Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Side 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Side 20
*Heilsa og hreyfingSalt er nauðsynlegt líkamanum en óhófleg saltneysla er alvarlegt heilsufarsvandamál »22 B jarney Hinriksdóttir hefur stundað brasilísku bardagalistina capoeira í þrjú ár úti í Barcelona þar sem hún var búsett. Hún er nú flutt heim til Íslands og kemur með þessa hugar- og lík- amsrækt með sér heim. Hún æfði með brasilískum meistara á Spáni en þekkti þó vel til capoeira en hún bjó í Brasilíu og heillaðist þar af landi og menningu. Hingað til hefur capoeira-kennsla verið slitr- ótt hérlendis og vill Bjarney gera bragarbót á því. Þetta er ennfremur í fyrsta sinn sem boðið er upp á námskeið einvörðungu fyrir börn en öll kennsla fer frem í Latin Stúdíói í Faxafeni 12 í Reykjavík. „Ég bjó í Brasilíu og hef verið þar mikið. Ég vissi því hvað capoeira var en byrjaði ekki að æfa fyrr en í Barcelona. Mig langar að koma með þetta hingað heim þannig að þetta sé komið til að vera. Capoeira er nokkuð sem maður verður að taka tíma í og læra yfir langan tíma,“ segir Bjarney. Meistari hennar frá náminu í Barcelona er yfir náminu hér á landi en þjálfarinn heitir Magdalena og er komin hingað til lands frá Spáni. „Hún er vinkona mín og er búin að vera að aðstoða við kennslu úti, hefur verið mikið í Brasilíu og verið lengur í þessu en ég,“ segir Bjarn- ey sem er samt á staðnum og aðstoðar við kennsluna. Allir fá sérstök capoeira-nöfn Gaman er að segja frá því að í capoeira fá allir sérstök capoeira-nöfn en Magdalena kallast Onça Branca, eða Hvíti tígurinn og Bjarney heitir Mariposa eða Fiðrildið. Capoeira er annars af afró-brasilískum uppruna og er upprunið frá þrælum. Rétt er þó að taka fram að það er ekki verið að berjast heldur er þetta tjáning. Um er að ræða einhvers konar bardagadans þar sem tveir spila hvor á móti öðrum, það er verið að sýnast berjast. „Þú spilar við félaga, þetta er ekki keppni, þess vegna er þetta svo jákvætt,“ segir Bjarney. „Það er svo margt sem maður lærir, þetta er mjög andlega uppbyggjandi líka. Maður þarf að fara út fyrir þægindarammann og losnar við feimni, eða það átti allavega við um mig.“ Capoeira lítur út fyrir að vera líkamlega krefjandi. „Þú þarft alls ekki að vera fimleikamanneskja til að spila capoeira. Þeir sem eru á þeirri línu geta spilað þannig leik. Þetta er persónuleg tjáning. En það er heilmikið af handahlaupum og staðið á höndum og haus. Ég er alveg að gera hluti sem ég hélt ég myndi ekki geta en ég er samt engin fim- leikamanneskja.“ CAPOEIRA FYRIR KRAKKA Brasilísk bardagalist BJARNEY HINRIKSDÓTTIR HEILLAÐIST AF BRASILÍSKU BARDAGALISTINNI CAPOEIRA FYRIR NOKKRUM ÁRUM OG SKIPULEGGUR NÚ NÁMSKEIÐ FYRIR BÖRN OG FULLORÐNA. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Bjarney Hinriksdóttir er hér í capoeira-gallanum með brasilískt hljóðfæri í hendi sem heitir berimbau. Fyrir utan líkams- ræktina er spilað og sungið í hverjum tíma. Bjarney segir mikla gleði fylgja þessu. Morgunblaðið/Golli Það er nýjung á Íslandi að haldið sé sérstakt námskeið fyrir börn í capoeira en slíkt fór í gang í vikunni á vegum Bjarneyjar og félaga og er enn hægt að slást í hópinn. Krakkarnir sem voru mættir höfðu mjög gaman af og gekk tíminn vel. Upphitunin fólst í mörgum skemmtilegum leikjum en líka var farið strax í að kenna nokkrar capoeira-grunnhreyfingar sem gerðar voru síðan annaðhvort allir saman eða í pörum. Hreyfingin var mikil og virtust flestir bæði taka vel á og skemmta sér vel. Hver tími endar á því að spilað er saman og sungið þannig að capoeira-tími lyftir líka sálinni. Það var klapp- að, spilað og sungið. „Markmiðið er að búa til gleðistund,“ segir Bjarney. „Krakkarnir læra aga eins og í öllum bar- dagalistum. Það er mikilvægt að sýna mótspil- urum þínum virðingu. Þetta er ekki keppni og snýst ekki um að vera betri en einhver annar. Capoeira er gott fyrir samhæfinguna. Og líka gott fyrir okkur Íslendinga því þetta opnar fólk dálítið,“ segir hún en ennfremur á „krakki að geta spilað við fullorðna og byrjendur við lengra koma, þú gerir bara þitt“. Upplýsingar um þetta námskeið og fleiri er að finna í hópnum Capoeira á Íslandi/ Capoeira Iceland á Facebook. Tveir spila saman. Spörk eru algeng í capoeira og hér er hreyfingin „cocorinha“ notuð til varnar. Morgunblaðið/Golli Skemmtilegir leikir og góð hreyfing

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.