Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013
Einhleypar konur eru örtstækkandi hópur hér álandi. Í Sunnudagsblaðinu
segja konur á ólíkum aldri frá
upplifun sinni af því að búa einar
og vera einhleypar. Tölurnar sem
birtar eru í úttekt blaðsins sýna
að nær helmingur kvenna, eða
47%, á aldrinum 20-39 ára er ein-
hleypur samkvæmt skilgreiningu
Hagstofunnar. Árið 1998 var
þetta sama hlutfall einhleypra
kvenna 39%.
Fleiri konur eru einhleypar í
öllum aldurshópum nú en fyrir
fimmtán árum, en fjölgun í hópi
einhleypra kvenna er mest í
yngsta aldurshópnum, sem er í
samræmi við þá staðreynd að gift-
ingaraldur fer hækkandi. Konur
binda sig síðar og, það sem meira
er, þær binda sig síður en áður.
Þessi þróun, þ.e. að hópur ein-
hleypra kvenna fari stækkandi,
sýnir sig í Bandaríkjunum og
Bretlandi einnig. Þar eins og hér
virðist sem æ fleiri konur hugsi líf
sitt í auknum mæli út frá sjálfum
sér en hafi kvatt hina hefðbundnu
mynd sem byggist á því að finna
mann og eignast með honum vel
gefin börn, hús, hund og skutbíl.
Skáldaður heimur bókmennt-
anna er oftar en ekki skrefi á und-
an raunheiminum. Þess vegna er
freistandi að setja fram þá kenn-
ingu að skvísubókmenntir sem
fóru að koma fram á tíunda áratug
síðustu aldar hafi sagt fyrir um
þessa þróun. Kenningin stenst þó
ekki skoðun því í þeim bókum er
það jafnan ástin eða leitin að ást-
inni sem stýrir atburðarásinni. Að
lokum þarf skvísan að finna ástina
í sterklegum örmum karlmanns,
annars er endirinn harmrænn og
átakanlegur. En þær einhleypu
konur sem rætt er við í blaðinu
eru ekki endilega í makaleit held-
ur velja sér það að vera einar og
búa einar. Þarf kannski að fara að
semja nýjan endi?
RABBIÐ
Nýr endir
Eyrún Magnúsdóttir
„Þetta var stórkostleg tilfinning. Um leið og það er gott að þetta skuli vera búið finnur maður á sama tíma fyrir söknuði,“ sagði Vilborg Arna Giss-
urardóttir í samtali við mbl.is á föstudaginn en hún komst alla leið á suðurpólinn á fimmtudagskvöldið. Vilborg gekk alls 1.140 kílómetra á 60 dögum.
Það þarf mikinn viljastyrk, aga og þrek til að ganga slíka vegalengd við jafnerfiðar aðstæður og á suðurpólnum. Við Íslendingar erum hertir í eldi ald-
anna – þjóðin hefur sem kunnugt er lifað af ófáar náttúruhamfarir og drepsóttir – og látum okkur jafnan fátt fyrir brjósti brenna. Eigi að síður er óhætt
að fullyrða að fæst okkar myndu hafa svo mikið sem hugmyndaflug í að ráðast í jafnerfitt verkefni og Vilborg Arna. Rík ástæða er til að óska henni hjart-
anlega til hamingju með afrekið og óska henni ánægjulegrar heimkomu. Móttökur verða að líkindum höfðinglegar.
Meðfylgjandi ljósmynd er samsett. Mynd Óla Hauks Valtýssonar af Vilborgu er sett inn á mynd RAX frá Suðurskautslandinu.
AUGNABLIKIÐ
SÉRSTÖK UPPLIFUN
VILBORG ARNA GISSURARDÓTTIR VANN FYRIR HELGI ÞAÐ MERKA AFREK AÐ KOMAST FÓTGANGANDI (TJA EÐA
SKÍÐGANGANDI) Á SUÐURPÓLINN. HÚN ER FYRSTI ÍSLENDINGURINN TIL AÐ NÁ ÞEIM ÁFANGA EIN SÍNS LIÐS.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Útgefandi Óskar Magnússon
Ritstjórar Davíð Oddsson, Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hvað? Nýárstón-
leikar og dans.
Hvar? Harpa.
Hvenær? Laugardag
kl. 20.
Nánar: Hljómsveitin
Salon Islandus ásamt
Sigrúnu Hjálmtýsdóttur sópransöng-
konu og Karlakór Reykjavíkur. Vinsæl
Vínartónlist fram að hléi en gólfið þá
rutt og fólk getur dansað.
Vínartónlist og dans
Hvað? Tónleikar.
Hvar? Salurinn.
Hvenær? Laugardag
kl. 20.
Nánar: Tríó Glóðir
og Sigríður Thorlac-
ius flytja leikritalög Oddgeirs Kristjáns-
sonar og Jóns Múla.
Lög úr leikritum
Í fókus
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
Hvað? Kvikmynd.
Hvar? Háskólabíó.
Hvenær? Laugard. og sunnud. kl. 20.
Nánar: Hlaut Gullpálmann í Cannes og
Evrópsku kvikmyndaverðlaunin. Hluti
frönsku kvikmyndahátíðarinnar.
Ást
Hvað? Íþróttamót.
Hvar? Flestar greinar
í Laugardal.
Hvenær? Hófst
föstudag, stendur til
27. janúar.
Nánar: Árlegt al-
þjóðlegt mót í fjölda greina. Margt besta
íþróttafólk landsins tekur þátt í mótinu
og erlendir keppendur frá tæplega 30
þjóðum. Sjá nánar á www.mbl.is/sport.
Reykjavíkurleikarnir
Hvað? Leikrit; Ég var einu sinni frægur.
Hvar? Hlöðunni Litla-Garði, Akureyri.
Hvenær? Laugardag kl. 20.30.
Nánar? Þráinn Karlsson, Gestur Einar
Jónasson og Aðalsteinn Bergdal leika
sjálfa sig í frumsömdu grínleikriti.
Einu sinni frægir
Hvað? Söngvaleikrit.
Hvar? Borgarleikhúsið.
Hvenær? Laugardag kl. 20.
Nánar: Dúettinn Hundur í óskilum fer
á hundavaði í gegnum Íslandssöguna frá
upphafi til okkar daga.
Saga þjóðar