Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 51

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.01.2013, Qupperneq 51
20.1. 2013 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51 myndina þótt ég væri ekki töku- maður myndarinnar. Það var skoskur kvikmyndatökumaður sem sá um það. En við Matti vorum ánægðir með samstarfið og ákváðum þá að gera eitthvað sam- an. Ég var laus á þessum tíma. Mér fannst mjög gaman af tök- unum á myndinni og það var lítil pressa frá fjárhagsöflunum og farið af stað án peninga. Við tókum sénsinn saman. Fyrir vikið höfðum við frjálsar hendur með þetta allt saman. Enda er myndin mjög til- raunakennd á köflum. Það var fer- lega gaman að fá að gera svona ýmsar æfingar sem við hefðum aldrei þorað að gera við venjulegar aðstæður. Það skapar nýjar hug- myndir og það kemur alltaf eitt- hvað nýtt frá sérhverju sem maður prófar. Til dæmis tók ég slatta af senum þar sem ég var ekki einu sinni með linsuna á kamerunni heldur hélt henni fyrir framan og var að fokka í myndinni. Myndin sést að miklum hluta frá sjónar- horni dauðadrukkins manns sem er djúpt í neyslu. En menn vita hvernig það er að vera mjög ölv- aður, þá er fókusinn ekki mjög góður. Við vorum að reyna að skapa þennan heim og ég vona að það hafi tekist. Ég var mjög ánægður með það og vona að það hafi skilað sér. Svo þurfti ég að leika sjálfur fyrir Darra, því við vorum að taka skot frá hans sjón- arhóli og þurfti að leika hendurnar hans. Ströppuðum vélina framan í andlitið á mér og svo lék ég sen- urnar hans og léði honum hend- urnar mínar. Það kom margt af því ágætlega út. Svo leyfðum við okkur að vera djarfir í lýsingunni og þess háttar. Maður getur leyft sér að fara miklu lengra í súrrealískum hlut- um. Það er svo gott að vera ekki takmarkaður við neitt. Þú ert kom- inn í þennan sjúka heim og það er allt leyfilegt þar.“ Besti farinn til Bandaríkj- anna til að taka upp Varðandi hvað sé framundan hjá honum segist hann vera að fara ut- an í bandarískt verkefni núna í janúar. „Myndin heitir Julia og leikstjór- inn er suðurafrískur, heitir Mat- hew Brown. Þetta er amerísk indy- mynd. Það eru minni peningar í henni en þá er maður ekki með allt báknið á herðum sér. Ég er samt öruggur með laun og þess háttar. Maður þarf að eiga óskaplega skilningsríka konu í svona starfi og ég er mjög heppinn með það að ég á eina slíka, Sigríður Þóra Árdal heitir hún og er vöruhönnuður. Við erum búin að vera gift í 20 ár og saman í ein 30. En það eru plúsar og mínusar við þetta starf. Þetta er stundum eins og að fara í Smuguna, það eru tveir mánuðir þar sem ég er ekki með í hjóna- leiknum. Jafnvel þótt ég sé að taka hérna í Reykjavík þá kem ég bara heim rétt til að sofa. En inná milli eru löng frí þar sem ég er alltaf heima að dúlla mér í undirbúningi. En maður þarf að passa upp á sambandið,“ segir Besti. Bergsteinn Björgúlfsson kvik- myndatökustjóri, oft kallaður Besti, er með gríðarlega mikla reynslu sem tökumaður. Morgunblaðið/Styrmir Kári *Þetta er stund-um eins og aðfara í Smuguna, það eru tveir mán- uðir þar sem ég er ekki með í hjóna- leiknum. Bergsteinn Björgúlfsson hefur stýrt tökum á mörgum íslensk- um kvikmyndum og sjónvarps- þáttum. Þar á meðal eru XL, Djúpið, Svartur á leik, Bjarn- freðarson og allar vaktaseríurn- ar, Kóngavegur, Draumalandið, Reykjavík-Rotterdam, Brúð- guminn, Astropia, Mýrin, For- eldrar og Börn; Hlemmavídeó, Réttur og Fóstbræður. Berg- steinn var aðstoðartökustjóri við gerð Little Trip to Heaven og Hafsins og hefur stýrt tökum á nokkrum stuttmyndum, svo sem Naglanum og Rauðum jól- um. Hefur komið víða við Brúðguminn, 2007. Svartur á leik, 2011. Það kostaði fyrirhöfn að kvikmynda Djúpið (2011) á hafi úti. Bjarnfreðarson, 2010. Ólafur Darri Ólafsson í essinu sínu í XL sem komin er í bíó. Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki Erlendar lögreglumanns í Mýrinni 2006.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.