Morgunblaðið - 19.01.2013, Blaðsíða 11
Grímupartí Aldís Davíðsdóttir, leikkona og grímugerðarkona, stolt með nokkrum af þeim grímum sem hún hefur búið til.
Þegar pappamassinn er orðinn þurr,
þá skef ég leirinn innan úr og þá er
gríman tilbúin. Þetta getur tekið mis
langan tíma, til dæmis tók það mig
marga daga að gera eina grím-
una fyrir þetta verk, en
önnur fæddist á einum
sólarhring. Þetta var
því mikil vinna en ég
tek það fram að Stef-
án kærastinn minn
var mjög duglegur
að hjálpa mér við
verkið.“
Aldís seg-
ir að brúðu-
gerðarkona
hafi komið
á leiksýn-
inguna og
ólm viljað
koma á bak
við eftir sýningu til að sjá og hand-
fjatla grímurnar. „Hún var alveg
viss um að þær væru úr latexi og
ætlaði vart að trúa að ég hefði gert
þær úr pappamassa. Ég mála þær
með akríllitum sem gefur þeim
þessa áferð og lit,“ segir Aldís sem
keypti sítt sjóræningjaskegg til að
nota sem hár á einni karlgrímunni.
„Við notuðum lím og heftara til að
festa hárið á grímuna, en ég væri al-
veg til í að eiga betri tól og tæki til
grímugerðar. Kannski muni ég einn
daginn, ef ég hef efni á, afla mér
betri menntunnar í grímugerðinni.“
Tvíræður svipur lykilatriði
Aldís segir að það vera þó-
nokkra kúnst að fanga persónu-
einkenni í grímu. „Grímurnar velja
sig svolítið sjálfar. Ég byrja kannski
með einhverja hugmynd í hausnum
en hún kemur aldrei eins út og ég
hafði fyrst hugsað hana í byrjun.
Lykilatriðið er að láta grímuna vera
með tvíræð svipbrigði, þannig að hún
geti bæði verið leið og glöð. Og hún
má heldur ekki vera of hlutlaus. Við
leikararnir í þessari sýningu lögum
okkur líka að grímunum, við leyfum
þeim að hafa áhrif á persónurnar
sem við leikum.“
Aldís er að vonum afar ánægð
með viðtökurnar sem leikritið hefur
fengið. „Við fengum fullt hús, eða
fimm stjörnur í leikdómi í Frétta-
blaðinu og erum í skýjunum með það.
Við vissum auðvitað ekkert hvernig
fólk tæki svona uppsetningu þar sem
leikarar eru með heilgrímur og tala
ekkert. En á frumsýningu vorum við
með fullan sal af fólki sem veltist um
af hlátri, og það gaf okkur mjög mik-
ið að finna meðbyrinn. Fólk kom til
okkar eftir frumsýningu og sagðist
vilja sjá meira.“
Setti upp einleik
Aðalpersónurnar í Hjartaspöð-
unum eru þrjár og leikur Aldís gömlu
konuna Grétu en Stefán Benedikt
Vilhelmsson kærasti hennar leikur
karlinn Grím. Orri Huginn Ágústs-
son leikur karlinn, Hannes. „Það er
yndislegt að fá svona góð viðbrögð,
þetta er jú mitt fyrsta stóra verkefni
eftir að ég kom heim úr námi,“ segir
Aldís sem lagði stund á klassíska
leiklist í Rose Bruford í London. „Ég
setti reyndar upp einleikinn Kona
einsömul, þegar ég kom heim, en það
var lokaverkefnið mitt í skólanum.
Mér fannst mjög skemmtilegt að tak-
ast á við einleiksformið og ég hlakka
til framtíðarinnar á leiksviðinu.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
Skoðaðu úrvalið
www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Gjafavara
Mikið úrval gjafavöru,
borðbúnaðar og
skúlptúra.
Handsmíðaðir gull- og
silfurskartgripir með
Íslenskum steinum
Góðar gjafahugmyndir
á nýju ári
Eyjafjallajökull, skál
5.900 kr
Vatnajökull, skál
7.900 kr
Salattöng
17.800 kr
Smjörhnífur
8.900 kr
Sultuskeið
6.900 kr
Sultuskeið
8.900 kr
Ostahnífur
6.900 kr
Stálarmband
13.900 kr
Stállokkar
6.900 kr
Stállokkar
9.800 kr
Íslensk hönnun
Brasskvintett Tónskóla Sigursveins
mun halda tónleika fyrir gesti og
gangandi í aðalsafni Borgarbóka-
safns Reykjavíkur, Tryggvagötu 15,
sunnudaginn 20. janúar kl. 16.15.
Á tónleikunum munu áheyrendur
kynnast ýmsum meðlimum málm-
blásturfjölskyldunnar auk þess sem
þeim gefst kostur á að heyra glænýtt
verk eftir Guðnýju Valborgu Guð-
mundsdóttur ásamt umritunum á
þekktari verkum tónbókmenntanna.
Kvintettinn skipa trompetleikar-
arnir Elísa Guðmarsdóttir og Hulda
Lilja Hannesdóttir, hornleikarinn
Guðmundur Andri Ólafsson, básúnu-
leikarinn Einar Bjarni Björnsson og
túbuleikarinn Böðvar Pétur Þor-
grímsson. Leiðbeinandi hópsins er
Ari Hróðmarsson. Það er um að gera
að fá sér göngutúr í miðbæinn á
sunnudaginn og hlýða á fallega tóna.
Tónleikar í aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkur
Brasskvintett Tónskóla
Sigursveins leikur glænýtt verk
Kvintett Flutt verður glænýtt verk eftir Guðnýju V. Guðmundsdóttur.
Skýjasmiðjan og Gaflaraleikhúsið sýna um þessar mundir nýtt íslenskt verk
sem heitir Hjartaspaðar. Í þessu verki eru farnar nýjar slóðir í leiklist á Íslandi
en þetta er fyrsta verkið sem leikið er með heilgrímum án orða í sýningu í
fullri lengd. Verkið fjallar um drephlægileg uppátæki eldri borgaranna á
dvalarheimilinu Grafarbakka sem sanna svo rækilega að lífið er ekki búið
eftir áttrætt. Fylgst er með þeim Grími og Hannesi sem hafa verið fé-
lagar á dvalarheimilinu um nokkra hríð og er þeirra dagleg rútína
fyrir löngu komin í fastar skorður. Þegar Gréta flytur inn umturn-
ast líf þeirra og fyrr en varir hefjast óborganleg uppátæki til að
lífga upp á tilveruna og drepa leiðindin, þar sem öllum brögðum
er beitt. Hópurinn hefur skapað sjónræna sýningu þar sem
grímuleikur og hreyfingar miðla sögunni en ekki töluð orð. Þetta er
draumkenndur óður til elliáranna, fullur af töfrum og ólíkindahætti sem allir geta
notið, óháð tungumáli, heyrnartækjum og göngugrindum. Leikstjóri sýningarinnar
er Ágústa Skúladóttir. Ellilífeyrisþegar fá sérstakan afslátt af miðaverði. Aðeins
tvær sýningar eru eftir, 27. janúar og 10. febrúar. Miðapantarnir á Midi.is.
Heilgrímur án orða
GAFLARALEIKHÚSIÐ