Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 19
20.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 AFSLÁTTUR %A60 ALLTAÐ SÓFAR | SÓFASETT | HÆGINDASTÓLAR | SÓFABORÐ | BORÐSTOFU BORÐ | BORÐSTOFUSTÓLAR | SV EFNSÓFAR | BORÐSTOFUSKÁPAR | BAKBORÐ | HORNBORÐ | PÚÐAR | DÚKAR | BODUM-SMÁVARA | O.FL. | O.FL. | O.FL. 0% VEXTIR - Húsgagnahöllin býður upp á vaxtalaus lán til allt að 12 mánaða hafði farið í til þessa. Bílstjórar farartækjanna á veginum skaut- uðu milli akreina, tóku hver fram úr öðrum á blindhæðum og hvar- vetna var hengiflug. „Þeir stress- uðustu öskruðu nokkrum sinnum en þeir innfæddu kipptu sér ekk- ert upp við þetta og virtust kunna merkjamál sín á milli með bílflautunum. Svona til að toppa þetta allt rákumst við einu sinni á hljómsveit sem spilaði ofan á þaki rútu meðan hún var á ferð.“ Loks var hópurinn settur út í smábæ og gengið af stað. Burð- armenn tóku mest af dótinu. „Það er auðvitað skrýtið að fá einhvern annan til að bera dótið fyrir sig en maður veit að þetta er atvinna íbúa. Ég hugsa að við höfum pakkað af skynsemi en ef ég myndi pakka aftur fyrir samskon- ar ferð myndi ég vilja hafa ein- hvers konar regn-ponsjó aukalega sem er þægilegt að skella yfir sig. Það getur rignt mjög mikið seinnipartinn.“ Hverja nótt í ellefu sólarhringa var gist í svokölluðum tehúsum sem eru fremur frumstæð hótel og á daginn var gengið eftir stíg- unum. „Útsýnisstaðir eru fjöl- margir á leiðinni. Á Poon hill vor- um við komin í 3.200 metra hæð en þangað fara margir gönguhóp- ar og ganga einfaldlega ekki lengra því þaðan sér maður til allra átta. Á Poon hill gistum við og vorum vakin klukkan fjögur um nóttina til að ganga upp á við í um klukkustund og njóta sólar- upprásarinnar. Síðan náðum við í Annapurna-grunnbúðir í 4.200 metra hæð en svo skemmtilega vildi til að þessi dagur; 12. apríl, er einmitt afmælisdagur íþrótta- félagsins Hauka. Háfjalladeild Hauka hafði einmitt þarna fulltrúa í ferðinni.“ Brynjólfur segir það hafa verið skrýtið að horfa á An- napurna og átta sig á að þangað upp væru enn rúmlega 4.000 metrar. Tveimur dögum síðar rann svo upp nýtt ár í Nepal; 2069.“ Brynjólfur segir að þrátt fyrir að hafa ferðast víða sé ferðin til Nepal í öðru sæti yfir skemmti- legustu ferðir sem hann hefur far- ið í. „Fyrst og fremst er þetta svo mikil andleg upplifun. Um- hverfið og menningin og að njóta stundarinnar. Þetta er svo ótrú- lega framandi og kannski spilar líka inn í að mig hefur langað að ferðast til Nepal frá því að ég var lítil strákur. Ég hvet fólk til þess að vera tilbúið með verkjalyf og annað til að bregðast við því ef einhver veikist, nú eða fær tann- pínu, sem getur alltaf gerst á öll- um ferðalögum, en vera ekki að bera of mikið. Það er alls staðar hægt að kaupa vatn og mat.“ Hæsti punktur ferð- arinnar; 4.170 metrar í Annapurna- grunnbúðunum. Fremstur á myndinni er Brynjólfur Jónsson og svo frá vinstri: Daníel Brynjólfsson, Ingibjörg Ásgeirs- dóttir, Auður Brynj- ólfsdóttir, Vilborg Hafsteinsdóttir, Sig- rún Víglundsdóttir, Hallgrímur Jónasson og Þráinn Hauksson. Ljósmynd/Brynjólfur Jónsson Stórkostlegt útsýni til allra átta þar sem myndin af hópnum í heild var tekin í Annapurna-grunnbúðunum. *Fyrst og fremst er þetta svo mikil and-leg upplifun. Umhverfið og menninginog að njóta stundarinnar. Þetta er svo ótrúlega framandi. Ferðin var með menning- arlegu ívafi en í Katmandú var eitt helgasta hof Shiva meðal annars skoðað sem og búddahof og Patan Durbar-torgið. Einn af fjölmörgum burðarmönnum á svæðinu; með tíu lifandi hænur á bakinu, líklega á leið í tehús þar sem hænurnar eru notaðar í kvöldverð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.