Morgunblaðið - 19.01.2013, Qupperneq 9
Beina brautin Bankar og sparisjóðir gáfu minni fyrirtækjum eftir skuldir og veittu þeim mörgum hverjum biðlán.
Miðað við núverandi stöðu virðast
góðar líkur á því að rekstur þorra
þeirra fyrirtækja sem hafa verið fjár-
hagslega endurskipulögð geti staðið
undir þeim skuldbindingum sem á
þeim hvíla. Þetta segir Yngvi Örn
Kristinsson, hagfræðingur Samtaka
fjármálafyrirtækja, í pistli á vefsvæði
samtakanna, þar sem hann svarar
þeirri gagnrýni
sem fram hefur
komið vegna úr-
ræðisins „Beina
brautin.“
Í pistli Yngva
kemur m.a. fram
að úrræðið hafi
falist í því að
rekstrarskuldir
fyrirtækja með
skuldir á bilinu 10-
1.000 milljónir
króna yrðu færðar niður í 70% af virði
þeirra en lán sem svaraði til allt að
30% af virði viðkomandi fyrirtækis
yrði sett á óverðtryggt biðlán til
þriggja ára með lágum vöxtum. Bið-
lánin voru til þriggja ára og koma
fyrstu lánin á gjalddaga seint á þessu
ári en gjalddagar flestra lánanna
dreifast á árin 2014 og 2015.
Í Morgunblaðinu síðastliðinn
fimmtudag sagði Sævar Þór Jónsson
lögmaður úrræðið hafa gengið of
skammt, vandinn hefði ekki verið
leystur heldur hefði honum verið
slegið á frest. „Bankarnir hafa ekki
verið tilbúnir að lofa því að það eigi að
afskrifa lánið eftir þrjú ár heldur ætla
að skoða stöðuna,“ sagði Sævar.
Hann sagði fæst fyrirtækjanna hafa
náð þeim umskiptum í rekstri að geta
tekist á við greiðslu biðlánanna.
Verða að afla nýs eiginfjár
Yngvi segir hins vegar samkomu-
lag stjórnvalda, fjármálafyrirtækja
og hagsmunasamtaka atvinnulífsins
um „Beinu brautina“ ekki hafa fjallað
um það hvað tæki við þegar að gjald-
daga biðlánanna kæmi.
„Gert var ráð fyrir því að fjármála-
fyrirtæki tækju á því hvert með sín-
um hætti og fyrirtæki og fjármálafyr-
irtæki semdu í hverju tilviki um
greiðslu eða endurfjármögnun bið-
lánsins eftir aðstæðum hvers fyrir-
tækis,“ segir Yngvi, eðli málsins sam-
kvæmt hafi mikil óvissa ríkt við alla
áætlanagerð og óhjákvæmilegt að
einhver fyrirtæki mundu eiga erfitt
með að mæta endurgreiðslum eða
endursemja um biðlánið. „Þá reynir á
getu fyrirtækjanna til að afla nýs eig-
infjár,“ segir í pistlinum.
Alls fóru um 700 fyrirtæki form-
lega „Beinu brautina“ en rúmlega
2.000 lítil og meðalstór fyrirtæki aðr-
ar leiðir. „Samkomulaginu fylgdi
tímasett áætlun um úrvinnslu skulda-
mála þessara fyrirtækja og var miðað
við að fyrirtækin fengju tilboð um
fjárhagslega endurskipulagningu fyr-
ir júní 2011. Þessi áform gengu í meg-
inatriðum eftir,“ segir Yngvi.
Vanskil almennt lítil
Í Morgunblaðinu á fimmtudag velti
Sævar upp þeirri spurningu hvort
fyrirtækjunum yrði gert að greiða
lánin upp og sagði að það myndi þýða
gjaldþrot fyrir mörg þeirra. Yngvi
segir hins vegar of snemmt að segja
til um hver staða fyrirtækjanna verði
þegar kemur að gjalddaga en sam-
kvæmt upplýsingum frá stóru bönk-
unum þremur séu vanskil rekstrar-
lána fyrirtækja sem hafa gengið í
gegnum fjárhagslega endurskipu-
lagningu almennt lítil.
„Slíkt er vísbending um að geta
þeirra til þess að greiða eða semja um
framhald biðlánsins verði almennt
góð. Í einhverjum tilvikum hafa fyr-
irtæki þegar nýtt heimild til upp-
greiðslu biðlánsins og í einhverjum
tilvikum hafa fyrirtæki þegar farið í
þrot þrátt fyrir fjárhagslega endur-
skipulagningu.“ holmfridur@mbl.is
Flest fyrirtækin geti
staðið við skuldbindingar
Alls 700 fyrirtæki fóru gegnum skuldaúrræðið „Beinu brautina“
Beina brautin
» Biðlánin voru án greiðslu á
lánstíma og algengt að vextir
væru 2%.
» Fyrirtækjunum var heimilt
að greiða upp lánin á lánstím-
anum með verulegum afslætti.
» Um 700 fyrirtæki fóru
„Beinu brautina“ en rúmlega
2.000 lítil og meðalstór fyr-
irtæki fóru aðrar leiðir, segir
Yngvi.
Yngvi Örn
Kristinsson
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 2013
40% afsláttur
Leðurstígvél, spariskór og
ökklaskór í úrvali!
Vertu vinur okkar á facebook
Engjateigur 5•
Sími 581 2141•
www.hjahrafnhildi.is•
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
St. 36-42,5
gisting.dk
499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími)
Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900
Kaupmannahöfn
Buxur á ÚTSÖLU
50% afsláttur
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Opið í dag kl. 10-16
Eddufelli 2, sími 557 1730
Lokað í dag
www.rita.is Ríta tískuverslun
verð áður 11.900 kr.
verð nú 5.950 kr.
STÓRÚTSALA
Laugavegi 63 • S: 551 4422
KLASSÍSK GÆÐAVARA FRÁ GERRY WEBER
TAIFUN - GARDEUR - CREENSTONE
FUCHS SCHMITT O.FL. O.FL.
40-50%
afsláttu
r
Sparidress - Vetrardragtir - Peysur - Blússur - Bolir
www.laxdal.is
Árin segja sitt1979-2013
BISTRO
Laugarásvegi 1 | 104 Reykjavík | Sími: 553 1620 | laugaas.is
Lögreglan á Selfossi gerði húsleit á
heimili í Hrunamannahreppi árla
morguns í gær og lagði hald á 170
lítra af eimuðum landa. Einnig
fundust 800 lítrar af gambra en
bruggunin hafði eitthvað mistekist
því ekkert áfengi mældist í gambr-
anum.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Selfossi fékk hún ábend-
ingar um landaframleiðsluna í
fyrradag og var farið snemma í
gærmorgun á bæinn þar sem fram-
leiðslan var.
Einn var handtekinn á staðnum
og hefur hann játað að hafa staðið
að framleiðslunni. Það er hins veg-
ar lán í óláni fyrir manninn að ekk-
ert alkóhól var í gambranum því
það þýðir að hann verður ekki
ákærður fyrir þann hluta fram-
leiðslunnar.
Landabruggari með misheppnaðan gambra
Vodafone (Fjarskipti hf.) mun sjá
um stafræna sjónvarpsdreifingu
fyrir Ríkisútvarpið, að því er fram
kemur í tilkynningu frá Rík-
iskaupum. Ákveðið var að taka til-
boði Vodafone en stafræn sjón-
varpsdreifing fyrir Ríkisútvarpið
var boðin út á Evrópska efnahags-
svæðinu á síðasta ári.
Útboðið var í nokkrum áföngum;
fyrst forvali þar sem allir áhuga-
samir aðilar gátu sent inn tilboð,
næst bauðst fjórum aðilum að taka
áfram þátt í útboðinu og að lokum
stóð valið milli tveggja fyrirtækja.
Vodefone mun gefa frekari upp-
lýsingar eftir því sem samn-
ingagerðinni vindur fram, segir í
tilkynningu Ríkiskaupa.
Vodafone sér um
stafræna sjónvarps-
dreifingu fyrir RÚV
Einn var fluttur á slysadeild eftir
tveggja bíla árekstur við gatnamót
Miklubrautar og Kringlumýr-
arbrautar síðdegis í gær, á háanna-
tíma. Samkvæmt upplýsingum frá
Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins
er viðkomandi ekki alvarlega slas-
aður. Um aftanákeyrslu var að
ræða. Bifreiðin sem ekið var á end-
aði á vegriði sem á liggur á milli ak-
brauta. Við það kom gat á eldsneyt-
istankinn og lak töluvert af elds-
neyti á veginn. Tafir urðu á umferð
vegna hreinsunarstarfs á vettvangi.
Árekstur á háanna-
tíma í umferðinni
mbl.is
alltaf - allstaðar