Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.1. 2013 Ég er mjög sjálfstæð mann-eskja og fer mínar eiginleiðir. Ég hef verið í sam- böndum en þau hafa aldrei náð það langt að ég hafi sameinað líf mitt og hins aðilans mikið,“ segir Aníka Rós Pálsdóttir. Aníka er 38 ára gömul, rekur eigin verslun sem er líka netverslun og stundar auk þess nám í marksamskiptum og almannatengslum við Opna há- skólann. Aníka lauk námi í viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík og hefur jafnan mörg járn í eldinum. „Ég get ímyndað mér að ég hafi farið aðrar leiðir en margir, bæði hvað varðar persónulega hagi og vinnu. Ég byrjaði í háskólanámi þegar ég var 31 árs og ég hef vilj- að vera sjálfstætt starfandi og fór þess vegna út í eigin rekstur. Ég hef starfað erlendis og ferðast mikið. Það að ferðast einn er afar skemmtileg og öðruvísi reynsla þótt ég ferðist vissulega stundum með vinum. En á móti kemur að maður borgar allt sjálfur þegar maður er einhleypur. Það er eng- inn til að deila kostnaðinum með; reikningar og þak yfir höfuðið er nokkuð sem maður þarf að hugsa hvernig maður fer að því að borga einn. Það getur verið erfitt að þurfa að borga allan pakkann einn og ég hef leyst það með því að vinna aðeins meira. Auk þess að reka verslunina mína tek ég líka oft að mér aukavinnu sem þjónn.“ Aníka segir að einhleypar vin- konur hennar séu hér um bil jafn- margar og þær sem eru í sam- bandi. Almennt segist Aníka upplifa mismikla leit hjá þeim sem eru einhleypir. „Öll erum við leit- andi á okkar eigin hátt og allir vilja vera elskaðir en svo er það mismunandi hversu áköf sú leit er. Ég sé það ekki í hillingum að fara úr einu sambandi í annað heldur set ég það efst á listann að mann- eskjan sem ég er með sé sú rétta.“ Aníka bætir við að hún vilji heldur vera ein en vera með einhverjum sem sé ekki sá rétti. „Maður þarf ekki að vera með einhverjum bara af því að hann sýnir manni at- hygli.“ Fleiri spurningar leita á Aníku nú þegar hún er á fertugsaldri en þegar hún var tvítug hvað varðar að fara í fast samband. „Ég er barnlaus núna en er ekki búin að taka endanlega ákvörðun um hvort ég ætli að vera það áfram. Þá finnst mér mikilvægt að framtíð- arplön séu svolítið samhljóma. Margir búast við því að maður hafi að einhverju svipuðu að stefna og þeir sjálfir. „Á ekki að koma með mann og börn?“ er mjög algeng spurning frá fólki sem þykir sem ég sé á síðasta snúningi meðan ég hef sjálf ekki slíka sýn á líf mitt.“ Aníku þykir andrúmsloftið ytra öðruvísi. Víða í Evrópu sé fullt af fólki sem hafi ákveðið að það ætli sér aðra hluti í lífinu en eignast börn og slík áform þyki ekki und- arleg. Kostir og ókostir þess að vera einhleypur er ekki einföld skrá. „Það sem sumum þykir galli er ávinningur að annarra mati. En ég hugsa að ef maður hittir réttu manneskjuna sé maður ekki mikið að velta einhverjum slíkum listum fyrir sér. Ef ég myndi sérstaklega taka fyrir hvernig stefnumóta- samfélagið er hérlendis þá er það því miður á fremur lágu plani. Formlegheit eru lítil og herra- mennskan sömuleiðis á undan- haldi.“ Aníka kann því þó vel að fara á stefnumót og aðspurð hvort hún hafi nýtt sér netið segist hún hafa prófað síðuna Taggalicious. „Ég hef aldrei hleypt neinum inn á mitt persónulega Skype eða Face- book sem ég þekki ekki meðan öðrum finnst allt í lagi að bæta einhverjum við sem þeir voru að kynnast strax. Mér finnst persónu- lega afar mikilvægt að kynnast vel áður með spjalli. En það er ekki hægt að horfa framhjá því að það hafa margir eignast maka þarna inni. Ég er lítið á kaffihúsum og það er því góð afþreying að spjalla þarna við fólk.“ Nýlega nýtti Aníka sér netið til frekari verka í þágu kvenna sem eru einhleypar með því að stofna hópinn Einstakar konur. „Ein- hleypar konur upplifa það stundum að ef þær eiga bara vini sem eru í samböndum getur verið erfitt að fá einhvern með sér í að gera eitt- hvað í frítímanum því margir eiga nóg með sitt og sínar fjölskyldur. Hópurinn er hugsaður sem vett- vangur fyrir konur að eignast vin- konur, ekki bara einhleypar konur reyndar því konur í samböndum geta líka verið einangraðar. Við er- um nýfarnar að hittast.“ Aníka ítrekar að það sé mis- skilningur að einhleypir séu stöð- ugt að leita. „Mann vantar ekki endilega hinn helminginn. Hann getur verið góð viðbót en líf mitt stendur ekki og fellur með því hvort ég á maka. Ég er hamingju- söm og tel mig eiga gott líf.“ 38 ára: Stend ekki eða fell með maka ANÍKA RÓS PÁLSDÓTTIR ER BARNLAUS OG HEFUR ALDREI VERIÐ Í SAMBÚÐ. HÚN SEGIR ÞAÐ MISSKILNING AÐ EINHLEYPIR SÉU Í STÖÐUGRI LEIT AÐ MAKA ÞÓTT LÍFSFÖRUNAUTUR GÆTI VERIÐ GÓÐ VIÐBÓT – SÉ ÞAÐ RÉTTA MANNESKJAN. Aldurshópurinn 40-49 ára Skipting einhleypra: Aldrei verið í hjónabandi: Eiga að baki hjónaband: 1998 Alls konur: 18.204 Einhleypar : 19% 51% 49% 2003 Alls konur: 20.377 Einhleypar : 23% 56% 44% 2008 Alls konur: 21.921 Einhleypar : 24% 58% 42% 2012 Alls konur: 21.181 Einhleypar : 26% 52% 48% Útreikningar eru byggðir á tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda eftir kyni, aldri og hjúskaparstétt 1998-212. Einhleypar ekkjur eru ekki inni í tölunum. Aníka Rós Pálsdóttir telur stefnumótamenninguna á fremur lágu plani hér- lendis en hún segir netið þó geta nýst þar ágætlega sé farið gætilega. Morgunblaðið/Golli Sjóðheitur og safaríkur grill  Einkamal.is. Einn vinsælasti gagnvirki vefur landsins, rek- inn frá árinu 2001.  Fyrirtækið Sambandsmiðl- un sérhæfir sig í að hafa milligöngu um stefnumót. Hægt er senda tölvupóst á sambandsmidlun@sam- bandsmidlun.is eða hringja í 571-3511.  Taggalicious er viðbót á Fa- cebook sem margir Íslend- ingar hafa notað til að kom- ast í kynni við annað fólk.  Einstakar konur er fé- lagsskapur fyrir einhleypar konur sem langar gera eitt- hvað skemmtilegt með öðr- um konum í sömu stöðu. Eru á Facebook.  Sólóklúbburinn er vett- vangur fyrir einhleypt fólk til að hitta aðra í sömu stöðu. Heimasíðann er soloklubb- urinn.is.  Makalaus.is er stefnumóta- vefsíða, einnig með síðu á Facebook. Vefurinn er ætl- aður fólki tvítugu og eldra. Einhleypir á netinu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.