Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 9
20.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9
Rannsóknir sýna að notkun sykurlauss Extra eykur
munnvatnsframleiðslu, jafnar sýrustig, heldur
tönnunum hreinum og stöðvar sýklaárásir á þær.
Extra minnkar upptöku hitaeininga og dregur
það úr streitu í amstri hversdagsins.
M
ikil umræða hefur verið um störf hjúkr-
unarfræðinga og kjarabaráttu þeirra. Er
nú svo komið að 280 hjúkrunarfræðingar
hafa sagt upp störfum á Landspít-
alanum. Hafa hjúkrunarfræðingar meðal annars
kvartað undan auknu starfsálagi. Harpa Júlía Sævars-
dóttir vinnur á hjartagátt Landspítalans en á þeirri
deild hafa 16,7% hjúkrunarfræðinga sagt upp störfum.
7:45 Nálgast Landspítalann við Hringbraut,reyni að „secreta“ það að ég fái bíla-
stæði í nánd við sjúkrahúsið. Vona að það sé ekki
enn stútfullt á deildinni og að dagurinn verði betri
en í gær. Það er jú janúar sem eru yfirleitt anna-
samur tími
8:00 Mætt klædd og til í slaginn á hjartagáttLandspítala (bráðmóttaka hjartasjúklinga
ásamt dagdeild og göngudeild). Legið er á öllum
deildum og í rúmum á deildinni og þrír á leiðinni sem
vitað er um. Sex á dagdeildinni eiga að fara í hjarta-
þræðingu og aðrar rannsóknir. Einnig eigum við von
á fjórum í hjartarafvendingu. Ég fæ skýrslu um fjóra
sjúklinga sem ég á að annast og tek við vaktstjóra-
hlutverki deildarinnar. Nokkrir eiga að leggjast inn
en engin pláss eru laus. Í þann mund sem ég ætla að
heilsa upp á sjúklingana mína gengur inn kona með
hjartslátt upp á 200 slög sem þarfnast umsvifalaust
meðhöndlunar. Við gefum henni lyf en þau duga ekki
til. Við tvöföldum skammtinn og við það fer hún í
reglulegan hjartslátt og líður mun betur.
9:00 Fer og kynni mig fyrir hinum sjúkling-unum. Tek til þau lyf sem þau þarfnast
og fer yfir framhaldið hjá þeim. Síminn hringir
nokkrum sinnum á meðan og meðal annars kona
sem þarfnast ítarlegrar ráðgjafar um háan blóð-
þrýsting. Einnig kallar talstöðin og sjúkrabíllinn er
á leiðinni með hjartabilaðan eldri mann sem hljómar
frekar veikur.
10:00 Fer inn á vaktina og reyni að hafa yf-irsýn yfir hina sjúklingana á deildinni,
skipuleggja plássin sem ég hef og forgangsraða. Ég
athuga með innlagnapláss fyrir þá sem eru vænt-
anlegir. Allir eru á þönum og orðnir kaffiþyrstir enda
enginn haft tök á því að komast í kaffi ennþá. Ég
sendi helminginn af fólkinu í kaffi og leysi ritarann
minn af á meðan. Sjúkrabíllinn kemur og ég og
sjúkraliðinn stökkvum til að gera klárt fyrir sjúkling-
inn sem er illa haldinn og þarfnast öndunaraðstoðar.
Við tengjum hann við tæki og tól og í samráði við
læknana er ákveðið að tengja hann við létta önd-
unarvél til að koma honum yfir versta hjallann. Þegar
hann er orðinn stöðugur stekk ég og fæ mér eina
ristaða brauðsneið og kaffisopa.
11:00 Deildin orðin yfirfull, sjúklingarkomnir á ganginn og enn bætist í
hópinn. Læknarnir hafa ekki undan og erfiðlega
gengur að koma fólki á deildir. Ég lít til skjólstæð-
inga minna, hjálpa einni heim og útskrifa konuna
með hraðtaktinn. Tek á móti manni með brjóstverk
sem gæti þurft að fara strax í hjartaþræðingu.
12:00 Lít inn á dagdeildinni. Þar er einnhjúkrunarfræðingur. Þangað koma þeir
sem eru innkallaðir í þræðingu, gangráðsísetningu og
fleira. Hægt hefur gengið að þræða í dag þar sem ein
aðgerðin tekur langan tíma. Tveir leggjast inn á
hjartadeildina og nokkrir eru á heimleið. Mér er létt,
þetta lítur betur út. Gengið hefur vel hjá hjartabilaða
manninum og náum við að losa hann úr vélinni og
setja hann á súrefni. Maðurinn með brjóstverkinn er
með versnandi verk og tökum við nýtt rit og lífsmörk
og gef ég honum sprengitöflu. Ákveðið er að þræða
hann strax. Við undirbúum hann, gef honum nauðsyn-
leg lyf, látum hjartadeildina vita og flytjum hann í
þræðingu.
13:00 Orðin ansi svöng. Buffið bíður ogsmakkast bara betur en ég átti von á.
Í talstöðinni heyrist að kona í hjartastoppi sé á leið-
inni. Ég stekk af stað og hringi neyðarhnappnum.
Bið starfsfólkið að rýma akútherbergið og gera
tilbúið.
14:00 Endurlífgunin gekk vel. Konan varflutt á gjörgæslu eftir bráða meðhöndl-
un. Ég klára kalt buffið. Reyni að setjast niður að
skrifa upplýsingar um þá sem ég hef sinnt.
15:00 Starfsólkið orðið lúið, þá birtist yf-irlæknirinn með konfekt úr fríhöfn-
inni. Fellur vel í kramið þó að allir séu jú í megrun
eftir jólin. Farið að undirbúa vaktaskiptin og klára
það sem eftir er. Við þurfum að loka dagdeildinni,
finna pláss og ferja yfir þá sjúklinga sem þurfa að
vera yfir nótt. Tel eftirritunarskyldu lyfin í lyfja-
skápnum. Skipulegg rapport. Lít inn hjá þeim sjúk-
lingum sem ég á. Skila af mér vaktinni til kvöld-
vaktarinnar. Lúin en nokkuð sátt við ágætan endi á
vakt.
16:00 Stekk út rúmlega fjögur enda aðverða of sein að sækja drenginn á
fótboltaæfingu. Komum við í búðinni og ákveðum að
hressa okkur við með því að fara í sund.
Þegar liðið var á vaktina og enginn hafði haft tök á að komast frá leysti Harpa ritarann af svo hún kæmist í kaffi.
Morgunblaðið/Ómar
DAGUR Í LÍFI HJÚKRUNARFRÆÐINGSINS HÖRPU JÚLÍU SÆVARSDÓTTUR
Erilsamt á vaktinni
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR Á HJARTAGÁTT LANDSPÍTALANS LÝSIR EINNI VAKT FYRIR LES-
ENDUM SUNNUDAGSBLAÐS MORGUNBLAÐSINS
Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is