Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Page 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Page 42
*Fjármál heimilannaBetra er að fá vexti af fjármunum sínum en að geyma þá í bankahólfum þegar aldurinn færist yfir Umræðan um skuldir heimilanna hefur verið fyrirferðarmikil alltfrá haustmánuðum 2008 en deilt er um lögmæti lánasamninga,afgreiðslu þeirra og vexti á endurreiknuðum lánum. Fyrir aðra en lögmenn og fjármálaspekinga getur verið erfitt að gera öllum þeim málum skil sem dæmt hefur verið í eða eru fyrir dómstólum í dag. Margir spyrja sig hvar eigin lánasamningar liggja í allri flórunni og þá einnig hverning eigi að bera sig að ef svo vill vera að dæmt hefur verið um sambærilegt lán eða keimlíkt lán er til meðferðar hjá dómstólum. Árni Helgason, lögmaður hjá CATO- lögmönnum, segir helstu ástæðuna fyrir flóknu um- hverfi lánasamninga og dóma liggja í fjölbreytileika þeirra og mismunandi uppruna. „Ástæðurnar fyrir því að þetta kann að sýnast flókið eru ólík samnings- form sem voru notuð og dómstólar þurfa að skera úr um. Í meðferð máls fyrir dómi getur t.d. skipt máli hvernig lánsfjárhæðin er orðuð í texta samnings og með hvaða hætti staðið var að afgreiðslu lánsins á sín- um tíma. Þannig getur skipt sköpum í máli hvort upphæðin er tilgreind í íslenskum krónum með tilvísun í myntkörfu eða hvort upphæðin er til- greind í erlendri mynt.“ Ljóst er að engin aldgild regla er um öll lán og því algengt að fólk leiti sér aðstoðar hjá sérfræðingum ef það er í vafa um eigin lán. Árni segir það ekki þurfa að vera nauðsynlegt skref í öllum málum en skynsamlegt geti verið að leita aðstoðar ef fólk er í vafa. „Oft getur það borgað sig að leita til lögmanns eða annarra sérfræðinga. Það fylgir því vissulega einhver kostnaður en þegar miklir hagsmunir eru í húfi getur það borgað sig fljót upp að hafa einhvern sér við hlið sem þekkir til úr- lausna sambærilegra mála og getur leiðbeint fólki hvert skal stefna varðandi framvindu og úrlausn málsins.“ Þá bendir Árni á að auk sjálf- stætt starfandi lögmanna er hægt að leita til opinberra stofnana, fé- lagasamtaka og jafnvel bankanna sjálfra. „Umboðsmaður skuldara er góður vettvangur fyrir fólk sem vill fá sín skuldamál skoðuð og eins er hægt að leita til ýmissa félagasamtaka. Þá hafa bankarnir veitt fólki að- stoð , t.d. með tilkomu embættis umboðsmanns viðskiptavina sem sum- ar fjármálastofnanir hafa sett á laggirnar.“ Með breytingum á vaxtalögum sem almennt hafa gengið undir nafn- inu Árna Páls lögin var úrvinnslu fjölda mála hraðað og það hefur að mati Árna flýtt fyrir, þótt ákvæði laganna um vexti á endurreiknuð lán, sem byggðu á tilteknum dómi Hæstaréttar, hafi síðar ekki staðist fyrir dómi. „Breytingin á vaxtalögum var að því leytinu jákvæð að vel flest venjuleg lán einstaklinga t.d. vegna fasteignakaupa einstaklinga og flest bílalán voru endurreiknuð með samræmdum hætti,“ segir Árni en hann bendir einnig á að á þessu ári ætti að fást niðurstaða úr fjölda prófmála um vexti á endurreiknuðum lánum og þá ætti heildarmyndin að fara að skýrast. „Þó að stærstu álitaefnin séu kannski að klárast get- ur úrvinnslan og útreikningar tekið einhvern tíma til viðbótar.“ AÐSTOÐA VIÐ ÚRLAUSN SKULDAMÁLA Árni Helgason Morgunblaðið/Golli A lgengur misskilningur margra sem komnir eru á eða nálgast lífeyrisald- urinn er að Trygg- ingastofnun ríkisins skerði allar greiðslur vegna peningaeignar. Þá óttast margir að sparnaður endi jafnvel allur í skattinum og væn- legra sé að geyma hann undir kodd- anum eða inni í bankahólfi. VÍB – eignastýring Íslandsbanka, hóf fyrir tveimur árum fundaröð í samstarfi við Landssamband eldri borgara um sparnað og fjármál einstaklinga á lífeyrisaldri til þess m.a. að fyr- irbyggja að sparnaður fólks brenni upp í verðbólgu vegna misskilnings. „Fræðslufundir eru mikilvægur þáttur í starfi VÍB og við töldum þörf á því að fjalla ítarlega um skerðingar, skatta, verðbólgu og ávöxtun á sparnaði eldri borgara,“ segir Björn Berg Gunnarsson, verk- efnastjóri fræðslu og viðskiptaþró- unar VÍB. Fundaröðin hófst í lok árs 2010 en frá þeim tíma hafa ver- ið haldnir 20 fundir og eftirspurnin hefur verið gífurleg. „Eldri borg- arar eru farnir að sýna þessu meiri áhuga en áður og það hefur verið mikil ásókn í fundina okkar.“ Borgar sig að fá vexti? Björn segir það vera betra að fá vexti en að geyma fjármuni sína í bankahólfum. „Samkvæmt okkar útreikningum, m.v. vexti, skatta, verðbólgu og skerðingar, borgar sig frekar að fá einhverja vexti en enga. Fé sem ekki ávaxtast brenn- ur í verðbólgu á meðan fólk getur með tiltölulega lítilli fyrirhöfn ávaxtað fé t.d. á verðtryggðum reikningum og í verðtryggðum rík- isskuldabréfum.“ Björn bendir einnig á að skattar og skerðingar miða eingöngu við þær tekjur sem búið er að greiða út, t.d. útgreidda vexti. „Sá sem ávaxtar fé sitt í t.d. ríkisskuldabréfasjóði skerðist ekki og greiðir ekki skatt vegna hækk- unar sjóðsins fyrr en hann ákveður sjálfur að innleysa eignina en það getur verið að nokkrum árum liðn- um.“ Margir gera sér ekki grein fyrir því að á greiðslum frá Trygg- ingastofnun ríkisins er frí- tekjumark og sama á við um skatt- greiðslur. „Fólk á það til að gleyma þessu og einmitt vegna frí- tekjumarksins er hægt að ávaxta lægri upphæðir án skerðinga og skatta í stað þess að horfa upp sparnaðinn brenna upp í verðbólgu. Hins vegar er mjög mikilvægt að hafa það í huga að aðstæður fólks eru mismunandi þannig að hver og einn ætti að skoða sín mál, t.d. með ráðgjafa eða sjálfur á tr.is.“ VERÐBÓLGAN BRENNIR UPP SPARNAÐINN Fræða eldri borgara ELLILÍFEYRISÞEGAR ÞURFA EKKI AÐ ÓTTAST UM SPARNAÐ SINN OG ÓÞARFI ER AÐ HORFA UPP Á HANN BRENNA Í VERÐBÓLGUNNI VEGNA MISSKILNINGS. Vilhjálmur Andri Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Hugsanlegar sparnaðarleiðir Dæmi um einstakling sem þiggur lífeyri frá TR, er í hjónabandi og hefur sparnað beggja á sínu nafni. 1 milljón 10 milljónir Forsendur: 1 milljón án ávöxtunar 10 milljónir án ávöxtunar Nafnvextir 3,71% Upphæð í upphafi árs 1.000.000 kr. Upphæð í upphafi árs 10.000.000. kr. Verðbólga (12 mánuðri) 4,20% Frádregin verðbólga í lok árs - 42.000 kr. Frádregin verðbólga í lok árs - 420.000 kr. Fjármagnstekjuskattur 20% Eign í lok árs (raunvirði) 958.000 kr. Eign í lok árs (raunvirði) 9.580.000. kr. Frítekjum.TR á fjölsk. 197.280 kr. Frítekjum. RSK á fjölsk. 200.000 kr. 1 milljón á innlánsreikningi 10 milljónir á innlánareikningi Upphæð í upphafi árs 1.000.000 kr. Upphæð í upphafi árs 10.000.000 kr. Að viðbættri ávöxtun 1.037.100 kr. Að viðbættri ávöxtun 10.371.000 kr. Að frádregnum skatti 1.037.100 kr. Að frádregnum skatti 10.336.800 kr. SkerðingTR 0 kr. SkerðingTR - 40.713 kr. Frádregin verðbólga í lok árs - 43.558 kr. Frádregin verðbólga í lok árs - 432.436 kr. Eign í lok árs (raunvirði) 993.542 kr. Eign í lok árs (raunvirði) 9.863.651 kr. Mismunur 35.542 kr. Mismunur 283.651 kr. Heimild:VÍB Björn Berg Gunnarsson hefur rætt um fjármál og sparnað eldri borgara í vinsælli fundaröð VÍB og Landssambands eldri borgara en haldnir hafa verið meira en tuttugu fundir frá árslokum 2010.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.