Morgunblaðið - 19.01.2013, Side 60
LAUGARDAGUR 19. JANÚAR 19. DAGUR ÁRSINS 2013
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 699 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 4190 I-PAD ÁSKRIFT 4190
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Kartöflur með beikoni á pólnum
2. „Hélt ég væri að kaupa mér …“
3. Tíu marka sigur á Katar
4. Fölsuðu debetkort og notuðu
Tónlistarmaðurinn Sin Fang sendir
frá sér sína þriðju plötu 1. febrúar nk.
og nefnist hún Flowers. Platan er gef-
in út af þýska útgáfufélaginu Morr
Music. Hún er tekin upp og framleidd
í samstarfi við Alex Somers.
Sin Fang sendir frá
sér plötuna Flowers
Nemendur tón-
smíðadeildar
Listaháskóla Ís-
lands héldu tón-
leika sína í Kalda-
lóni í Hörpu í gær
og var fjöldi nýrra
verka þá frum-
fluttur. Veislan heldur áfram í dag
með þrennum tónleikum, klukkan 13,
14.30 og 16. Frumflutt verða þrettán
tónverk eftir ellefu tónsmíðanema á
tónleikunum og er aðgangur ókeypis.
Tónsmíðanemar
frumflytja í Hörpu
Gretar Reynisson hefur verið út-
nefndur heiðurslistamaður myndlist-
arhátíðarinnar Sequences sem haldin
verður í Reykjavík í sjötta sinn dag-
ana 5.-14. apríl. Hátíðin
stendur í tíu daga ann-
að hvert ár og beinir
sjónum að tímatengdri
myndlist eins og gjörn-
ingum, hljóð- og
myndbandsverkum.
Á hátíðinni verður
sett upp viða-
mikil sýning á
verkum Gretars
í Nýlistasafninu
og í nágrenni.
Gretar Reynisson
heiðurslistamaður
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG SA 5-13 m/s, hvassast með suðurströndinni, skúrir eða slydduél
S-til, annars skýjað með köflum. Hiti víða 0 til 5 stig, en vægt frost til landsins NA-lands.
Á sunnudag Austan 8-18 m/s, hvassast með S-ströndinni. Rigning eða slydda á SA-landi
og A-fjörðum, en bjartviðri N- og V-lands. Hiti breytist lítið.
Á mánudag, þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag Útlit fyrir austanátt. Rigning eða
slydda með köflum með S- og A-ströndinni, en víða bjart veður í öðrum landshlutum.
Reykjavíkurleikarnir 2013 hófust í
gær en þeir standa yfir til sunnu-
dagsins 27. janúar. Alls er keppt í 18
íþróttagreinum og átta þeirra eru á
dagskránni um helgina. Alls mæta
362 erlendir keppendur á leikana og
um hörkukeppni er að ræða í mörg-
um greinum. Meðal annars í frjáls-
íþróttakeppninni sem er í Laug-
ardalshöllinni í dag. »4
Alls mæta 362 erlendir
keppendur á leikana
Makedóníumenn viður-
kenndu eftir ósigurinn gegn
Dönum í lokaleik riðla-
keppni heimsmeistara-
mótsins í handknattleik í
gærkvöld að þeir hefðu ekki
viljað vinna leikinn. Þá
hefðu þeir þurft að mæta
Frökkum í 16-liða úrslitum
en það varð í staðinn
hlutskipti Íslendinga
sem mæta þeim annað
kvöld. »2-3
Makedóníumenn
vildu ekki vinna
Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Við-
arsdóttir hafa gengið frá samningi
við enska knattspyrnufélagið
Chelsea um að spila með því á keppn-
istímabilinu sem hefst í Englandi í
lok mars. „Við erum mjög spenntar,
sérstaklega Ólína sem er
stuðningsmaður
Chelsea,“
segir Edda.
»4
Edda og Ólína orðnar
leikmenn Chelsea
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Við erum bæði bjartsýn og svart-
sýn í bland,“ segir Hálfdán Ped-
ersen um þátttöku Íslendinga í Al-
þjóða Budweiser-meistarakeppninni
í gerð listaverka úr snjó í Colorado í
Bandaríkjunum í næstu viku. „Í
flestum tilfellum eru verkin óheyri-
lega falleg.“
Íslendingar eru ekki þekktir fyrir
að skera listaverk út í snjó en þegar
tækifæri gefst til þess, eins og
margs annars fjarlægs, eru alltaf
einhverjir til í slaginn.
Út í djúpu laugina
Hálfdán segist hafa séð auglýs-
ingu um keppnina fyrir tilviljun, tek-
ið ljósmynd af henni, gleymt henni,
en rekist á hana löngu síðar og lagt
til í matarboði að hópurinn sendi
hugmynd að listaverki í keppnina.
„Allir tóku vel í það og það var mikið
hlegið, því okkur fannst þetta eitt-
hvað svo óraunverulegt,“ rifjar Hálf-
dán upp. Hann hafi síðan haft sam-
band við skipuleggjendur, sem hafi
hvatt þau til að senda umsókn þrátt
fyrir reynsluleysi á þessu sviði. „Það
var mikill eldmóður í hópnum, mikil
bjartsýni og engin hræðsla. Við
sendum umsókn ásamt skissunni
sem var tvíhöfða rolla.“ Hugmynd-
inni hafi hins vegar verið hafnað og
óskað hafi verið eftir betur útfærðri
hugmynd. „Þeim fannst upp-
runalega áætlað verk ekki ögra
þyngdarlögmálinu nógu mikið,“
segir Hálfdán. Hann segir að í
kjölfarið hafi þau breytt verkinu
með aðstoð Leópolds Kristjáns-
sonar arkitekts og í stað tví-
höfða kindar ætli þau að skera
út snjóhús með gluggum sem
minnir á lopapeysumynstur.
Í íslenska hópnum eru auk
Hálfdáns, sem er leikmynda-
hönnuður, Sara Jónsdóttir, fram-
leiðandi og viðburðastjórnandi, Stef-
án Melsteð matreiðslumeistari,
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir,
leikkona og matreiðslumeistari, og
liðsstjórinn Helena Jónsdóttir sál-
fræðingur. „Við höfum öll búið til
snjóhús,“ segir Hálfdán og bendir á
að eigin reynsla á þessu sviði sé
einkum í formi leikmynda. Stefán og
Jóhanna hafi fengist við skurð á ís
fyrir kalt borð og Sara hafi eitthvað
möndlað við þetta. „En samt er
óhætt að segja að við séum öll frekar
reynslulaus. Það verður því fínt að
hafa Helenu á kantinum til að stappa
í okkur stálinu og hvetja okkur
áfram.“
Íslenski hópurinn flýgur til Den-
ver á morgun en var í æfingabúðum
á Flateyri um liðna helgi. „Eftir þá
ferð erum við töluvert bjartsýnni en
við vorum, því við lærðum ýmislegt
um verkfæranotkun og snjóinn sem
efni.“
Keppa í snjóskurði í Colorado
Íslendingar
ráðast á garðinn
í Breckenridge
Snjólistaverkakeppnin fer fram í Breckenridge í Colorado í Bandaríkj-
unum og verður haldin í 23. sinn dagana 22. til 26. janúar nk. Að
þessu sinni keppa 15 lið frá 14 löndum, frá Þýskalandi, Bret-
landi, Ekvador, Kína, Singapore, Mongólíu, Spáni (Katalón-
íu), Mexíkó, Kanada, Argentínu, Eistlandi, Ástralíu, Íslandi
og tvö lið frá Bandaríkjunum, frá Alaska og Colorado.
Þetta er í fyrsta sinn sem lið frá Íslandi tekur þátt í
keppninni. Keppendurnir ætla að búa til snjóhúsið úr
snjóklumpi sem er þriggja metra breiður, 3 metra djúpur
og 3,5 metra hár. Klumpurinn verður tæmdur að innan og
síðan skorið gluggamynstur sem minnir á íslenskt lopa-
peysumynstur. Síðan verður verkið lýst upp innan frá. Hægt
verður að fylgjast með gangi mála á Fésbókinni (snjóhöggv-
arar Íslands).
Íslenskt lið í fyrsta sinn
ALÞJÓÐA SNJÓLISTAVERKAKEPPNIN
Ljósmynd/Eyþór Jóvinsson
Æfing á Flateyri Snjóhöggvararnir í liði Íslands frá vinstri: Hálfdán, Sara, Jóhanna Friðrika, Helena og Stefán.