Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 37
við JSTOR eða vefsíðna á borð við Myspace. Glæpur án fórnarlambs Það er erfitt að sjá hver var fórnarlamb glæpa Swartz. Hann notfærði sér opinn aðgang að þjónustu JSTOR og neti MIT. Hann „hakkaði sig hvorki inn á net MIT eða þjónustu JSTOR, né reyndi hann að fela slóð sína með nokkrum hætti. Þá verður ekki séð að neinn hafi hlotið skaða af, hvorki líkamlega né fjárhagslega, og JSTOR kaus að kæra hann ekki fyrir uppátækið. Hafa verður í huga að greinarnar sem Swartz sótti voru aldrei birtar annars staðar, og þó til þess hefði kom- ið, væri það brot á höfundarétt- arlögum, en ekki CFAA löggjöf- inni. Þegar upp var staðið virðist sem glæpur Swartz hafi fyrst og fremst falist í því að brjóta gegn notendaskilmálum MIT netsins, sem banna notendum að sækja fjölda greina með aðstoð forrita. Flestir eiga erfitt með að skilja hvernig slíkt afbrot geti kallað á 35 ára refsivist. Reiði í netsamfélaginu Eftir að sjálfsmorð Swartz komst í hámæli hafa margir fjöl- miðlamenn vestanhafs gert því skóna að saksóknarinn sem sótti mál hans hafi ætlað sér að gera málið að fordæmi, hökkurum til varnaðar. Ákæruliðir og refsi- rammi hafi því verið langt um- fram það sem afbrotið gaf tilefni til. Þetta hefur vakið talsverða reiði í samfélagi netáhugamanna vestanhafs, og hafa tæplega 30.000 manns sett nafn sitt við undirskriftasöfnun á vef Hvíta hússins, en taka þarf afstöðu til slíkrar söfnunar ef 25.000 nöfn nást. Margir hafa einnig gagn- rýnt þátt MIT-háskóla í þessu ferli, en háskólinn mun hafa neit- að að ræða dómsátt í málinu nema gegn því að Swartz sæti að lágmarki hálft ár í fangelsi. Há- skólinn hefur tilkynnt að innri rannsókn muni fara fram á þætti hans í málinu. Einelti af hálfu stjórnvalda? Það er erfitt að fullyrða að dóms- málið eitt og sér hafi orðið þess valdandi að Swartz ákvað að binda enda á líf sitt. Foreldrar hans, sambýliskona og samstarfs- menn fullyrða þó að það hafi haft gríðarlega mikil áhrif á hann og viðkvæmt sálarlíf hans. Lawrence Lessig, lagaprófessor við Har- vard-háskóla, einn virtasti fræði- maður á sviði höfundarréttar og einn nánasti samstarfsmaður Swartz í baráttunni fyrir fríum gögnum, hefur sagt að Swartz hafi verið fórnarlamb eineltis af hálfu stjórnvalda og líkt og mörg önnur fórnarlömb eineltis hafi hann gefist upp fyrir kvalara sín- um með þessum hætti. Þrátt fyrir ungan aldur hafði Swartz markað djúp spor í sögu hins unga int- ernets. Það er alltaf sorglegt að horfa á eftir ungu fólki í blóma lífsins falla frá, en það er ljóst að Swartz á eftir að lifa lengi í huga baráttumanna fyrir opnu og betra samfélagi. Ef hægt er að vonast eftir að eitthvað gott hljótist af þessum sorglega atburði er það að sú löggjöf og sá refsirammi sem ná til internetsins verði end- urskoðuð. Víst er að vinir og samstarfsmenn Swartz munu berjast fyrir því máli um ókomna framtíð. AFP 20.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 Samkvæmt spá á VB mobile- netsíðunni, sem er neytendasíða tileinkuð öllu sem viðkemur far- símum, verður milljónasta snjall- símaforritið fyrir Android-síma kynnt til sögunnar í júní á þessu ári. Í október á síðasta ári höfðu verið búin til 700.000 snjallsímaforrit, bæði fyrir Apple- og Android-síma. Vöxturinn er hins vegar hraðari í smíði snjallsímaforrita fyrir Andr- oid-síma og er búist við því þau nái fyrr milljón forrita markinu. ÖR FJÖLGUN FORRITA Milljónasta forritið í júní Sony tilkynnti í vikunni að fyrir- tækið hefði hætt framleiðslu á Play- station 2-tölvunni og vörum henni tengdum. Tölvan er vinsælasta leikjatölva sem framleidd hefur ver- ið og rúmlega 150 milljón eintök hafa selst frá árinu 2000. Sá kvittur hefur farið á kreik að með þessu sé Sony að undirbúa enn fremur jarð- veginn fyrir Playstation 4 og að von sé á henni á markað í lok árs. For- svarsmenn Sony hafa hvorki stað- fest né neitað þeim orðrómi. 150 MILLJÓN EINTÖK Playstation 2 úr framleiðslu Samkvæmt tölfræðivefnum Statista hafa tekjur af sölu snjallsímaforrita á heimsvísu farið úr 4,2 milljörðum bandaríkjadala árið 2009, sem jafn- gildir ríflega 543 milljörðum ís- lenskra króna, í 29,5 milljarða doll- ara árið 2013 en það jafngildir um 3.311 milljörðum íslenskra króna. Á síðasta ári jukust tekjur um rúma sjö milljarða bandaríkjadala frá árinu á undan sem var u.þ.b. sami vöxtur og varð á milli áranna 2011 og 2012. Mikill vöxtur í sölu forrita MIKILL HAGNAÐUR ION 30% afsláttur Epla útsala Opnunartímar: Smáralind Virka daga 11-19 | Fimmtudaga 11 - 21 | Laugardaga 11 - 18 Sunnudaga 13 - 18 | Sími 512 1330 B ir t m e ð fy ri rv a ra u m p re n tv ill u r o g ve rð b re yt in g a r. T ilb o ð g ild a á m e ð a n b ir g ð ir e n d a st . WalkOnWater 30% afsláttur SkullCandy 25% afsláttur iLuv 25% afsláttur iHealth 20% afsláttur B&W - heyrnartól 20-30% afsláttur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.