Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Side 60
AFP
Hermann Hreiðars-
son var hjá Redknapp.
Loic Remy kom í vik-
unni frá Marseille.
Tony Fernandes, for-
maður stjórnar QPR.
Harry Redknapp er stundum nefndur í sömu
andrá og sjónhverfingamaðurinn goðsagnakenndi,
Harry Houdini; sá sem losaði sig úr hvaða hand-
járnum sem var og braust út úr rammgerðustu
fangaklefum, í sýningarskyni. Redknapp er 65
ára, fæddur í London og byrjaði ungur að leika
með West Ham. Var þokkalegur leikmaður en
hefur starfað sem þjálfari í þrjá áratugi. Nokkr-
um sinnum hefur hann tekið við liði í afleitri
stöðu og rétt kúrsinn þannig að jaðrað hefur við
sjónhverfingar. Það hefur þó ekki alltaf tekist.
Lið hans leika jafnan afar skemmtilega knatt-
spyrnu, þar sem sóknarleikur er í hávegum. Slíkt
er að vísu ekki í boði nú; Redknapp tók á dög-
unum við liði QPR sem var þá langneðst – og er
enn neðst – í ensku úrvalsdeildinni og í slíkri
stöðu er það ekki fegurðin sem skiptir máli
heldur að næla í stig. Aðferðin gildir einu.
Skútan á réttri leið
Forveri Redknapps, Mark Hughes, keypti
marga leikmenn í sumar en náði ekki að púsla
hópnum saman. Malasíski viðskiptajöfurinn
Tony Fernandes, meirihlutaeigandi og
stjórnarformaður QPR, ákvað að láta Hugh-
es fara í lok nóvember og fékk Redknapp
til að freista þess að rétta skútuna við.
Hún er langt frá því komin fyrir vind, en
mjakast þó í rétta átt.
Redknapp þykir mikill refur við kaup og
sölu leikmanna. Stundum kallaður braskari
en er allt annað en sáttur við þann stimpil.
Sagði t.d. sjónvarpsmanni, sem nefndi þetta
við hann í beinni útsendingu fyrir nokkrum
misserum, að hoppa upp í rassg … á sér!
Hvað sem því líður hafa lið Redknapps oft
keypt menn á kostakjörum. Blekið er varla
þornað á samningi sem fellur í þann flokk;
franski framherjinn Loic Remy kom í vik-
unni frá Marseille, fyrir sjö milljónir punda
að því er talið er. Tottenham bauð tuttugu
milljónir punda í Remy í fyrra, þegar Red-
knapp var þar við stjórnvölinn, en Marseille
sagði nei.
Annað mál er að Remy var nánast kominn
til Newcastle í vikunni þegar hann hætti við
og valdi QPR í staðinn. Kannski heillaði höf-
uðborgin. Kannski Redknapp? Hugsanlega
peningar Malasíumannsins. Hvað veit ég?
Skatturinn …
Braskari eða ekki. Redknapp var kærður
fyrir meint svæsin skattsvik árið 2010 en
sýknaður í fyrra, eftir langa og stranga
ferð fyrir dómstólum. Fyrir dómi sagði
þjálfarinn óhugsandi að hann hefði
óhreint mjöl í pokahorninu. Hélt því
fram að endurskoðandinn sæi um öll
fjármál fjölskyldunnar og sjálfur
hefði hann aldrei séð svo mikið sem
einn launamiða eða önnur gögn.
Harry Redknapp lýsti því yfir í
réttarsalnum að hann væri hræði-
lega óskipulagður, og dró svo sem
ekki upp neina glansmynd af sjálf-
um sér. „Ég er varla skrifandi;
skrifa eins og tveggja ára, kann
ekki að stafa.“ Hann sagðist af-
skaplega gamaldags: Ég kann
ekki á tölvu, veit ekki hvað
tölvupóstur er, hef aldrei sent
fax og aldrei textaskilaboð.“
60 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013
*Aldrei langar og leiðinlegar ræður um leikaðferðir […]. Og það ertafla í búningsklefanum en Harry skrifar aldrei neitt á hana.Hollenski landsliðsmaðurinn Rafael van der Vaart sem lék undir stjórn Redknapps hjá Tottenham.
Boltinn
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
Hermann Hreiðarsson, fyrrverandi lands-
liðsfyrirliði, lék undir stjórn Harrys Red-
knapps hjá Portsmouth um tíma og þeir
urðu enskir bikarmeistarar vorið 2008.
Aðspurður segist Hermann sannfærður
um að Redknapp muni ná að bjarga QPR
frá falli: „Harry Houdini? Já, alveg pott-
þétt!“ sagði hann við Morgunblaðið.
Hermann segir Harry mjög góðan í því
að stappa í menn stálinu og fá þá til þess að
leggja sig fram. „Hann er kannski ekki takt-
ískur snillingur, en fær til sín leikmenn sem vita hvað
þeir eiga að gera og þarf þar af leiðandi að segja minna en
margir aðrir,“ segir Hermann.
„Harry er mjög klókur á leikmannamarkaðnum. Það er
líklega mesti styrkur hans að fá til sín góða leikmenn sem
einhverra hluta vegna eru í niðursveiflu og ná síðan því
besta út úr þeim. Það geta verið menn sem eru að byrja
aftur eftir meiðsli, komast ekki í liðið annars staðar eða
eru í fýlu einhverra hluta vegna. Harry hefur oft tekist að
telja þeim trú um að gæðin hafi ekki horfið heldur séu þeir
bara í tímabundinni lægð. Hann fær þessa menn oft á miklu
lægra verði en þeir hafa verið metnir á og eftir að þeir blómstra
hjá honum hækka þeir aftur mjög í verði.“ Hann kaupi þó ekki
hvern sem er heldur leiti að mönnum af ákveðinni skapgerð,
og virðist jafnan ná í þá réttu til að búa til góða blöndu.
Leikaðferðir eru ekki ær og kýr Redknapps, en Her-
mann segir hann treysta leikmönnum sínum afar vel.
„Hann fer t.d. ekki sérstaklega yfir það hvernig
hann vill að varnarmennirnir spili, frekar að þeir
spjalli um það sín á milli og spili eins og þeim líður
best.“
En er Harry jafnskemmtilegur náungi og
hann virðist vera? „Já, hann er frábær á meðan
þú ert einn af þeim 11-14 leikmönnum sem
hann vill nota í liðinu. En ég er ekki viss um að
það sé neitt sérstakt að vera hjá honum ef þú
ert ekki í þeim hópi!“ segir Hermann.
„Mjög
klókur“
Redknapp
kafteinn
Bolti í
blóðinu
Sandra Redknapp er eig-
inkona Harrys til 45 ára.
Tvíburaystir hennar, Pat-
ricia, giftist gömlum sam-
herja Harrys hjá West
Ham, Frank Lampard, og
hefur sonur þeirra og al-
nafni föður síns verið í
lykilhlutverki hjá Chelsea
lengi. Patricia lést fyrir
nokkrum árum. Annar
sonur Harrys og Söndru,
Jamie, var þekktur leik-
maður með Liverpool og
Tottenham og enskur
landsliðsmaður.