Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013 Græjur og tækni contrast Filter, er hún líkir eftir örsmáum hnúðum á augum mölflugna og dregur úr glampa. Á skjánum er mynstur örlítilla hnúða sem koma í veg fyrir að ljósgeislar endurkastist af skjánum og fyrir vikið er skerp- an á tækinu ævintýralega mikil þegar LCD-tæki er annars vegar: 150.000.000:1. (Ókostur við þetta, ef kalla má það ókost, er að ekki má snerta skjáinn, ekki vegna þess að hann skemmist heldur vegna þess að þá verður hann kámugur (húðfita) og þá fitu þarf að hreinsa með hreinsiklút og vökva sem fylgja tækinu). Annað sem gerir Philips-tæki frábrugðin tækjum samkeppnisaðila er baklýsing sem Philips-menn kalla Ambilight. Hún er fáanleg á mörgum Philips-tækjum, en á 46PFL9707 er Ambilight Spectra XL. Baklýsingin er frá ljósdíóðuröð á baki tækisins og lýsir með daufri birtu á vegginn aftan við tækið (hægt er að slökkva á þessu ef vill). Birtan breytir um lit eftir því sem er á seyði á skjánum, lagar sig að myndinni og áhorfandinn fær á tilfinninguna að skjárinn sé mun stærri en hann er og sér líka mun betur það sem er á seyði á skjánum. Erfitt að lýsa þessu, en þetta svínvirkar. EISA, samtök tímarita sem fjalla um margmiðlunartækni, veita ár-leg verðlaun fyrir tæki ársins og nýtt 46" þrívíddarsjónvarp fráPhilips sem heitir því þjála nafni 46PFL9707, var valið LCD- sjónvarp ársins 2012-2013. Það er og vel að verð- laununum komið, mynd- in er ævintýralega skörp, svörun mjög góð og tæknileg útfærsla til fyrirmyndar. Á síðustu árum má segja að sjónvarp og tölva séu að renna sam- an að miklu leyti og tæknin sem nú er inn- byggð í flest gæðatæki auðveldar notandanum að finna skemmtilegt myndefni á netinu þó vissulega sé líka hægt að skoða flestar vefsíður sýnist manni svo. Verðlaunatækið frá Philips er 46" eins og getið er, með LED-baklýstan LCD-skjá. Eitt af því sem gerir það eins gott og raun ber vitni er tækni sem Philips kallar mölflugusíu, Moth eye ÆVINTÝRALEGT SJÓNVARP NÝTT 46" SJÓNVARPSTÆKI FRÁ PHILIPS HLAUT EISA-VERÐLAUNIN SEM LCD-SJÓNVARP ÁRSINS 2012-2013. ÞAÐ ER OG VEL AÐ VERÐLAUNUNUM KOMIÐ MEÐ FRÁBÆRLEGA SKARPA MYND OG SNJALLA TÆKNILEGA ÚTFÆRSLU. Græja vikunnar * Á sjónvarpinu eru líkaþrjú USB-tengi og hægt að spila vídeó beint af minnislykli eða ut- análiggjandi diski, skoða jpg- myndir eða spila músík á MP3-, WMA- og AAC-sniði. Fjarstýr- ingin er með hnappaborð á bak- inu og greinir sjálfkrafa hvort hliðin snýr upp. * Ekki skortir tengimögu-leika, á sjónvarpinu eru fimm HDMI tengi, SCART- og Component-tengi og heyrnar- tólstengi. Það eru líka Ethernet- tengi, Optical út, VGA & CI-rauf og þráðlaust net er innbyggt. ÁRNI MATTHÍASSON * Í tækinu er innbyggðurstafrænn DVB-C, DVB-T, DVB- T2 móttakari og eins gervi- hnattamóttakari. Hægt er að taka efni upp í tækinu, til að mynda á utanáliggjandi disk eða á minnislykil ef vill. Tækið er með innbyggt þráðlaust net og fyrir vikið er hægt að streyma efni úr því í spjaldtölvu, til að- mynda í iPad. meðferð slíkra mála verði endur- skoðuð. Átti yfir höfði sér allt að 35 ára fangelsi Swartz átti yfir höfði sér allt að 35 ára fangelsisvist og milljónir dollara í sektargreiðslur, yrði hann sakfelldur fyrir alla 14 liði ákæru um stórfellda netglæpi og gagnastuld. Réttarhöldin áttu að fara fram nú í apríl. Forsaga málsins er sú að á tímabilinu frá desember 2010 til janúar 2011 sótti Swartz tæplega fimm milljón greinar í fræðigreinasafnið JSTOR í gegnum net MIT- háskóla, mögulega með það að markmiði að gera þær aðgengi- legar án endurgjalds. JSTOR er eitt stærsta fræðigreinasafn heims þar sem nálgast má gegn gjaldi greinar úr rúmlega 1.400 vísindaritum í ólíkum fögum. Fjöldi háskóla og stofnana víða um heim greiðir áskrift fyrir að- gang að safninu fyrir nemendur og fræðimenn, þar á meðal MIT- háskóli, sem veitir öllum sem hafa aðgang að MIT-netinu óheft- an aðgang að JSTOR. Swartz var á þessum tíma starfsmaður Har- vard-háskóla og nýtti sér aðgang að neti MIT sem hann fékk í A aron Swartz var undra- barn í netheimum. 14 ára gamall spilaði hann lykilhlutverk í þróun RSS-staðalsins. Hann kom einnig að gerð Creative Commons- notkunarskilmálanna og opna gagnasafnsins Archive.org. Þegar hann var 19 ára gamall var hann einn af stofnendum Redditt, sem er eitt víðlesnasta vefsvæði heimsins. Hann var 26 ára gamall þegar hann féll fyrir eigin hendi hinn 11. janúar síðastliðinn. Kröfur um að löggjöf um netglæpi verði endurskoðuð Sjálfsmorð Aarons Swartz hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum vestanhafs, ekki síst þar sem það er talið tengjast dómsmáli sem hann átti yfir höfði sér að und- irlagi MIT-háskóla, fyrir tölvu- glæpi. Vitað er að Swartz þjáðist af þunglyndi, en flestir sem til hans þekktu telja að áðurnefnt dómsmál hafi vegið þungt í ákvörðun hans um að binda enda á eigið líf. MIT-háskóli og emb- ætti saksóknara í Bandaríkjunum hafa verið harðlega gagnrýnd í kjölfar þessa atburðar og hefur þess verið krafist að löggjöf í Bandaríkjunum um netglæpi og gegnum bókasafn við skólann til þess að skrifa lítið forrit sem sótti greinar í safnið og færði þær á fartölvu hans. Þegar lokað var á gestaaðgang hans bjó hann til nýjan og hélt áfram. Swartz var mikill baráttumaður fyrir því að upplýsingar og gögn yrðu aðgengileg almenningi og tók virkan þátt í samfélagi hakk- ara og aðgerðasinna sem berjast fyrir því að „frelsa“ opinber gögn sem þau telja eiga að vera opin en eru lokuð almenningi með ein- hvers konar aðgangshindrunum. Margir telja líklegt að aðgerð Swartz hafi tengst þessu baráttu- máli hans. JSTOR, fyrir sitt leyti, tilkynnti strax að það myndi ekki leita eftir því að Swartz yrði kærður, enda er gagnasafnið ekki rekið í gróðaskyni. MIT-háskóli fylgdi ekki því fordæmi, og fyrir vikið tóku saksóknarar ríkisins málið að sér og kærðu Swartz fyrir stórfellda netglæpi og gagnastuld í fjórtán liðum og sóttust eftir hámarksrefsingu. Víðfeðmar heimildir til lögsókna Mörgum þeim sem tjáð hafa sig um málið þykir sem hér hafi lítið samræmi verið á milli hins eig- inlega glæps og mögulegrar refs- ingar. Swartz var kærður fyrir brot á ákvæðum laga sem kallast Computer Fraud and Abuse Act (CFAA). Lögin voru sett árið 1986 í því skyni að lögsækja hakkara fyrir að brjótast inn í tölvukerfi til að stela viðkvæmum upplýsingum eða vinna skemmd- arverk. Lögin hafa lítið verið endurskoðuð síðan og þykja ekki henta hinum nettengda heimi sem við búum við í dag. Þau veita saksóknaraembætti mjög víðfeðm- ar heimildir til lögsóknar, til dæmis í krafti þess að brjóta not- endaskilmála vefþjónustu á borð Glæpur og refsing FRÁFALL AARONS SWARTZ VEKUR SPURNINGAR UM LÖG- GJÖF UM TÖLVUGLÆPI Í BANDARÍKJUNUM. KALLAR GLÆP- UR ÁN FÓRNARLAMBA Á ÁRATUGA FANGELSI? Sveinn Birkir Björnsson sveinnbirkir@gmail.com Aaron Swartz var ötull baráttumaður fyrir að- gangi almennings að upplýsingum. UNDRABARNIÐ AARON SWARTZ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.