý og
fá upplýsingar um ferðirnar.
Bændaferðir • Síðumúla 2
www.baendaferdir.is
s: 570 2790
Hólmfríður Bjarnadóttir, eða Hófý eins og við flest þekkjum
hana, fararstjóri Bændaferða, verður á skrifstofu Bændaferða
2013F E R Ð I R F Y R I R A L L A
Pantaðu bækling á baendaferdir.is
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Fyrirspurnum til garðyrkjustjóra á
höfuðborgarsvæðinu fjölgar með
hverju árinu vegna hæðar trjáa. Al-
gengt er að fólk spyrjist annars vegar
fyrir um hvort þeim sé heimilt að fella
gömul tré og hins vegar til hvaða ráða
megi grípa vegna umfangs og hæðar
trjáa í garði nágrannans. Þannig eru
„litlu, fallegu jólatrén“ sem gróð-
ursett voru fyrir hálfri öld eða svo
víða orðin vandamál, sem mun bara
vaxa á næstu árum.
Í Hæstarétti féll á fyrradag dómur
í máli eigenda tveggja lóða í Kópa-
vogi. Í dómnum er fallist á kröfu
stefnanda um að fjarlægð verði tvö
grenitré, sem eru um átján metra há.
„Er það mat dómsins að allt fram-
angreint, skert birtuskilyrði á lóð
stefnanda, stærð, umfang og stað-
setning trjánna nálægt lóðarmörkum
með þeim afleiðingum að greinar
trjánna slúta langt út fyrir lóðarmörk
og inn á lóð stefnanda, sé stefnanda
til verulegra óþæginda og langt um-
fram það sem hún þarf að þola sam-
kvæmt ólögfestum reglum um nábýl-
isrétt,“ segir í dómnum.
Reglurnar óljósar
Líklega hefur dómurinn fordæm-
isgildi í sambærilegum tilvikum, að
sögn Þórólfs Jónssonar, garðyrkju-
stjóra í Reykjavík. Hann segir að
reglur hafi um margt verið óljósar í
þessum efnum og vandamálið sé í
raun nýtt af nálinni. Úrræði hafi ekki
verið mörg og löggjafinn ekki gert
ráð fyrir að málum sem þessum
mætti t.d. vísa til úrskurðarnefndar.
„Ef viðræður við nágranna bera
ekki árangur er fátt annað til ráða en
að leita til dómstóla,“ segir Þórólfur.
Einhver dæmi séu um að bygginga-
fulltrúi sendi bréf vegna trjáa á lóða-
mörkum, en þar sé fyrst og fremst
um tilmæli að ræða.
Þórólfur segir að í byggingareglu-
gerð frá 1997 séu ákvæði um að trjám
sem verða stórvaxin þurfi að planta
þrjá metra frá lóðamörkum. Þegar
slíkt tré sé orðið um 20 metra hátt
slúti greinar þess þó langt út fyrir
þessa þrjá metra. Að auki er bygg-
ingareglugerðin ekki afturvirk og
tekur því ekki til trjáa sem plantað
var fyrir 1997. Ætla má að tré sem nú
geta valdið deilum séu mun eldri.
Í borginni þarf leyfi til að mega
fella tré sem eru orðin meira en átta
metrar á hæð. Þórólfur segir að tekin
sé afstaða til umsókna í hverju tilviki
og stundum sé eftirsjá að slíkum
trjám fyrir borgarmyndina.
50 metrar í Alaska
Friðrik Baldursson, garðyrkju-
stjóri í Kópavogi, segir að þeim fyrir-
spurnum fari fjölgandi þegar spurt sé
hvort leyfilegt sé að fella tré eða hvað
eigi að gera ef nágranninn sé með of
stór tré að mati viðkomandi. Þannig
sé þessu eflaust einnig farið hjá öðr-
um garðyrkjustjórum á höfuðborg-
arsvæðinu. Í Kópavogi hafi bærinn þá
reglu að blanda sér ekki í slík mál,
þau séu fyrst og fremst á milli lóða-
hafa.
Hann segir að fólk hafi gjarnan
notað tré sem verða stórvaxin í görð-
um sínum og nefnir sitkagreni og
alaskaösp í því sambandi. Bæði geti
orðið tugir metra á hæð og t.d. verði
sitkagreni yfir 50 metrar í uppruna-
legum heimkynnum sínum í Alaska
og geti orðið nokkur hundruð ára
gamalt. Hér á landi séu þau elstu um
80 ára gömul og séu um 25 metrar á
hæð og alls ekki fullvaxin. Engin
ástæða sé til að ætla annað en sitka-
greni geti náð 50 metrum hér á landi.
„Litlu, fallegu jólatrén“
eru víða vaxandi vandamál
Morgunblaðið/Ómar
Gróska Grenilundurinn neðan við Ártúnsbrekku í Elliðaárdal er með þeim myndarlegustu í borginni. Trjánum var
plantað á fjórðar áratug síðustu aldar og eru farin að nálgast 25 metra hæð. Þau eru á meðal hæstu grenitrjáa í
Reykjavík, en víða annars staðar eru tré farin að slaga upp í þessa hæð.
Fyrirspurnum til garðyrkjustjóra fjölgar með hverju árinu vegna hæðar trjáa
Skógrækt
» Sitkagreni er stórvaxnasta
tegund grenitrjáa í uppruna-
legum heimkynnum sínum.
» Fullvaxið tré nær þar allt að
50-70 metra hæð og fimm
metra stofnþvermáli.
» Sitkagreni er langlíft og get-
ur náð allt að 700 ára aldri.
» Megnið af sitkagreni á Ís-
landi er upprunnið í Alaska.
» Sitkagreni hefur verið plant-
að víða um heim í nytja-
skógrækt, einkum í Evrópu.
» Það þykir henta vel fyrir
framleiðslu á timbri og pappír.
Ungur karlmaður, sem tældi ung-
lingsstúlkur í nektarmyndartöku,
var í gær úrskurðaður í gæslu-
varðhald til 1. febrúar í Héraðs-
dómi Reykjavíkur. Hann er grun-
aður um kynferðisbrot gegn
stúlkunum. RÚV greindi frá þessu.
Yfirheyrslur fóru fram yfir
manninum í gær. Hafði hann sett
sig í samband við stúlkurnar á
Facebook. Þar hafi hann kallað sig
áhugaljósmyndara og tælt þær
þannig í nektarmyndatökur. Hafa
nýjar kærur gegn manninum borist
síðustu daga. Var hann í haldi lög-
reglunnar í fyrrinótt, þar til yf-
irheyrslur hófust.
Í varðhaldi vegna
nektarmynda
Alda J. Rögnvaldsdóttir, grafískur
hönnuður og mannauðsstjóri hjá
Almennu verkfræðistofunni, bar
sigur úr býtum í hugmyndakeppni
WOW air þar sem leitað var eftir
hugmyndum um hvernig nýju Air-
bus A320 þotur félagsins gætu litið
út. Natsha Nandabhiwat frá Taí-
landi og Elena Schneider frá
Þýskalandi lentu í öðru og þriðja
sæti. Í verðlaun hlýtur Alda frítt
flug í heilt ár. Keppnin hófst sl. nóv-
ember en yfir þúsund manns tóku
þátt í henni. Í tilkynningu frá WOW
segir að félagið muni nú stílfæra
hugmynd Öldu nánar. skulih@mbl.is
WOW Alda J. Rögnvaldsdóttir hönnuður.
Sigraði í keppni um
útlit flugvéla WOW
Loka varð annarri akrein á Hring-
braut í Reykjanesbæ í gærmorgun
eftir að glussi úr sorphirðubíl hafði
lekið á veginn. Liðsmenn Bruna-
varna Suðurnesja voru kallaðir á
vettvang til að hreinsa upp vökvann
en hreinsunarstarfið tók um tvær
klukkustundir. Grunur lék á að
leiðsla hefði gefið sig en talsvert
magn af efninu lak á veginn.
Engan sakaði og engin óhöpp
urðu að sögn lögreglunnar á Suð-
urnesjum.
Lak úr sorphirðubíl
í Reykjanesbæ
Í dag gengst Ungmennafélagið
Framtíðin í Þykkvabæ fyrir já-
kvæðnisnámskeiði í íþróttahúsinu
og stefnir í góða þátttöku, að sögn
Brynju Rúnarsdóttur, formanns
Framtíðarinnar.
Um 80 manns búa í Þykkvabæ og
hefur Framtíðin reynt að hafa ofan
af fyrir íbúunum síðan félagið var
stofnað 1920. Brynja segir að félag-
ið hafi fengið styrk frá HSK til þess
að halda námskeiðið í dag og það
hafi gert þeim kleift að ráðast í
verkefnið.
Stjórnin fékk Arnbjörgu E. Finn-
bogadóttur til þess að halda fjöl-
skyldunámskeiðið sem hún nefnir
Lykillinn að þinni leið. Brynja segir
að það felist meðal annars í fyr-
irlestri og hópavinnu, jákvæðri
hugsun.
Brynja segir að Framtíðin sé með
opið hús einn dag í viku og reglu-
lega sé farið í fjölskylduferðir. Í
fyrravetur hafi fimleikaflokkur frá
Selfossi meðal annars komið fjórum
sinnum í viku til að sjá um nám-
skeið í fimleikum og hafi það
heppnast mjög vel. „Svo höfum við
verið að dansa zúmba og það er líka
fyrir alla fjölskylduna.“
steinthor@mbl.is
Framtíðin Fimleikaflokkur frá Selfossi hélt námskeið í Þykkvabænum í
fyrravetur og heppnaðist það mjög vel, mikil gleði og gaman.
Jákvæðir íbúar í
Þykkvabænum
Fjallað verður
m.a. um samspil
stjórnmála og
þróun á norð-
urslóðum á ráð-
stefnu samtak-
anna Arctic
Frontiers í
Tromsö í Noregi
í næstu viku.
Steingrímur J.
Sigfússon verður
meðal frummælenda á þriðju-
dagsmorgun. Þá talar einnig Lis-
beth Berg Hansen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs. Ráðstefnan
stendur alla næstu viku og var ráð-
gert að Jens Stoltenberg, forsætis-
ráðherra Noregs, héldi fyrirlestur
á mánudaginn. Hann hefur nú af-
boðað þátttöku sína vegna árás-
arinnar í Alsír og óvissu um afdrif
norskra borgara. Á mánudag talar
m.a. Maria Damanki, sjávarútvegs-
stjóri ESB.
Steingrímur
ræðir þróunina á
norðurslóðum
Steingrímur J.
Sigfússon
Morgunblaðið/Kristinn