Morgunblaðið - 19.01.2013, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 19.01.2013, Blaðsíða 51
KR-ingunum Þórólfi Beck, Ellert Schram og Kristni Jónssyni. Hann gekk í Val og æfði og keppti í knattspyrnu með félaginu í öllum aldursflokkum, varð nokkrum sinn- um Íslandsmeistari og Reykja- víkurmeistari í yngri flokkum, lék 100 keppnisleiki með meistaraflokki á árunum 1956-62, varð Íslands- meistari 1956 og Reykjavíkurmeist- ari 1962 og lék með nokkrum úr- valsliðum. Elías sat í stjórn knatt- spyrnudeildar Vals og var formaður knattspyrnudeildar í fjögur ár, sat í aðalstjórn Vals um skeið, sat í stjórn KRR, Knattspyrnuráðs Reykjavíkur, í átta ár, sat í stjórn KSÍ í áratug og var gjaldkeri KSÍ í átta ár. Elías þjálfaði 4 flokk Vals í þrjú ár og æfði og keppti á skíðum með Ármanni á unglingsárunum. Elías hefur starfað í Lions- klúbbnum Baldri um langt árabil, setið í stjórn klúbbsins og verið for- maður hans. Hann hefur auk þess starfað í Akoges Reykjavík í 50 ár og sinnt þar ýmsum trún- aðarstörfum. Fylgist með sínum mönnum Elías er spurður hvort hann hvetji ekki enn sína menn til dáða: „Jú, það er ekkert mjög langt síðan ég fór á nánast alla leiki en nú síðustu árin hef ég látið heima- leikina duga. En mér finnst samt alltaf jafn gaman að fylgjast með góðum knattspyrnuleik. Svo mætir maður auðvitað á þorrablótin hjá Val og Herrakvöld- in til að hitta gamla félaga og rifja upp gamla tíma.“ En hreyfir þú þig svolítið sjálfur? „Já. Mér hefur alltaf fundist það svo sjálfsagt að það taki því varla að minnast á það. Svo fór fjöl- skyldan töluvert á skíði hér áður fyrr en við drógum svo úr því, lík- lega helst vegna snjóleysis hér í ná- grenni borgarinnar.“ Fjölskylda Elías kvæntist 7.12. 1963 Val- gerði Önnu Jónasdóttur, f. 21.2. 1941, verslunarmanni hjá SÍS og síðar skrifstofumanni hjá Sjálfstæð- isflokknum. Hún er dóttir Jónasar Þorvaldssonar, skólastjóra í Ólafs- vík, og Magneu Böðvarsdóttur, húsfreyju frá Laugarvatni. Börn Elíasar og Valgerðar Önnu eru Hergeir Elíasson, f. 31.3. 1967, iðnfræðingur hjá Samtökum at- vinnulífsins, en kona hans er Rósa Guðmundsdóttir, starfsmaður hjá Reykjavíkurborg, og eru þau með fjögur börn; Margrét Elíasdóttir, f. 10.5. 1970, ritari hjá KSÍ, en maður hennar er Hermann Hauksson fast- eignasali og eiga þau þrjú börn; Ragnheiður Elíasdóttir, f. 3.1. 1973, ritari hjá KSÍ, en maður hennar er Sigurður Egill Þorvaldsson, starfs- maður hjá Alcan í Straumsvík, og eiga þau þrjú börn; Jónas Elíasson, f. 20.9. 1975, tölvumaður hjá Adv- ania og dómari í handbolta en kona hans er Björk Ingadóttir kennari og eiga þau þrjú börn. Systkini Elíasar: Valdimar Her- geirsson, f. 9.8. 1930, kennari og fyrrv. aðstoðarskólastjóri VÍ, bú- settur í Reykjavík; Haukur Her- geirsson, f. 24.8. 1931, rafvirki og síðast ljósamaður hjá RÚV - Sjón- varpi; Herdís Hergeirsdóttir, f. 21.3. 1935, d. 26.9. 2009, kaup- maður, var búsett í Garðabæ. Foreldrar Elíasar voru Hergeir Elíasson, f. 7.1. 1901, d. 23.1. 1959, togaraskipstjóri, búsettur í Reykja- vík, og Ragnheiður G. Þórðardóttir, f. 10.11. 1901, d. 21.6. 1969, hús- freyja. Úr frændgarði Elíasar Hergeirssonar Elías Hergeirsson Þórður Helgason b. á Rafnkelsstöðum í Garði Ingibjörg Árnadóttir húsfr á Rafnkelsstöðum Þórður Þórðarson verkam. Guðríður Jóhannsdóttir húsfr. Ragnheiður Guðmunda Þórðardóttir húsfr. í Rvík Guðríður Björnsdóttir húsfreyja á Laxárfossi Jóhann Jónsson b. á Laxárfossi í Stafholtstungum Guðrún Jónsdóttir húsfr. í Haukadal Bjarni Jónasson b. í Haukadal í Dýrafirði Þórkatla Bjarnadóttir húsfr, á Þingeyri Elías Guðbjartur Arnbjörnsson járnsmiður á Þingeyri Hergeir Elíasson togaraskipstj. í Rvík Ingibjörg Bjarnadóttir húsfr. Arnbjörn Jónsson vinnum. víða Fleiri barnabörn … Og hér koma yngstu, Indía Bríet og Natalía Brá. ÍSLENDINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013 Vatnagörðum 12 - 104 Reykjavík - Sími: 588 5151 - Fax: 588 5152 - glerslipun.is Glerslípun & Speglagerð ehf. Speglar Flotgler Öryggisgler Hert gler Bílspeglar Sandblástur Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Sjáðu sjálfan þig í nýju ljósi Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtuskilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf. Ólafur Thors forsætisráðherrafæddist í Borgarnesi 19.1.1892, sonur Thors Jensen, stórkaupmanns, útgerðarmanns og stórbónda á Korpúlfsstöðum, eins helsta athafnamanns hér á landi á síðustu öld, og k.h., Margrétar Þor- bjargar Kristjánsdóttur. Ólafur ólst upp í stórum syst- kinahópi, fyrst við fremur þröngan kost eftir að faðir hans varð gjald- þrota en síðan við einstakt ríkidæmi á íslenskan mælikvarða. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1912 og las lögfræði við Kaupmannahafnarhá- skóla og HÍ. Ólafur var framkvæmdastjóri Kveldúlfs 1914-39, alþm. 1926-64 og ráðherra 1939-42, 1944-47, 1949-56 og 1959-63. Hann var einn helsti stjórnmálaskörungur þjóðarinnar á sinni tíð, formaður Sjálfstæð- isflokksins 1934-61 og fimm sinnum forsætisráðherra. Ólafur var dæmigerður pólitískur sjarmör, fríður og fyrirmannlegur, með mikið, grátt og strítt hár og djúpan málróm. Hann gekk æv- inlega í sjakket. Eðlislægt frjáls- lyndi hans, glaðværð og hjartahlýja réðu miklu um vinsældir hans og Sjálfstæðisflokksins. Flokkurinn hafði hins vegar verið utan rík- isstjórna 1927-39 en þá myndaði hann þjóðstjórn með Framsókn og krötum. Kratar gengu úr stjórninni 1941 og lögðu fram tillögu um breytta kjördæmaskipan. Sjálfstæð- ismenn studdu málið en við það myndaðist trúnaðarbrestur milli Ólafs og Hermanns sem taldi Ólaf hafa gengið á bak orða sinna. Þessi trúnaðarbrestur hafði í för með sér stjórnarkreppur, utanþingsstjórn og nýsköpunarstjórn og tafði fyrir nú- tímalegri efnahagsstefnu. En Ólafi tókst, 1959, að mynda samstarf Sjálfstæðisflokks og Al- þýðuflokks sem stóð í þrjú kjör- tímabil og færði þjóðinni nútíma- legri efnahagsstefnu. Matthías Johannessen, skáld og fyrrv. ritstjóri, skrifaði ævisögu Ólafs: Ólafur Thors: Ævi og störf, útg. 1981. Ólafur lést á gamlársdag 1964. Merkir Íslendingar Ólafur Thors Laugardagur 95 ára Áslaug Helgadóttir 90 ára Hallgrímur Oddsson 85 ára Gústav Kristján Gústavsson Þórdís Grímheiður Magnúsdóttir 80 ára Anja Honkanen Bergljót Pálsdóttir Bjarni Sigurðsson Gísli Arnkelsson Svanur Jónsson 75 ára Bergur Ingólfsson Ingibjörg Erlingsdóttir 70 ára Anna Jóna Kristjánsdóttir Bryndís Hulda Búadóttir Jón Gunnar Gunnlaugsson Vigfús Ingólfsson 60 ára Björn Tryggvason Einar Karlsson Guðjón Guðvarðarson Guðmundur Hafþór Valtýsson Gunnar Már Sigurgeirsson Lára Hjördís Halldórsdóttir Matthías Berg Stefánsson Málfríður Gestsdóttir Þorvaldur Kristjánsson 50 ára Anna María Sigurðardóttir Boonluan Aphaiklang Daníel Þorsteinsson Gréta Lárusdóttir Grétar Jónsson Hulda Jóhannsdóttir Hörður Sigurbjarnason Kristbjörg Guðmundsdóttir Kristinn Björn Einarsson Kristín Guðmundsdóttir Lijana Sadzon María Hrönn Gunnarsdóttir Olga Kristjánsdóttir Sigríður Wöhler Þorvaldur Eydal 40 ára Bjarki Sveinn Smárason Elín Björk Ragnarsdóttir Ewa Kuszlewicz Helena Dröfn Jónsdóttir Hildur Erla Björgvinsdóttir Hulda Elsa Björgvinsdóttir Kristín Lindquist Bjarnadóttir Marteinn Óli Skarphéðinsson Martin Antonov Raditchkov Sylvía Dögg Tómasdóttir Sævar Ísleifur Benjamínsson 30 ára Aðalbjörg Eggertsdóttir Aðalbjörg Rósa Sigurðardóttir Daníel Máni Jónsson Gunnar Örn Einarsson Harpa Gunnarsdóttir Haukur Steinn Ólafsson Jón Orri Jónsson Kristín Ósk Helgadóttir Kristján Hjaltalín Ólöf Inga Guðbrandsdóttir Sigrún Rut Hjálmarsdóttir Sigvaldi Þór Loftsson Stefán Guðjón Loftsson Unnur Día Karlsdóttir Sunnudagur 100 ára Ingibjörg Bergmann 95 ára Ingibjörg S. Jóhannesdóttir Lilja Rögnvaldsdóttir 85 ára Baldvin Steindórsson Jón A. Hjartarson 80 ára Sigríður Erla Ragnarsdóttir Sólveig Grímsdóttir 75 ára Guðrún Jóna Jónsdóttir Svanborg Lýðsdóttir 70 ára Árni Guðbjartsson Elías Sveinbjörn Sveinbjörnsson Gísli Valur Einarsson Gunnar H.B. Gunnlaugsson Helga St. Sveinbjörnsdóttir Marvin Friðriksson Soffía Alfreðsdóttir 60 ára Guðrún Edda Pálsdóttir Halina Turek Ingibjörg Bára Júlíusdóttir Ingibjörg Haraldsdóttir Kristín Einarsdóttir Sylviane Lecoultre 50 ára Adriana Arendse Albin Smolinski Börge Jóhannes Wigum Ester Halldórsdóttir Eyrún Björk Gestsdóttir Guðlaug Birgisdóttir Hubertine Petra M. Kamphuis Ingunn H. Brandt Sigurðardóttir Jóhann Þorsteinsson Katrín Eiðsdóttir Lára Einarsdóttir Pétur Ragnar Árnason Ragnheiður Guðjohnsen Sigurður Sveinn Þorbergsson Þórhallur Guðmundsson 40 ára Atli Már Ingólfsson Ásta Margrét Guðmundsdóttir Ástrós Friðbjarnardóttir Bjarni Þór Sigurbjörnsson Guðrún Ólafía Þorleifsdóttir Konráð Vestmann Þorsteinsson Kristín Mjöll Guðjónsdóttir Kristjana S Þorsteinsdóttir Sigríður Magnea Sigurðardóttir Tham Thi Nguyen 30 ára Ásthildur Björt Hannesdóttir Eyrún Ösp Eyþórsdóttir Flóki Ásgeirsson Hafdís Bergsdóttir Halldór Ingi Emilsson Helgi Páll Einarsson Katla Ásgeirsdóttir Kristín Rós Jóhannesdóttir Kristján Þór Yngvason Lovísa Sigmundsdóttir Sólveig Guðlín Sigurðardóttir Örvar Ingi Björnsson Til hamingju með daginn Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.