Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 57
20.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 57
Krúnuleikarnir, Game of
Thrones, eftir George R.R.
Martin hafa notið gríðarlegra
vinsælda víða um heim. Nú er
fyrsta bókin í bókaflokknum
komin út á íslensku, en hinir
geysivinsælu sjónvarpsþættir
eru byggðir á henni. Þetta er
bók fyrir spennufíkla sem vilja
ævintýralega frásögn og fjöl-
breytt persónugallerí. Hér eru
launráð og losti í fyrirrúmi.
Launráð
og losti
Á þýska mesölulistanum er að
finna gamansögu um Adolf Hit-
ler. Skáldsagan sem nefnist Er
Ist Wieder Da (Hann er
kominn aftur) hefur sem komið
er selst í 250.000 eintökum. Höf-
undurinn er blaðamaður, Timur
Vermes.
Í bókinni leggst Adolf Hitler til
svefns árið 1945 og vaknar árið
2011. Hann ráfar um götur Berl-
ínar og fer með einræður sem
gera að verkum að fólk álítur
hann vera skemmtikraft. Hann
öðlast frægð og leggur fyrir sig
stjórnmál. Í bókinni lúskra nýnasitar svo á honum.
Allt sem viðkemur Hitler er viðkvæmt í Þýskalandi og bókin
hefur vakið mikið umtal og svo sannarlega eru ekki allir sáttir.
Ýmsir hafa orðið til að gagnrýna efnisvalið harðlega en bók-
menntagagnrýnendur hafa margir hverjir hrósað höfundinum.
Sjálfur segist hann hafa viljað nýta gamansemi til að sýna hinn
raunverulega Hitler. Ensk þýðing á þessari óvenjulegu skáldsögu
er væntanleg.
Gamansaga um Adolf Hitler slær í
gegn í Þýskalandi.
GAMANSAGA UM HITLER Á
METSÖLULISTA Í ÞÝSKALANDI
Bækur Árna Þórarinssonar fá góðar viðtökur erlend-
is.Tíma nornarinnar var tekið með kostum og kynjum af
gagnrýnendum í Bandaríkjunum, nú síðast tímaritinu Su-
spense Magazine sem segir höfundinn vefa saman lýsingar á
íslenskum hversdagsleika í margslungið mynstur öfundar,
græðgi og losta. Í Svíþjóð rataði bókin inn á lista sænska dag-
blaðsins Dagens Nyheter yfir bestu krimma ársins 2013.
Bók Árna Morgunengill fær ekki síðri viðtökur. Einn
þekktasti krítíker Frakka, Martine Raval, fjallar um bókina ný-
verið í tímaritinu Siné og segir Árna skrifa um hnignun frjáls-
hyggjunnar, „í stíl sem bæði er lipur, napur og augljóslega
pólitískur og setur af stað fléttu sem lætur lesandann halda í
sér andanum af spenningi“. Blaðamaður tímaritsins La tete en
noir segir söguna innihalda „stórfenglega fléttu, djúpa per-
sónusköpun, raunverulega hluttekningu og samkennd með
þeim sem þjást, án þess nokkurn tímann að verða væmin.
Lipurlega skrifað og ljúf kímni. Hvað er hægt að biðja um
meira?“
Fleiri hæla uppbyggingu bókarinnar í hástert, segja hana
snilldarlega og halda lesandanum hugföngnum, og gagnrýnandi
Polar noir tekur þetta saman á eftirfarandi hátt: „Frásögn full
af átökum, harmleik, einmanaleik og dauða, sem eiga sér stað
í hversdagsleikanum og fjallað er um á látlausan hátt. Lesist.“
HRÓSI RIGNIR YFIR
ÁRNA ÞÓRARINS
Árni Þórarinsson. Erlendir gagnrýnendur eru stórhrifnir af
glæpasögum hans.
Morgunblaðið/Golli
Iðrun eftir Hanne-Vibeke
Holst er viðburðarík og spenn-
andi fjölskyldusaga sem gerist á
70 árum og teygir sig frá her-
námsárunum á Jótlandi og allt
til Berlínar samtímans. Þetta er
saga um ást, metnað, blekk-
ingar og lygar.
Hanne-Vibeke Holst er einn
vinsælasti rithöfundur Dan-
merkur. Iðrun er nýjasta skáld-
saga hennar og fékk mjög góða
dóma í heimalandinu. Höfund-
urinn kann sannarlega að halda
lesendum við efnið.
Viðburðarík og
spennandi fjöl-
skyldusaga
Hraði og
spenna í
nýjum bókum
NÝLEGAR OG NÝJAR BÆKUR
JÓLABÓKAFLÓÐINU ER LOKIÐ OG BÓKAÚTSÖL-
URNAR TAKA VIÐ. NÝJAR KILJUR ERU KOMNAR
ÚT OG ÞÆR EIGA ÞAÐ SAMEIGINLEGT AÐ INNI-
HALDA HRAÐA OG SPENNU. KRÚNULEIKARNIR,
GAME OF THRONES, KOMU SVO ÚT NÚ FYRIR
JÓLIN OG SPENNUFÍKLAR FÁ ÞAR EFNI VIÐ SITT
HÆFI Á TÆPLEGA 900 SÍÐUM.
Þótt norrænar spennusögur hafi verið afar áber-
andi á markaðnum undanfarin ár hefur lítið verið
um þýðingar á finnskum glæpasögum. Nú er
komin út finnsk spennusaga í þýðingu Sigurðar
Karlssonar. Bókin nefnist Græðarinn og er eftir
Antti Tuomainen. Græðarinn er þriðja skáldsaga
hans og var valin besta glæpasagan í Finnlandi ár-
ið 2011. Íbúar Helsinki kljást við afleiðingar lofts-
lagsbreytinga og óaldarflokkar vaða uppi. Græð-
arinn myrðir auðmenn og stjórnmálamenn og
fjölskyldur þeirra.
Finnsk glæpasaga og
ógnvænleg framtíð
Boðskapur Lúsífers eftir Tom Egeland er fjórða
spennusaga Norðmannsins Toms Egeland sem kemur
út á íslensku. Hér segir frá dularfullu handriti, földum
boðskap í Biblíunni og ógnvænlegum spádómi um
dómsdag. Aðalpersónan er fornleifafræðingurinn
Björn Beltö sem veit ekki fyrri til en hann er kominn á
flótta undan sértrúarhópi og flækist inn í heim fornra
texta. Ísland kemur svo við sögu í bókinni.
Handrit og ógnvænlegur
spádómur
*Mannvera sem er hamingjusöm mun geraaðra hamingjusama; manneskja sem hefurhugrekki og trú mun aldrei deyja í eymd. Anna Frank BÓKSALA 1.-12. JANÚAR
Allar bækur
Listinn er byggður á upplýsingum frá Rannsóknasetri verslunarinnar
1 6 kíló á 6 vikumOla Lauritzson & Ulrika Davidsson
2 Iceland Small WorldSigurgeir Sigurjónsson
3 Heilsuréttir fjölskyldunnarBerglind Sigmarsdóttir
4 Uppskrift að fjöri með LatabæMagnús Scheving
5 Sjálfstætt fólkHalldór Laxness
6 HáriðTheodóra Mjöll
7 Danskur málfræðilykillHrefna Arnalds
8 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
9 Konur eiga orðið allan ársinshring 2013
Kristín Birgisdóttir
10 Fimmtíu dekkri skuggarE L James
Kiljur
1 Sjálfstætt fólkHalldór Laxness
2 ReykjavíkurnæturArnaldur Indriðason
3 Konur eiga orðið allan ársinshring 2013
Kristín Birgisdóttir
4 Fimmtíu dekkri skuggarE L James
5 KuldiYrsa Sigurðardóttir
6 Sagan af PíYann Martel
7 Eitt skotLee Child
8 Little book of the IcelandersAlda Sigmundsdóttir
9 ÓvinafagnaðurEinar Kárason
10 VögguvísaElías Mar
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Þegar stórt er spurt verður
oft fátt um svör.