Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Side 53
20.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 53
Öll ungmenni þurfa að upp-
lifa þá óvissu hvort Lilla klif-
urmús takist að klifra upp í
tréð áður en Mikki refur
nær honum. Einhver sæti eru laus á
Dýrunum í Hálsaskógi í Þjóðleik-
húsinu - fjölskyldan í leikhús.
2
Tónsmíðanemar í
Listaháskólanum komu sér
fyrir í Kaldalóni í Hörpu á
föstudag og voru nokkur
verk þá frumflutt. Hátíðin heldur
áfram á laugardag, með þrennum
tónleikum og nýjum verkum, klukkan
13, 14.30 og 16. Tónleikarnir eru
opnir öllum og aðgangur ókeypis.
4
Ef fólk er að klára jólabæk-
urnar og vantar meira áhuga-
vert lesefni, þá er óhætt að
mæla með Ástum, skáldsögu
spænska höfundarins Javiers Mari-
as sem kom út í Neon-flokki Bjarts í
vikunni. Frábær höfundur.
5
Frönsk kvikmyndahátíð
stendur yfir í Háskólabíói og
boðið upp á góðar myndir.
Meðal þeirra er Ást, Amour,
leikstjórans Michaels Hanekes.
„Mögnuð kvikmynd“ skrifar rýnir
Morgunblaðsins djúpt snortinn enda
er hún talin sigurstrangleg sem besta
erlenda myndin á óskarsverðlauna-
hátíðinni í næsta mánuði.
3
Óhætt er að mæla með því að
fólk fjölmenni í Gerðarsafn að
skoða yfirgripsmikla og áhrifa-
ríka sýningu Helga Þorgils
Friðjónssonar á málverkum og leir-
skúlptúrum. Einn okkar fremstu lista-
manna í sannkölluðu toppformi.
VIÐBURÐIR HELGARINNAR
1
Þessi tónlist er svo væn, hún er svomikill gleðigjafi og lyftir upp sálinni.Hún er létt og ljúf og melódíurnar
yndislegar,“ segir Sigurður I. Snorrason
klarinettuleikari um Vínartónlistina sem fær
að hljóma á nýárstónleikum hljómsveit-
arinnar Salon Islandus í Norðurljósasal
Hörpu á laugardagskvöldið klukkan 20. Sig-
rún Hjálmtýsdóttir sópransöngkona og
Karlakór Reykjavíkur koma fram með
hljómsveitinni, sem hefur flutt þessa árlegu
tónleika úr Salnum í Kópavogi og bryddar
upp á þeirri nýjung að eftir hlé verða sæti
fjarlægð úr salnum og gestum boðið að
dansa í klukkustund við leik átta manna
hljómsveitarinnar, sem skipuð er landsfrægu
tónlistarfólki.
„Við höldum upp á tíu ára afmæli Salon
Islandus með því að breyta svona til,“ segir
Sigurður. „Gegnum árin hefur verið rætt um
það að þegar fólk hefur hlýtt á tónlistina fær
það gjarnan titring í fæturna og vill dansa.
Því ákváðum við að prófa þetta og flytjum
okkur í Norðurljósasal Hörpu. Þar er mjög
gott pláss og góður hljómur.
Fyrir hlé verða þetta hefðbundnir tón-
leikar, þá koma tvö danspör, sýna vals og
tangó og síðan mega allir fara út á gólf og
dansa,“ segir Sigurður og bætir við að þetta
sé eins og í poppinu í gamla daga, þau hafi
sett upp lagalista fyrir dansinn. „Valsinn
verður á sínum stað en við förum líka eitt-
hvað í suðurameríska dansa, tangó, rúmbu
og annað sem fólk kann.“
En Vínartónlistin ræður ríkjum fyrir hlé
með fulltingi Diddúar og Karlakórs Reykja-
víkur. „Ákveðin lög verða að heyrast á
hverju ári en við breytum til og bætum í, af
nógu er að taka í Vínartónlistinni. Fólk nýt-
ur þess að heyra þessa tónlist,“ segir Sig-
urður.
VÍNARTÓNLIST OG DANS Á NÝÁRSTÓNLEIKUM Í HÖRPU
Gleðigjafi sem lyftir sálinni
HLJÓMSVEITIN SALON ISLANDUS,
KARLAKÓR REYKJAVÍKUR OG
DIDDÚ KOMA FRAM Á NÝÁRSTÓN-
LEIKUM MEÐ VÍNARTÓNLIST.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Hljómsveitin Salon Islandus ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur og Karlakór Reykjavíkur í Hörpu.
þekki betur verk ljósmyndara eins og Ragn-
ars Axelssonar, Páls Stefánssonar, Gunnars
V. Andréssonar og Sigurgeirs Sigurjóns-
sonar. „Þarna eru til dæmis afskaplega
skemmtilegar syrpur eftir Jóhönnu Ólafs-
dóttur og Svölu Sigurleifsdóttur. Karlarnir
eiga sinn sess en konurnar koma meira á
óvart.“
Margir eiga sér ljósmyndun að áhugamáli í
dag en afar margt hefur breyst í faginu með
tilkomu stafrænu tækninnar; margir þeirra
sem mynda nú af ástríðu gera sér enga grein
fyrir veruleika ljósmyndara fyrir tveimur eða
þremur áratugum. Um hann má fræðast við
lestur viðtalanna í skýrslunni og með því að
skoða áhugaverða sýninguna.
„Þetta var stórkostlegur tími,“ segir Ragnar
Axelsson í einu viðtalinu. „Maður náttúrlega
lærði að stækka í myrkraherbergi og ég lokaði
mig alltaf inni í fleiri daga í myrkraherberginu
og reyndi að búa til minn karakter með því
hvernig ég stækkaði mynd í svarthvítu.“
Steinninn, verk Davíðs Þorsteinssonar. Í skýrslunni segist hann alltaf hafa
séð í svarthvítu. „Taka mynd af því sem er, engar brellur …“
Ljósmynd/Davíð Þorsteinsson
Mynd sem var á sýningu Félags áhugaljósmynd-
ara, Ljós 78, á Kjarvalsstöðum árið 1978.
Ljósmynd/Pjetur Þ. Maack
Nafnlaus ljósmynd eftir Braga Þór. Hann hóf ljósmyndaferilinn sem
félagi í ljósmyndaklúbbum og lærði fagið síðan í Bandaríkjunum.
Ljósmynd/Bragi Þ. Jósefsson
Hörður Geirsson, safnvörður ljós-
myndadeildar Minjasafnsins á Akureyri,
opnar á Veggnum í Myndasal Þjóðminja-
safns í dag sýningu á myndum sem hann
hefur tekið á votar plötur. Sú aðferð,
„wet plate“, var ríkjandi í ljósmyndun
frá 1851 og fram yfir 1880. Umfangs-
mikinn búnað þarf við myndatökuna,
myndavél og vökva, en framkalla þarf
myndir strax að myndatöku lokinni.
HÖRÐUR GEIRSSON SÝNIR
Nýjar myndir með
gamalli tækni