Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Síða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013
S
tór hópur íslenskra
kvenna er hvorki skráður
í sambúð né hjónaband
og hlutfallslega hefur lít-
illega fjölgað í hópnum
síðustu árin. 47 prósent kvenna á
aldrinum 20-39 ára eru einhleypar
samkvæmt Hagstofu Íslands, hvorki
skráðar í sambúð né hjónaband.
Stærstur hluti þessa hóps hefur
aldrei gengið að altarinu eða um
94%. Árið 1998 var þetta sama hlut-
fall einhleypra kvenna 39%.
Einhleypar konur eru samkvæmt
Hagstofu Íslands þær sem hvorki
eru skráðar í sambúð né hjóna-
band. Víst má því telja að einhver
hluti þessa hóps eigi í langtíma-
sambandi þótt ástin hafi ekki verið
skráð niður með formlegum hætti.
Ekki hefur fjölgað hlutfallslega í
hópi einhleypra vegna fjölda hjóna-
skilnaða því skilnaðartíðni hefur
lítið breyst síðustu 25 árin. Hins
vegar hefur meðalgiftingaraldur
hækkað.
Í Bandaríkjunum og Bretlandi
hefur einhleypum konum fjölgað
mikið og töluvert verið skrifað
um að ein helsta ástæðan sé sú
að konur séu sjálfstæðari og vilji
heldur engan en þann næst-
besta. Fjöldi kvenna velji sér að
vera einhleypar til skemmri eða
lengri tíma, njóta stefnumóta-
menningar og skammtíma-
sambanda og að máta sig við
nokkra kærasta, nú eða kær-
ustur, fram eftir aldri.
Einhleypar konur
SÍÐUSTU ÁRIN HEFUR EINHLEYPUM KONUM FJÖLGAÐ UM ALLAN HEIM. SKAMMARYRÐIÐ
PIPARJÓNKA HEYRIST SJALDAN Í SEINNI TÍÐ OG BÍÓMYNDIR OG SJÓNVARPSÞÆTTIR EIGA
SINN ÞÁTT Í AÐ EINHLEYPA KONAN ER KOMIN Á KORTIÐ SEM SVALT FYRIRBÆRI.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
„Mér mislíkar þessi
staðalímynd að ein-
hleypar konur séu
helteknar af karl-
mönnum. Líf mitt
heldur áfram eftir
hver sambandsslit.“
Samantha Jones úr
Beðmálum í borg-
inni.
Ég hef alltaf verið svolítiðhrifin af stjórnarfyr-irkomulaginu „upplýst ein-
veldi“ – það er að segja ef ein-
valdurinn er góður. Ég vil meina
að ég sé upplýstur einvaldur yfir
eigin lífi og ég fíla það í ræmur,“
segir Björg Magnúsdóttir, stjórn-
málafræðingur og verkefnastjóri
hjá Háskóla Íslands.
Björg er 27 ára gömul og ein-
hleyp en hefur reynslu af því að
vera í löngu sambandi og í sam-
búð. Hún segir það dýrmætan
skóla að vera einhleypur. „Ég fæ
tækifæri til að setja mig inn í og
læra á öll mál og þar sem að það
er enginn sem getur deilt dag-
legum verkefnum með mér tekst
ég á við allt mögulegt; að setja
upp ljós, elda og borga af húsnæð-
islánum. Ég vil meina að fyrir vik-
ið verði ég fjölhæfari og þjálfaðri
manneskja.“
Björg dregur þó ekki dul á það
að það hafi líka skólað hana til að
ganga í gegnum sambandsslit.
„Þeir sem þurfa að ljúka sambandi
til að verða einhleypir mega vita
að það ferli jafnast á við sjö ára
starfsreynslu hjá stórfyrirtæki.
Þungavigtarreynsla sem er í raun
slæmt að verða af. Ég og minn
fyrrverandi hittumst stundum og
höfum þá rætt okkar á milli hvað
við höfum lært mikið af því að
ganga í gegnum þetta.“
Að geta sofið í miðju rúmi er
stór kostur við það að vera ein-
hleypur að mati Bjargar, sem tel-
ur jafnframt að hún muni hér eftir
alltaf þurfa heilt hjónarúm til að
sofa í, aðeins fyrir sig. Jafnvel sitt
eigið svefnherbergi. „Kostir geta
auðveldlega verið gallar líka. Að
reka eigið heimili og ráða er stór-
kostlegt en um leið er það þetta
með að standa undir heimilis-
rekstrinum ein – ég meina það
væri sem dæmi fínt að þurfa bara
að borga helminginn af lánunum.
Ef ég nefni svo skemmtanalífið
fyrir og eftir sambandsslit þá get-
ur hugurinn nú reikað til öryggis-
ins sem var fólgið í því að vera í
sambandi þegar maður lendir í ís-
lenskum vitleysingum á börunum.“
Björg segist vilja benda á að
einhleypir séu ekki endilega að
leita og það þurfi ekki að vor-
kenna þeim. „Ég er nú kannski
ekki mikið að fetta fingur út í
þetta svona dags daglega en það
reikna allir með því að maður sé í
sárri leit að maka. Það er ekkert
óalgengt að vorkunnsamar at-
hugasemdir svo sem „Æ, ertu
bara ein“ falli – eins og það að
vera ein heil manneskja sé ekki
nóg. Það er kannski eðlilegt að
fólk haldi að maður sé að leita en
þetta er oft óþarfa hjálp. Tala nú
ekki um þegar einhver segir mér
að hann eigi vin sem sé ein-
hleypur. En hann reyndar reyki
pakka á dag. Og búi á Akureyri.“
Eina stærstu blessun Bjargar í
sínu einhleypa lífi segir hún vera
þá að hún eigi góða vini sem veiti
henni ást og umhyggju. „Ég er
heppin með það að margir vina
minna og vinkvenna eru á ná-
kvæmlega sama stað og ég; ein-
hleyp og margir eiga sambönd að
baki. Við erum vön að skeggræða
þessi mál öll þegar við hittumst og
það er mikið fjör. En ég er ekki
að leita sem er kannski líka
ástæðan fyrir því að ég hef aldrei
farið út í að skrá mig á stefnumó-
tasíður á netinu eða slíkt. Það er
alveg nóg fyrir mig að fara á
skemmtistaði um helgar – mér
finnst alveg nóg af rugli þar!“
27 ára: Skóli að vera einhleypur
BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR ER BARNLAUS STJÓRNMÁLAFRÆÐINGUR SEM Á SAMBÚÐ AÐ BAKI. HÚN
KANN ÞVÍ AFAR VEL AÐ VERA EINHLEYP OG SEGIST VERA UPPLÝSTUR EINVALDUR Í EIGIN LÍFI.
Björg Magnúsdóttir segir skemmtanalífið duga sér vel og hún hafi ekki áhuga á stefnumótasíðum.
Morgunblaðið/Kristinn
Aldurshópurinn
20-29 ára
Skipting einhleypra:
Aldrei verið í hjónabandi:
Eiga að baki hjónaband:
1998
98%
2%
Alls konur:
19.916
Einhleypar :
56%
98%
2%
2003
Alls konur:
21.330
Einhleypar :
60%
98%
2%
2008
Alls konur:
22.713
Einhleypar :
58%
99%
1%
2012
Alls konur:
22.837
Einhleypar :
64%
Útreikningar eru byggðir á tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda eftir kyni, aldri og hjúskaparstétt 1998-212. Einhleypar ekkjur eru ekki inni í tölunum.
Úttekt
Einhleypum konum hefur
fjölgað um tæpar tvær millj-
ónir á tæpum tveimur árum
í Bandaríkjunum samkvæmt
frétt New York Post. Ekki
hefur fjölgað jafnmikið í
neinum öðrum þjóðfélags-
hópi í Bandaríkjunum síð-
ustu árin.
Bretland er að sama skapi
að breytast í „þjóð Bridget
Jones“ eins og breska blaðið
Daily Mail komst að orði.
Einhleypum konum á aldr-
inum 18-49 ára hefur fjölgað
um helming frá árinu 1980
en 36% þessa aldurshóps eru
einhleyp í dag samkvæmt
opinberum tölum.
500.000 Danir nýta sér
stefnumótasíður á netinu og
hefur fjölgað um 200 á einu
ári. Danska ríkisútvarpið
greindi frá.
Lítil eldhúsraftæki seljast
betur í Bretlandi, þökk sé
einhleypum. Má nefna litlar
pönnur fyrir eitt spælegg.
Telegraph greindi frá.
Giftar konur drekka meira
og verr en þær einhleypu
samkvæmt könnun banda-
rísku félagsfræðistofnunar-
innar ASA.
Lítil eldhústæki, svo sem litlar
pönnur, seljast þeim mun betur eft-
ir því sem fjölgar í hópi einhleypra.
Fleiri og
fleiri