Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013 Föt og fylgihlutir D anska tískumerkið By Malene Birger, sem hefur farið sig- urför um heiminn, fagnaði tíu ára afmæli í vikunni. Af því tilefni kom vor- og sumarlínan 2013 í margar verslanir. Fatalínan ber nafnið „The Celebration“ eða Fagnaðurinn sem er vel við hæfi á svona stórafmæli. „Við höfum ákveðið að hafa árið 2013 ár fagnaðar, tilefni til að líta yfir farinn veg og þau markmið sem við höfum náð en þetta er líka tækifæri til að setja ný markmið,“ sagði stofnandinn Mal- ene Birger en sumarlínan fagnar þeim gildum og hugmyndum sem hafa verið ráðandi hjá merkinu síðustu ár. Kvenleiki fatnaðarins er áberandi eins og alltaf en litagleðin er óvenjulega mikil og ennfremur töluvert um djörf munstur. Rómantíkin er heldur aldrei langt undan og efnin eru létt og leikandi. Hvíti liturinn er grunnlitur í línunni en skær- bleikur er líka notaður mikið en bleiki liturinn var í fyrstu línunni frá By Malene Birger og er enn í uppáhaldi hjá hönnuðinum. BY MALENE BIRGER Gleði og glaumur DANSKA TÍSKUMERKIÐ BY MALENE BIRGER FAGNAÐI TÍU ÁRA AFMÆLI Í VIKUNNI. VOR- OG SUMARFATNAÐURINN Í ÁR ER SÉRSTAKLEGA LITRÍKUR OG LOKKANDI. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Malene Birger-konan er fáguð á nútímalegan hátt. Buxurnar í fatalín- unni voru jafnan í víðari kantinum og fremur afslappaðar. Blúndan fær frísk- legan svip með skær- græna litn- um. Kjólarnir voru margir úr litríku blóma- munstri. Bleiki liturinn er áberandi í sum- arlínunni enda er hann í uppáhaldi hjá hönnuðinum sjálfum. Japanski hönnuðurinn Issey Miyake var með mikið af bæði gulli og silfri í sýningu sinni á tískuviku í París á fimmtudag. Þar sýna hönnuðir herratískuna fyrir haustið og veturinn 2013-2014. Efnið minnti á það sem notað er í einangrunarteppi og þótti það mjög við hæfi þar sem hitinn í París fór niður fyrir frostmarkið á sýningardaginn. Issey Miyake er þekktur fyrir framúrstefnulega hönnun og enn- fremur framúrstefnuleg efni þannig að þessi lína var alveg í hans anda. Gull og silfur fyrir herrana Gullefnið minnti á einangrunarteppi. AFP Danska tískuhúsið Vero Moda var í fréttum í vikunni þegar kynnt var nýtt andlit fatamerkisins, breska fyrirsætan Poppy Delevingne. Þetta kom fram þegar fyrirtækið sýndi nýjar myndir af auglýsingaherferð sinni fyrir vor- og sumarlínuna í ár. Poppy er 26 ára og þekkt fyrir- sæta. Hún er eldri systir hinnar tví- tugu fyrirsætu Cöru Delevingne, sem er með eftirsóttustu fyrir- sætum heims um þessar mundir. Poppy deildi tískuráðum í mynd- bandi sem var tekið upp á bak við tjöldin í tískumyndatökunni. Henn- ar helsta ráð: „Fylgdu og treystu innsæi þínu. Innsæi þitt hefur alltaf rétt fyrir sér.“ Nýtt andlit Vero Moda Poppy Delevingne er nýtt andlit danska tísku- hússins Vero Moda.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.